Arkivverket
Den Arnamagnæanske Samling
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Reykjavík: 7446 documents
(1329 documents in progress, 1829 done, 40 left)
Peningaskiptabréf þeirra Björns Guðnasonar og Kristínar Sumarliðadóttur
eftir Jón (dan) Björnsson, eiginmann hennar, andaðan. Lögðu þau
alla peninga fasta og lausa, kvika og dauða, fríða og ófríða til helminga. Tristram Búason og Björn Ólafsson votta einnig
handaband Kristínar og Björns um samninginn (DI VIII:217).
Vitnisburður fjögurra manna um útgreiðslu Björns Þorleifssonar til
Gottskálks biskups á hundrað hundraða skuld til Hans Kurkugh í Noregi,
og hafði Krukugh lánað Birni það fé.
Lýsing Markúsar prests Árnasonar um greiðslur Björns Þorleifssonar til Guðna Jónssonar
fyrir atvist og fylgi að vígi Páls heitins Jónssonar.
Lýsing Jóns Gamlasonar um greiðslur Björns Þorleifssonar til Guðna Jónssönar í „hugmót" og sakeyri fyrir það, að Björn var með Eiríki Haldórssyni í flokk og fylgi, þá er Páll heitinn Jónsson var ófyrirsynju í hel sleginn.
Lýsing Eyvindar Guðmundssonar um greiðslur Björns Þorleifssonar til Guðna Jónssonar fyrir atvist og fylgi að vígi Páls heitins Jónssonar.
Stefán biskup í Skálholti afleysir Björn Þorleifsson og Ingibjörgu Pálsdóttur um allt það sem þau hafa brotleg
orðið hér við guð og menn og dispensar með þeim um hjónaband þeirra og fastnar Björn Ingibjörgu á nýjaleik.
Vitnisburðarbréf um það að Ingvildur Helgadóttir hafi skilið sér aðra jörð jafngóða eða þá peninga, sem henni líkaði
að taka, móti jörðinni Hvítárbakka í Borgarfirði, er hún fékk Einari Björnssyni og Sigurður Daðason varð vitni að.
Eiríkur Þorsteinsson kvittar Þórarin Jónsson fyrir andvirði jarðarinnar Gils í Borgarþingum Skagafirði.
Magnús Hallsson gefur Bessa Þorláksson kvittan um allar vígbætur eftir Hall Magnússon.
Sáttarbréf þeirra Vigfúsar og Þorvarðs Erlendssona og Einars Eyjólfssonar, vegna Hólmfríðar
Erlendsdóttur, við Grím Pálsson og sonu hans um Möðruvallaeignir.
Vitnisburðarbréf um lýsing Gríms Pálssonar, á hvern hátt hann gengi af Möðruvöllum í Eyjafirði, er Gottskálk biskup
vildi fá hann til að játa þeim eignum undan sér.
Vitnisburðarbréf að Finnbogi lögmaður Jónsson las upp og lét lesa bréf og skilríki um Grund í Eyjafirði og lagði upp lög og dóm
fyrir jörðina og alla peninga fasta og lausa, sem hann reiknaði sér (til arfs) fallið hafa eftir Guðríði dóttur sína.
Alþingisdómur útnefndur af Þorvarði lögmanni Erlendssyni um konungsbréf (AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVIII,10) upp á arftökuréttarbót og um Möðruvallaarf, að Grímur Pálsson afhendi hann (sjá DI VIII nr. 147).
Bréf borgarstjóra og ráðsmanna í Hamborg til Vigfúsar hirðstjóra Erlendssonar um borgun fyrir 12 lestir íslenskrar
skreiðar sem ganga áttu til Kristjáns konungs en kaupsamningurinn hafði gerst mili Vigfúsar og Dankquard Smíjd, Clawes
Schomaker, Hermen Moysan og Jacob Prütze og átti að afhenda þeim hana á Íslandi. Lofa Hamborgarar að greiða andvirði skreiðarinnar
þegar þeir fái fulla vissu frá Vigfúsi um hvað mikil skreið verði í té látin (DI VIII:203-204).
Þorvarður príor af Skriðuklaustri selur Þorvarði bónda Bjarnasyni jarðirnar Eyvindará og Mýnes á Útmannasveit
með fleiri jörðum fyrir jarðirnar Meðalnes og Birnufell í Fellum og aðrar tilgreindar jarðir.
Stefán biskup vottar bréfið einnig og setur sitt innsigli fyrir.
Vitnisburðarbréf um samtal þeirra Einars Oddssonar og Björns Guðnasonar bónda um grip á eignum Einars er hann bar á Björn,
en Björn þóttist hafa heimildir Einars fyrir.
