Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 721 documents
(9 documents in progress, 0 done, 712 left)
Kaupmálabréf Björns Sæmundssonar og Snjófríðar Björnsdóttur.
Þóra Guðmundsdóttir samþykkir sölu Jóns Eyjólfssonar bónda síns á jörðunni Guðmundarlóni til Hólakirkju í Hjaltadal.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup samþykkir staðaskipti þeirra séra Ólafs Þorgeirssonar og Magnúsar Ásgeirssonar, að Ólafur verði prestur á Bægisá, en Magnús í Húsavík.
Próventubréf Sveins Guðmundssonar, er Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup tekur í próventu á Hólastað.
Konventubræður á Munkaþverá samþykkja jarðakaup Einars Ísleifssonar ábóta við Bjarna Ólason, að klaustrið keypti Kasthvamm í Laxárdal fyrir Jódísarstaði og Höskuldsstaði.
Þorleifur Árnason bóndi selur Sveini Guðmundssyni jörðina Nýjabæ í Eystrumdölum í Skagafirði með tilgreindum landamerkjum og kvittar Svein um andvirðið.
Ólafur Þorgeirsson prestur lýsir, því að hann hafi eftir skipun Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups ætlað að lesa á Grenjaðarstöðum dóminn frá 13. júlí 1464 (DI V, nr. 372) um Valþjófsstaði yfir Þórunni Finnbogadóttur, en séra Jón Pálsson hafi ruskað sér og blótað, og ætlað að ná í bréfið og Þorgils Gunnlaugsson hafi gripið í það og rifið, og haft með sér mestan part þess.
Vitnisburður Ketils Grímólfssonar prests um tíundargreiðslu Þórunnar Finnbogadóttur af Valþjófsstöðum í Núpasveit til Presthóla.
1) Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Þórunnar Finnbogadóttur á jörðunni Valþjófsstöðum í Núpasveit, er biskupinn reiknaði eign Hólakirkju í Hjaltadal. 13. júlí 1464. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 4. mars 1466.
1) Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Þórunnar Finnbogadóttur á jörðunni Valþjófsstöðum í Núpasveit, er biskupinn reiknaði eign Hólakirkju í Hjaltadal. 13. júlí 1464. 2) Transskriftarbréf tveggja manna. 20. ágúst 1464.
1) Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Þórunnar Finnbogadóttur á jörðunni á Valþjófsstöðum í Núpasveit, er biskupinn reiknaði eign Hólakirkju í Hjaltadal. 13. júlí 1464. 2) Transkriftarbréf þriggja manna. 25. september 1466.
Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Þórunnar Finnbogadóttur á jörðunni Valþjófsstöðum í Núpasveit, er biskupinn reiknaði eign Hólakirkju í Hjaltadal.
Arngrímur Þórðarson selur séra Þorsteini Jónssyni jörðina Presthvamm í Grenjaðarstaðarþingum með kristfjárómaga, fyrir 20 hundruð í fríðum peningum.
Brandur Jónsson lögmaður norðan og vestan á Íslandi úrskurðar, að Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi skuli gjaldast allir skattar, skyldur og sakeyrir um Hegranessþing, samkvæmt bréfi Kristjáns konungs (frá 29. nóvember 1459, nr. 187).
1) Brandur Jónsson lögmaður norðan og vestan á Íslandi úrskurðar, að Ólafi Rögnvaldssyni skuli gjaldast allir skattar, skyldur og sakeyrir um Hegranessþing, samkvæmt bréfi Kristjáns konungs (frá 29. nóvember 1459, nr. 187). 10. nóvember 1463. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 29. apríl 1489.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup selur Oddi Þorbjarnarsyni jörðina Halldórsstaði í Ljósavatnsþingum fyrir Leifsstaði í Öxarfirði.
Jón Eyjólfsson selur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi til fullrar eignar jörðina í Guðmundarlóni á Langanesi með rekaparti í Dritvík, en Ólafur biskup láti kenna syni Jóns tólf vetra gömlum til prests; kvittar og biskup Jón um rekatöku, en Jón galt fyrir sex málnytukúgildi.
