Archive Arnamagnæana dev

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Reykjavík: 7446 documents
(1329 documents in progress, 1829 done, 40 left)
Vitnisburðarbréf um landamerki Gnúps og Alviðru í Dýrafirði.
Gjafabréf Jóns Oddssonar til handa Þorgilsi presti syni sinum um tíu hundruð upp í jörðina ytra Hvarf í Svarfaðardal.
Helga Guðnadóttir og Eiríkr Torfason, sonr hennar, gefa hvort annað kvitt um öll þeirra skipti.
Sveinn Þorleifsson selr síra Ólafi Hjaltasyni sjálfdæmi og gefr sig og alt það, sem hann á, í hans vald, fyrir „það svik", er Sveinn hafði gert síra Ólafi í sambúð við Hallfríði Ólafsdóttur, með þeim fleirum greinum, er bréfið hermir.
Þorleifur Eyjólfsson ættleiðir, með uppgjöf síra Magnúsar Eyjólfssonar bróður sins, syni sína Magnús og Þorkel.
Björn prestr Jónsson og Steinunn Jónsdóttir arfleiða og ættleiða börn sín Jón, Magnús og Ragneiði, með samþykki afa barnanna, Jóns biskups Arasonar og Jóns bónda Magnússonar.
Agnes Grímsdóttir samþykkir, aS Haldór Brandsson bóndi hennar megi selja síra Birni Jónssyni jörðina Litlu-Hvalsá i Hrútafirði
Fúsi Helgason kvittar Andrés Arason um það sakferli, er Andrés átti að gjalda móður Fúsa, og samþykkir Oddr bróðir Fúsa það.
parchment
Tylittaedómr, út nefndr af Jóni Olafssyni í umboði föður síns, Ólafs Guðmundssonar sýslumanns í Isafjarðarsýslu, um framfæri barna Ólafs Jónssonar.
parchment
Festingar og kaupmálabréf síra Þorleifs Björnssonar og Ragnhildar Jónsdóttur.
parchment
Festíngar og kaupmálabréf Guðmundar Skúlasonar og Guðnýjar Brandsdóttur.
parchment
Ormur lögmaður Sturluson staðfestir Skálavíkrdóm 30. júní 1542 (sjá Dipl. Isl. XI. nr. 139).
parchment
Tylftardómur, útnefndr á Öxarárþingi af Þorleifi lögmanni Pálssyni, um kærur lögmanns upp á jarðirnar Bakka, Breiðaból og Hraun í Skálavík, sem Ólafur bóndi Eiríksson hefir haldið um langa tíma.
parchment
Dómr sex presta, útnefndr at Jóni biskupi á Hólum, um ákæru síra Ólafs GuSmundssonar til síra Björns Jónssonar, að síra Björn héldi fyrir sér jörðunni hálfum Reykjum í Miðfirði.
parchment
Vitnisburður Kolbeins Auðunarsonar og Teits Magnússonar presta að á sunnudaginn næstan eftir páskaviku í Reykjahlíð við Mývatn MDXL og ii (1542) festi Jón Skúlason Ingebiörgu Sigurðardóttur sier til eigennkvinnu med samþykki móður hennar Margrétar Þorvarðsdóttur og bróður hennar Ísleifs Sigurðssonar og Þorsteins bónda Finnbogasonar. (úr AM 479). Festingabbréf Jóns Skúlasonar og Ingibjargar Sigurðardóttur.
parchment
Jón biskup á Hólum kvittar síra Jón Brandsson um milligjöf milli jarðanna Grillis í Fljótum og Illugastaða í Flókadal.
parchment
Dómur sex manna, út nefndr af Ólafi bónda Guðmundssyni kongs umboðsmanni milli Geirhólms og Langaness, um kæru Guðrúnar Björnsdóttur til Fúsa Brúmannssonar um hvaltöku og uppskurð fyrir Selvogum.
Þorleifur lögmaðr Pálsson staðfestir dóm Orms Guðmundssonar um löggjafir Ara Andréssonar og Þórdísar Gísladóttur til Orms.