Helmingalagsbréf Björns Guðnasonar og Ragnhildar Bjarnadóttur konu hans.
Ólafur Guðmundsson, Helgi Jónsson, Jón Sighvatsson, Loftur Guðmundsson og Guðmundur Sigurðsson votta transskriptið.
Vitnisburður tveggja manna að Hrafn lögmaður Brandsson hafi á Leiðarhólmi úrskurðað löglega ættleiðing Stepháns Loptssonar,
en ónýt skjöl Jóns Sigmundssonar.
Vigfús hirðstjóri Erlendsson veitir Þorsteini Finnbogasyni sýslu á milli Vargjár og Úlfdalafjalla.
Bréf Kristjáns konungs hins annars þar sem hann staðfestir og samþykkir, að allar réttarbætur þær,
er Hákon konungur hinn heilagi (Hákon háleggur) gaf út, skuli ganga sem lög um allt Noregsveldi
og í löndum sem undir Noregsveldi liggja, jafnt Ísland, Hjaltland og Færeyjar (DI VIII:171-172).
Íslenskar þýðingar Þorvarðs Erlendssonar lögmanns og Árna Oddssonar lögmanns eru
til í nokkrum transkriptum (DI VIII:173-175).
Vitnisburður að Eiríkur Þorsteinsson hafi selt Þórarni Jónssyni jörðina Gil í Borgarþingum í Skagafirði
fyrir þrjá tigi hundraða.
Narfi príor á Skriðuklaustri kvittar Vigfús bónda Erlendsson um andvirði jarðarinnar Yztaskála undir Eyjafjöllum.
Gottskálk biskup á Hólum skipar síra Sigmundi Guðmundssyni þing um allan Öxarfjörð um næstu 12 mánuði og það lengur sem hann gerir ekki aðra skipun á.
Vitnisburður sex manna um að Björn Guðnason hafi staðið síra Grími Þorsteinssyni officialis Skálholtskirkju í
Vestfjörðum, reikningsskap Vatnsfjarðarkirkju upp á 120 vetur en eftir reikninginn staðinn hafi Stephán biskup
í Skálholti tekið af honum stað þenna löglaust og með ofríki, sett Björn og fólk hans í bann og út af heilögu
sakramenti svo að Björn varð að lofa að ganga frá garðinum.
Sjö þjónar Hans biskups í Björgvin votta að Björn Þorleifsson hafi „þjónað
í garði“ saman með sér sem „einn dándisveinn“ og má hann skírskota til þeirra um framferði sitt ef á þarf að halda (DI VIII:85).
Hans biskup í Björgvin lýsir því að Björn Þorleifsson hafi þjónað sér sem trúr dandisveinn þann tíma sem hann hefir verið í sinni þjónustu, tekur hann í vernd sína og heilagrar kirkju og gefur honum meðmæli til allra góðra manna, einkanlega til fógeta konungs og umboðsmanna.
Bréf um kaupmála Þorsteins Finnbogasonar og Cecilíu Torfadóttur.
Dómur sex manna útnefndur af Finnboga Jónssyni lögmanni um kröfu hans til Þorgríms Björnssonar upp á jörðina Haga í Árskógssókn, er Eiríkur Loptsson hafði átt, síðan Sveinn Sumarliðason, sonarsonur Eiríks, þá Guðrún dóttir hans, því næst Guðríður Finnbogadóttir, og nú taldi Finnbogi lögmaður sér.
Sundurskorið bréf, vinstri helmingur.
Dómur útnefndur af Finnboga Jónssyni að Bessi Þorláksson sé ferjandi og flytjandi fram til Noregs á kóngsins náðir, þar hann hafði fullu bætt og sátt gert við Magnús Hallsson um víg Halls Magnússonar, sonar hans, er Bessi hafði að ófyrirsynju slegið í hel slegið.
Dómur útnefndur af Birni Guðnasyni um áskilnað Guðna Jónssonar og Tómasar Jónssonar út af hval sem rak á Kirkjubóli í Skutulsfirði, þá er Tómas hafði jörðina á leigu, en Tómas hafði tekið hvalinn með sér.
Björn Þorleifsson selur Hans Kruckugh og Sunnifu hústrú konu hans jarðirnar Stað í Aðalvik, Skáladal, Reykjarfjörð,
Hesteyri og tvær eyðijarðir á Ströndum hjá Draungum fyrir sex hundruð berena gyllini, með öðrum greinum, er bréfið hermir.
