Archive Arnamagnæana dev

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Reykjavík: 7446 documents
(1161 documents in progress, 1335 done, 40 left)
Jón Jónsson gefur klaustrinu á Þingeyrum með sér í prófentu jörðina Bersastaði á Miðfjarðarnesi, fyrir tólf hundruð, og þar til átján hundruð í lausafé, með fleirum greinum, er bréfið sér líkast hermir.
Vitnisburður um Látur (Látra) í Aðalvík.
Skrá um jarðir Kristínar Björnsdóttur í umboði Markúss, um porcio kirkjunnar í Aðalvík meðan Markús tók og um skipfi á jörðum eptir Kristínu Björnsdóttur.
Jón Ólafsson kaupir af Árna Sæmundssyni hálfa jörðina Stokkseyri og alla Ásgautsstaði á Eyrarbakka fyrir Belgsstaði og tuttugu hundruð í Drambholtsstöðum í Biskupstungum, en Jón skyldi kaupa tíu hundruð í Drambholtsstöðum og fá Árna, en brygðist það, skyldi Árni fá tíu hundruð í annarri jörð og þar til þrjú hundruð og ævilangt fjörufar á Stokkseyri með fleira skilorð, er bréfið greinir.
Kaupbréf fyrir Veigastöðum.
Úrskurður Guðmundar lögmanns um að Guðmundr ábóti skuli hafa tólf aura í landnám og sex sela virði fyrir það, að tveir bændr fóru í Hópsós, eign klaustrsins á Þngeyrum «eptir fornum hefðum».
Sjá færslu í nr. XLVI, 6.
Bróðir Jón Sigurðsson Skálholtsbiskup vígir kirkju í Alviðru í Dýrafirði helgaða Guði, Maríu guðsmóður, heilögum Ólafi og blessuðum Benedikt. Einnig máldagi kirkjunnar.
Tveggjatylfta-dómr leikmanna, kvaddr af Kristófer Trondson og Axel Juul, dœrnir Jón byskup Arason og sonu hans, Ara og síra Björn, landráðamenn og eignir þeirra fallnar konungi. Þetta er íslensk útgáfa dómsins.
Dómstefna til Jóns Sigurðssonar um skuld af réttum eignum fátækra.
Dómur um útgreiðslu skuldar Hóladómkirkju til Ljósavatnskirkju.
Vitnisburður um lýsing lögmála síra Sigurðar Jónssonar á alþingi.
Eiður Ragnhildar Jónsdóttur um börn sín og síra Þorleifs Björnssonar.
Transskrift 2 bréfa um eignarrétt á Hóli í Bolungarvík. 1. (DI IX, nr. 554) Tylftardómur út nefndr á Alþingi af lögmönnum báðum, Erlendi Þorvarðssyni og Ara Jónssyni, um kærur Illuga Ólafssonar til Ögmundar biskups, að hann héldi Brigit (Bríetu) móður sína út af Hóli og Hólseignum í Bolungarvik, er Brigit taldi erfðaeign sína eptir Einar Jónsson bróður sinn. 2. ATH 3. Texti transskripts.
Fimm prestar transskríbera transskript frá 18. Febrúar 1443 af tveim bréfum frá 14. öld og einu frá 15. öld.
Rekaskrá Þingeyraklausturs í mörgum gerðum.
Transskript af eftirfarandi kvittun: Sumarliði Eiríksson selr Þorleifi Björnssyni jörðina Kollabæ í Fljótshlíð, og kvittar Þorleif fyrir andvirði jarðarinnar.
Kristján konungr hinn annar staðfestir bréf frá 18. Julí 1502 (AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVI, 1).
Vitnisburður Ólafs Porvaldssonar, að hann var langt fyrir mannplágu og fjörutíu ár eptir á Barðaströnd og heyrði menn sér eldri segja, að Skjallandafoss ætti naust og vör þar inn frá túngarði, og ekki hafi hann heyrt þar tvímæli á fyrr en hvalinn rak á Skjallandafossi.
Sex menn afrita þrjú bréf frá 15. öld.
Vitnisburðarbréf um lesinn vitnisburð þess efnis að Elen Magnúsdóttir hefði gefið Jóni Magnússyni Þórustaði gegn því skilyrði að stúlkubarn yrði skírt Elen og skyldi jörðin fylgja nafni.
Kaupbréf fyrir Hafralæk
Pappírsuppskriftin er í mörgum liðum og tengist nokkrum apógröfum en yfirlit hennar er aftast í ap. 4706. 1) Teitur Fúsason lýsir þvi, að hann hafi gefið fult samþykki til þess, að Jón Pálsson gerði löglegt hjónaband við Ásdísi Fúsadóttur systur sína, og jafnframt, að Jón hafi fastnað Ásdísi. DI XII, nr. 71. 2) Vitnisburðarbréf, að Jón Pálsson hafi fastnað Ásdísi Fúsadóttur. DI XII, nr. 72. 3) Vitnisburðarbréf, að Jón Pálsson hafi fastnað Asdísi Vigfúsdóttur, en Jón og Ásdís eru nú (1562) bæði dáin. DI XII, nr. 73. 4) Vitnisburður um lýsing Jóns Pálssonar á því, að Vigfús (síðar sýslumaðr á Kalastöðum) væri skírgetinn sonur sinn. (ap 4655) DI XIII, nr. 264. 5) Vitnisburður um lýsing Jóns Pálssonar, að Vigfús, sonur sinn, væri réttur festarkonu son. (ap 4656) DI XIII, nr. 265. 6) Arfaskipti með börnum Jóns Pálssonar (ap 4706) DI XIII, nr. 546. 7) Páll hirðstjóri Stígsson staðfestir arfaskiptabréf barna Jóns Pálssonar (ap. 4706). DI XIII, nr. 558.