Dómr sex manna, utnefndr af .Tóni Jónssyni, kongs umboðsmanni milli Geirhólms og Hrútaf]arSarár, um gjafir Ara heitins Andréssonar og Þórdísar heitinnar Gisladóttur til Orms Guðmundssonar.
Gizur Einarsson fullmektugan formann og superintendentem yfir þá alla, Skálholts dómkirkju og stikti
Nr. 26:Guðrún Höskuldsdóttir samþykkir stöðugt og myndugt það jarðakaup (urn Djúpadal), er Guðmundr Þorvarðsson, sonr hennar, hafði gert við Guðmund Olafsson, og kvittar um andvirði Djúpadals. Nr. 27Svo og festir Þorvarðr Helgason Guðrúnu Höskuldsdóttur.
Dómr sex klerka, út nefndr af Pétri ábóta (á Munkaþverá) í umboði Jóns biskups á Hólum, um kærur Þorsteins Jónssonar til síra Högna Pétrssonar.
Kaupbréf þeirra Kolbeins Oddasonar og Snorra Arnasonar um jarðirnar Syðrivík og Skjallteinsstaði i Vopnafirði og Hallgeirsstaði og Fremribrekkur á Langanesi.
Ögmundr biskup i Skálholti selr Jóni presti Eiríkssyni jarðirnar Steinólfsstaði, Marðareyri, Steig og eyðikotið Kallstaði í Veiðileysarfirði, Þverdal í Aðalvík og Unaðsdal á Snæfjallaströnd fyrir Eyri í Bitru, Gröf og Hvítahlið, af hvorri hendi með þeim kúgildum, sem fylgja eiga.
Claus van der Marvisen, hiröstjóri og höfuðsmann yfir alt Island, gefr sinum góðum vin Didrek van Minnen umboð það, er hann hafði af konungi yfir íslandi, „bífalar“ honum klaustrið i Viðey með öllum tekjum, svo og garðinn á Bessastöðum, og veitir honum „kongsins sýslu Gullbringuna".
Péte Loptsson fær Árna Pétrssyni, syni sínum, til eignar jörðina Akreyjar á Breiðafirði fyrir fjörutíu hundruð, en Árni skal í móti svara kirkjunni í Dal í Eyjafirði fjörutíu hundruðum i reikningskap, og Pétr hafa Akreyjar svo leingi er hann lifir.
Jón biskup á Hólum setr með ráði Helga álióta á Þingeyrum bróður Jóni Sæmundssyni skriptir fyrir barneign með Eingilráð Sigurðardóttur.
Bréf Ögmundar biskups í Skálholti til allrar alþýðu manna í Skálholtsbiskupsdæmi móti þeim hinum nýja sið, og hótar hann þeim, er honum fram halda, forboði undir banns áfelli, en býðr hinum aflausn, er snúast vilja til betrunar.
Björn Þorleifsson selr Jóni presti Eirikssyni jarðirnar Heydal og Skálavík í Mjóafirði og kvittar hann um andvirðið.
Landvistarbréf Kristjáns konungs þriðja handa Jörundi Steinmóðarsyni af legorði með tveim systrum.
Ögmundur biskup í Skálholti samþykkir, að Teitr bóndi Þorleifsson hefir selt Eiríki Guðmundssyni og Guðrúnu Gunnlaugsdóttur konu hans jarðirnar Asgarð og Magnússkóga, með fleira, er bréfið hermir.
Tylftakdómr út nefndr af Jóni biskupi á Hólum, Claus van der Mervize og lögmönnum báðum, Erlendi Þorvarðssyni og Ara Jónssyni, eptir konungs skipan um kæru Ögmundar biskups í Skálholti til Sigurðar Ólafssonar, að hann hefði legið með Solveigu Ólafsdóttur systur sinni.
Ögmundr biskup i Skálholti fær Fúsa bónda Brunmannssyni og Ólöfu Björnsdóttur konu hans til eignar jarðirnar Kirkjuból í Dýrafirði, Dynjandi, Borg, Skjaldfönn og Rauðstaði í Arnarfirði fyrir 24 hundruð í Valþjófsdal og 20 hundruð í Hjarðardal í önundarfirði, svo og hálfa Alviðru i Dýrafirði, og það, sem jarðir þær, er biskup fær, eru ódýrari, gefr hann kvitt sökum þess, að þau hjón Fúsi og Ólöf hafi jafnan verið sér og dómkirkjunni til styrks og hjálpar, gagns og góða, og lofi svo að vera framvegis.