Jón prestur Jónsson tekur, í umboði Ólafs Gilssonar prófasts á Ströndum, bókareið af Jóni Dagstyggssyni um það að hann hafi aldrei hnykkt eða jarðvarpað, slegið eða dregið Einar heitinn Bjarnason, og að engri sinni tilverkan hefði Einar þurft að flýja samvistir við Þórkötlu konu sína og aldrei hafi hann veitt Jóni bróður sínum högg né slög síðan þeir voru í úr barnæsku.
Dómur tveggja presta og fjögurra leikmanna út nefndr af síra Ólafi Gilssyni, prófasti og almennilegum dómara milli Gilsfjarðar og Hrútafjarðarár, um ákærur Ólafs prests til Jóns Dagstyggssonar fyrir það, að hann hefði sundrað samvistum Einars heitins Bjarnarsonar og Þórkötlu Arnadóttur, og lagt heiptugar hendur á Jón Dagstyggsson bróður sinn.
Vígslu- og aflátsbréf kirkjunnar á Álptamýri í Arnarfirði útgefið af Stepháni biskupi.
Einar Hálfdánarson selur Pétri bónda Loptssyni hálfa jörðina Ytradal í Eyjafirði og hálft Kambfell fyrir alls fjóra tigi
hundraða og jörðina Geldingsá á Svalbarðsströnd með þeirri grein, er bréfið hermir.
Hans Dana og Norðmanna konungr gefur Vigfúsi Erlendssyni landsvistarbréf fyrir handarafhögg á Halli Brandssyni.
Hans Dana og Norðmanna konungr gefur Birni Þorleifssyni landsvistar og griðabréf um atvist hans með Eiriki Halldórssyni að vígi Páls Jónssonar (1496).
Helgi Gíslason selur Jóni Erlingssyni jörðina Deildará á Skálmarnesi fyrir tuttugu hundruð í lausafé.
Vitnisburður, að Einar Einarsson hafi slegið Einar Oddsson föður sinn liggjandi í sænginni og hrækt i andlit honum, og
aldrei hafi þeir um það sæzt, og aldrei sagðist Einar Oddsson gefa Einari syni sínum jörðina Arnbjargarlæk, nema hann færi að sínum ráðum.
Jón Ásgrímsson selur Helga Ásgrímssyni jarðirnar Sirisstaði, Bitru og Haus (Háhús) í Kræklingahlíð fyrir hálfar jarðirnar
Voga við Mývatn, Breiðamýri í Reykjadal og Bjarnastaði í Bárðardal.
Jón Ásgrímsson selur Helga Ásgrímssyni jarðirnar Sirisstaði, Bitru og Haus (Háhús) í Kræklingahlíð fyrir hálfar jarðirnar
Voga við Mývatn, Breiðamýri í Reykjadal og Bjarnastaði í Bárðardal.
Uppskrift fimm bréfa með vottun um að Pétur Sigfússon og Þorlákur Ögmundarson hafa séð bréfin og lesið yfir. Frumrit bréfanna eru ekki varðveitt. (1504)
Klemens, Jón og Sveinn Þorsteinssynir lýsa því, að þeir hafi selt Birni Guðnasyni jörðina Hvallátr í Mjóafirði
í Vatnsfjarðarþingum, og kvitta hann um andvirðið.
Dómur sex manna útnefndur af Birni Guðnasyni sýslumanni milli Geirhóls og Langaness um tíundarhald Einars Sveinssonar í þrenna tólfmánuði, og dæma þar allt fé hans ótíundað fallið undir kóng og biskup.
Dómur útnefndur af Guðna Jónsssyni, konungs umboðsmanni milli Geirhólms og Hrútafjarðarár, um ákærur Jóns murta Einarssonar til Jóns Hallvarðssonar um ásetu hans og búnað að Kirkjubóli í Steingrímsfirði.
Kæi van Aneffelde hirðstjóri gefur Birni Þorleifssyni frið og félegan dag til næsta Öxarárþings, utan lands og innan, um atvist að vígi Páls Jónssonar (1496), þar til hann eða umboðsmenn hans komast á konungs fund (DI VII:701).
Kieghe van Aneffelde hirðstjóri meðkennir að hann hafi tekið til láns af Stefáni biskupi þrjár lestir skreiðar af þeim peningum sem príor Atzerus Iguari hefur safnað vegna heilagrar Rómakirkju í Skálholtsbiskupsdæmi til forþénanar hins rómverska aflátsins, og lofar að greiða þær skilvíslega umboðsmanni heilagrar Rómakirkju.
Vitnisburðarbréf um viðtal þeirra Björns Þorleifssonar
og Jóns dans Björnssonar um Reykhóla, og um
yfirgang Jóns á Reykhólum (DI VII:653).
Kæi fan Ánifell hirðstjóri veitir Birni Guðnasyni sýslu milli Geirhólms og Langaness (DI VII:644).
Page 19 of 149