Þorsteinn Jónsson prestur lofar að lúka Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju 60 hundraða fyrir þann reikningsskap, er hann átti honum að standa og Hólakirkju í ráðsmannsstarfi síðan Gottskálk Keniksson Hólabiskup deyði, og leggur séra Þorsteinn þá þegar tvær jarðir í skuldina, en allt sé lukt á þremur árum, og gefur þó biskup tíu hundruð kvitt fyrir bón abbadísarinnar á Reynistað og hústrú Margrétar Vigfúsdóttur á Möðruvöllum.
Ketill Teitsson kvittar Einar Ísleifsson ábóta á Munkaþverá fyrir níu hundruðum, sem er andvirði fyrir tiltölu þá, er Ketill átti til Skóga í Axarfirði.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um það, hvort Hólakirkja í Hjaltadal eigi Drangey í Skagafirði. Sóru sex prestar, er sumir báru að þeir vissu að Hólakirkja hefði haft hana í 40 ár, svo að þeir vissu, aðrir vissu um 30 ár og einn um 25 ár. Dæmdu þeir kirkjuna eyna til óbrigðilegrar eignar.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um Þorstein Brynjólfsson er farið hafði í Drangey, eign Hólakirkju í Hjaltadal, og tekið þar seli, fugla og egg.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup samþykkir próventu Helgu Finnsdóttur á klaustrið á Stað í Reyninesi.
Agnes priorissa á Stað í Reyninesi og allar konventusystur á Stað lofa Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi hlýðni og fullum trúskap sem þeirra formanni, og lýsa því, að Þorleifur Árnason hafi hvorki fengið umboð á þeirra né klaustursins peningum, 19. apríl 1461.
Þorleifur Árnason lofar Agnesi priorissu og öllum systrunum á Stað í Reyninesi að taka hvorki klaustrið né þess peninga og veita þar engan styrk og engin ráð til að það sé gert.
1) Sýslubréf Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups fyrir Skagafjarðarsýslu um tíu ár, útgefið af Kristjáni Danakonungi hinum fyrsta. 29. nóvember 1459. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 12. október 1460.
Guðríður Oddsdóttir handabandar með samþykki Ketils Þórðarsonar bónda síns Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi alla þá peninga, er henni hafa til erfða fallið eftir Blíg Höskuldsson föðurbróður sinn, hvar sem þeir uppspyrjast, fyrir 16 kúgildi, einn ketil og eitt hross.
Próventubréf Helgu Finnsdóttur við frú Barböru abbadís og klaustrið á Stað í Reyninesi.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup samþykkir skipti þeirra Barböru abbadísar á Stað og Ólafs Grímssonar bónda á jörðunum Brúarlandi í Deildardal og Syðra-Vatni í Tungusveit.
Barbara abbadís á Stað í Reyninesi selur Ólafi Grímssyni bónda jörðina Brúarland hálft í Deildardal fyrir Syðra-Vatn í Tungusveit.
Klerkar fyrir norðan lands kjósa Ólaf Rögnvaldsson prest til Hólabiskups.
Jón Ólafsson kvittar Ólaf Loftsson föður sinn og Guðrúnu Rafnsdóttur móður sína fyrir föður- og móðurarfi sínum.
Bróðir Steinmóður ábóti í Viðey vottar, að hann hafi verið við á Núpi undir Eyjafjöllum, þegar Sæmundur Hallsson og Ingibjörg Ólafsdóttir, móðir hans, seldu Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi (góðrar minningar) 20 hundruð í Núpi og kot, er þau áttu þar nærri, upp í próventu Ingibjargar ofl.
Gottskálk Keneksson Hólabiskup selur Einari ábóta á Munkaþverá jörðina Kaldbak á Melrakkasléttu, er Hólastaður á, að fráteknum reka, en ábóti gefur í mót jörðina að Dýjum í Grenjaðarstaðaþingum.
Ásgrímur Þorkelsson selur Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi á staðarins vegna á Hólum jörðina Steinnýjarstaði fyrir jörðina í Haganesi við Mývatn.