Skrá um peninga þá er voru á Eyri í Seyðisfirði er jómfrú Solveig Björnsdóttir tók við, ásamt landamerkjum Eyrar og nokkurra annarra jarða.
Ákæra Einars Nikulássonar til Sigurðar Jónssonar og Katrínar Nikulásdóttur vegna sölu á jörðunum Hóli og Garðshorni í Kinn tekin fyrir dóm á Ljósavatni í Bárðardal 9. maí 1599. Málinu er vísað áfram og skal Jón Illugason taka það fyrir á Helgastöðum í Reykjadal 30. maí sama ár (sjá apógr. 5154).
Torfi Þorsteinsson heitir sira Sigurði Jónssyni að selja honum Hafralæk fyrstum manna.
Kaupbréf. Erlendur bóndi selur með samþykki Guðríðar Þorvarðsdóttur konu sinnar Árna Einarssyni jörðina Bambsfell í Ytra-Djúpadals kirkjusókn fyrir þrjátigi hundraða.
Örnólfur bóndi Jónsson kvittar Guttorm son sinn fyrir andvirði hálfs Staðarfells, er hann hafði selt honum 1383 og fyrir hálfa selveiði fyrir Hellu.
Hrafn Guðmundsson lögmaður staðfestir tólf manna dóma frá 21. apríl um Silfrastaðamál.
Kaupbréf fyrir Æsustöðum í Eyjafirði (sbr. bréf 26. nóvbr. 1568).
Lögréttumenn kjósa Grím Jónsson sinn lögmann fyrir norðan og vestan á Íslandi samkvæmt lögum enda hafi hann hlotið kjör á almennilegu Öxarárþingi.
Tvö transskipt á pappír.
Skipan Sæmundar Ormssonar um almennig í Hornafirði (brot). Sjá skráningarfærslu á handrit.is
Þrír prestar og þrír leikmenn votta, að junkæri Þorleifur Björnsson hafi afhent Hrunastað, svo að Andrési Grænlendingabiskupi og umboðsmanni Skálholtskirkju vel ánægði, og kvittaði biskup Þorleif með öllu.
Samningur milli Þorleifs Björnssonar og Stepháns Jónssonar, þar sem Stephán handlagði Þorleifi alla peninga eptir Jón Jónsson bróður sinn prest í Hruna, er þó að vísu voru brotnir við heilaga kirkju; skilur Stephán sér æfinlegt framfæri hjá Þorleifi, og að Þorleifr útvegi hjá réttlegum Skálholtsbiskupi, þegar hann komi, prestakall handa Þorleifi syni sínum.
Lýsing Jóns Gamlasonar um greiðslur Björns Þorleifssonar til Guðna Jónssönar í „hugmót" og sakeyri fyrir það, að Björn var með Eiríki Haldórssyni í flokk og fylgi, þá er Páll heitinn Jónsson var ófyrirsynju í hel sleginn.
Bréf frá átján kaupmönnum í Hafnarfirði til þeirra Odds biskups Einarssonar og lögmannanna Þórðar Guðmundssonar og Jóns Jónssonar, upp á kvörtunarbréf þeirra til kaupmanna yfir versluninni; lofa kaupmenn þeim svari þegar er þeir geti haldið samkomu sín á milli.
Prófentdsamninse Þorvalds (bálands) Jónssonar við Ásgrím ábóta á Þingeyrum fyrir Gottskálk Þorvaldsson, son sinn.
Transskript af fjórum dómum, merkt með alfa, beta, gamma og delta. Lýsing á einingum, itemum, bréfsins tekin úr yfirliti ÁM í apogr. 2938. Þar segir Árni: Þessir 4 dómar standa á einu bókfelle hver epter annan, og sýnest sem þeir mune hafa átt að verða vidimus, en alldrei af orðið. Höndin á þessu stóra bréfi er so sem de anno 1540 vel circiter. Alla þessa dóma hefi eg heðan accurate uppskrifaða með hendi Magnúss Einarssonar.
Festingarbréf síra Steins Ólafssonar og Arnbjargar Brandsdóttur.
Einar Markússon og Gró Jónsdóttir kona hans selja hústrú Ólofu Loptsdóttur og Birni Þorleifssyni jörðina Árnardal hinn meira frá teknum sex hundruðum, er seld voru áður Jóni Erlingssyni, fyrir jörðina Hanhól í Bolungarvík og þar til átta kúgildi.
Transskript á skiptabréf milli Guðrúnar Björnsdóttur og Solveigar Bjarnadóttur, dóttur hennar, á peningum þeim sem Solveigu höfðu til erfða fallið eftir Bjarna Andrésson föður sinn, sbr. AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,21. Fyrir framan bréfið votta Jón Jónsson og Ólafur Sigurðsson að hafa lesið yfir frumbréfið með innsiglum.
Vitnisburður um Látur (Látra) í Aðalvík.
Page 1 of 149