Kaupmálabréf Andrésar Björnssonar og Guðlaugar Jónsdóttur.
Loptr prestr Pétursson ættleiðir, með samþykki Péturs Loptssonar föður síns, börn sín Arngrím, Jón, Pál, Sigríði og Helgu.
Vitnisburður, að Ögmundr Skálholtsbiskup „góðrar minningar" hafi gefið Jörundi Steinmóðarsyni og börnum hans 3. Júlí 1537 aptr þá peninga, sem hann hafði brotið af sér með misferlum sinum við biskup og kirkjuna, og lofaði að útvega einnig konungshlutann.
Jón biskup á Hólum selr Brandi Helgasyni jörð Hóladómkirkju Holt í Svarfaðardal, og gefr Brandr kvitta ákœru upp á jörðina Tungu í Fljótum.
Vitnisburðr, að Jón Narfason festi sér til eiginkonu Sesseliu Bassadóttur.
Bárður prestr Pétrsson, prófastr millum Langaness og Hvitaness, afleysir Jón Narfason og Settceliu Bassadóttur af 5. barneign.
Jón prestr Filippusson, prófastr í Eyjafirði, kvittar Björn Þorvaldsson af tveimur barneignum með Guðrúnu Sigfúsdóttur.
Jón prestr Eiríksson, prófastr og almennilegr dómari yfir öllum kirkjunnar málum millum Geirhólms og Hvítaness, afleysir Bjarna Jónsson af einföldu hórdómsbroti með Ingibjörgu Ormsdóttur en þau eru að þriðja manni og fjórða.
Þorgils prestr Nikulásson, prófastr i milli Hvítaness og Langaness, afleysir Jón murta Narfason og Sesseliu Bersadóttur af 4 barneignum.
Dómur sex manna út nefndr af Ólafi Guðmundssyni, kongs umboðsmanni milli Geirhólms og Langaness, um framfæri Jóns Jónssonar.
Pétr bóndi Loptsson selr Birni bónda Þorleifssyni jörðina Heydal og hálfa Skálavík í Mjóafirði fyrir hálfar Akreyjar í Skarðs kirkjusókn, með fleira fororði , er bréfið hermir.
Árni Jónsson á Bjargi i Miðfirði vottar um það, að Sigmundr prestr Steindórsson hafi kjörið Bergljótu dóttur sína málakonu í garð Guðmundar Ólafssonar, þegar kaup þeirra tókust, og að Guðmundr hafi sett Bergljótu hálfa Reyki í Miðfirði í mála hennar.
Jón biskup á Hólum, er þá var kongs umboðsmaðr bæði í Vöðluþingi og Þingeyjarþingi, selr Bessa Þorlákssyni jarðirnar Sigurðarstaði, Sandvík, Haldórustaði, Jarlslaði, Minni Völlu og Kálfborgará í Bárðardal, Skarð í Fnjóskadal og Björk í Eyjafirði, fyrir hálfa Anastaði, hálft Skarð og fimm hundruð í Kárastöðum á Vatnsnesi og hálfa jörðina Samtýni í Kræklingahlíð, með fleirum greinum, er bréfið hermir.
Bjarni Vigfússon fær Ögmundi biskupi í Skálholti til fullrar eignar alla jörðina Hamar í Borgarhrepp og lofar að Selja biskupi fyrstum aðrar jarðir sínar og týi, en Bjarni skal í mót kvittr um sakferli sín og fornan reikningskap Borgarkirkju, er honum bar til að svara; er síra Freysteinn Grímsson við kaupið fyrir hönd biskups.
Jón biskup á Hólum fær „vorum kæra frænda“ síra Birni Jónssyni til fullrar eignar jörðina fremra Núp í Núpsdal með alkirkjuskyld og setr máldaga fyrir kirkjunni.
Kaupbréf þeirra Jóns biskups Arasonar og Bjarna Skúlasonar um Skálá i Sléttahlíð, með tilgreindum reka (Falsbréf).