Einar Árnason sýslumaður í Þingeyjarþingi vottar, að Þorsteinn Oddsson hafi fyrir tveim árum svarið fyrir sér fullan bókareið, að hann hafi verið í Reykjahlíð fyrir tíu vetrum (1444), að Þorsteinn Einarsson festi Björgu Guðmundsdóttur sér til eiginkonu eftir guðs lögum.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup staðfestir dóm Jóns Snorrasonar prófasts frá 21. október 1454 um lambseldi til Vallakirkju í Svarfaðardal.
Dómur níu klerkmanna og tveggja leikmanna útnefndur af Jóni Snorrasyni presti og prófasti milli Glerár og Úlfsdalsfjalla um lambseldi til kirkju hins blessaða Ólafs kóngs á Völlum í Svarfaðardal.
Jón Pálsson prestur selur Þorvaldi Jónssyni jörðina Reyki í Ólafsfirði með tilgreindum landamerkjum fyrir jörðina Skóga í Fnjóskadal, einnig með tilgreindum landamerkjum.
Tveir menn votta, að Sæmundur Hallsson kvittaði Gottskálk Keneksson Hólabiskup fyrir andvirði hálfrar jarðarinnar Núps undir Eyjafjöllum, sem hann hafði selt biskupi.
Illugi Björgólfsson vottar, að hann hafi vitað, að Reynistaðarklaustur hafi óátalið um hálfan fimmta tug ára eða lengur tekið landskyldir af Hofi á Skagaströnd.
Marcellus Skálholtsbiskup vottar, að Ólafur Rögnvaldsson, prestur Skálholtsbiskupsdæmis, hafi fengið sér fyrir hönd Gottskálks Kenekssonar Hólabiskups og umboðsmanns Skálholtskirkju tíu nobila í ensku gulli eða fjögur mörk í dönskum peningum.
Björn Þorleifsson bóndi selur Agli Grímssyni jörðina á Eyvindarstöðum og hálfa Reyki í Hrútafirði, en Egill gefur í móti Sólheima á Ásum, Grilli í Fljótum og Skuggabjörg í Deildardal.
Sigurður Jónsson prestur og prófastur í Skagafirði, tekur fullan bókareið af Einari Magnússyni um skóg þann, er kallaður hefur verið Maríuhrís, í Ássjörðu í Hörgárdal milli Auðbrekkuskógs og Vindheimaskógs, og sver Einar, að hann hafi aldrei heyrt annað en Möðruvallaklaustur ætti skóginn.
Sex menn votta, að Sigurður príor á Möðruvöllum hafi selt Einari ábóta á Munkaþverá Gil og Vagli í Hrafnagilsþingum fyrir jörðina Gásir í Glæsibæjarþingum og þar til tíu kúgildi.
Gottskálk Keneksson Hólabiskup leyfir að Einar ábóti á Munkaþverá selji Sigurði príor og klaustrinu á Möðruvöllum jörðina Gásir í Glæsibæjarþingum og þar til tíu kúgildi fyrir jarðirnar Gil og Vaglir í Hrafnagilsþingum.
Ingibjörg Ólafsdóttir gefur með samþykki skilgetinna sona sinna þann tíu hundraða part, er hún átti í Núpi undir Eyjafjöllum og allt laust og fast, er hún þá átti, í vald Gottskálks Kenekssonar Hólabiskups.
Vitnisburður tólf manna um það, að Hólastaður eigi osttoll af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum.
Þorsteinn Jónsson selur Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi 20 hundruð í jörðunni Ási í Vatnsdal fyrir jörðina Brandsstaði í Blöndudal og sex kúgildi, en af því biskup lét burt jörð, er Hólakirkja átti, fékk biskupinn Hólakirkju 20 hundruð upp í greinda jörð Ás í Vatnsdal.
Guðmundur Björgólfsson selur Illuga Björgólfssyni bróður sínum rekann fyrir Sævarlandi fyrir rekann á milli Sauðarár og Gaukstaðaár og nýjan sexæring.
Sigmundur Steindórsson prestur selur Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi 15 hundraða part í jörðunni Ási í Vatnsdal, en biskup geldur í móti jörðina Hól í Svartárdal, og á Sigmundur prestur að gefa 15 kúgildi í milli.