Arkivverket
Den Arnamagnæanske Samling
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Reykjavík: 7446 documents
(1329 documents in progress, 1820 done, 40 left)
Steinmóður ábóti í Viðey og Jón Narfason votta að Ólöf Loftsdóttir fékk Gerrek gullsmið í Hafnarfirði gull og silfur er skyldi koma upp í jarðir Guðmundar Arasonar er Björn Þorleifsson hafði keypt, og lofaði Gerrek að fá konungi þessa peninga fyrir hönd Björns og Ólafar.
Margrét Gamladóttir lýsir því að hún hafi sagt nei þar til að séra Jón Pálsson skyldi eiga nokkurt veð í jörðina Klifshaga, þá er hann seldi Þórði Magnússyni bónda hennar.
Helgi prestur Magnússon gefur Stulla Magnússyni bróður sínum
til fullrar eignar jörðina Eyrarland í Eyjafirði.
Jón Ólason selr Einari ábóta og klaustrinu á Munkaþverá jörðina á Stokkahlöðum í Eyjafirði með fjórðungskirkju skyld og
lambsfóðri til klaustrsins, en ábóti leggr í mót jarðirnar Snartarstaði og Brekku í Núpasveit, fráskilur allan reka, en áskilr
klaustrinu skipstöðu í Snartarstaði og hússtöðu og eldivið í Brekku og segir þar til bænhússkyldar; hér til leggr ábóti tuttugu hundruð í lausafé.
Samningur Eyjólfs bónda Arnfinnssonar og Odds bónda þorkelssonar um arf þann, er Eyjólfi hafði fallið eptir Guðrúnu
Arnfinnsdóttur systur sína.
Henrik Kepken, umboðsmaðr Kristjáns konungs hins fyrsta.
kvittar Björn Þorleifsson hirðstjóra sunnan og austan á Íslandi
fyrir hálfu öðru hundraði nóbila og þrettán betur, er Björn geldur
sem fyrsta sal upp í eignir Guðinundar Arasonar.
Skiptabréf Margrétar Vigfúsdóttur með Ingibjörgu, Guðríði og Ragnhildi dætrum sínum.
Skúli Loftsson selur Birni bónda Þorleifssyni jörðina Hlíð í Bolungarvík fyrir Meira-Vatn í Skagafirði.
Vitnisburður Magnúsar Eyjólfssonar og Halldórs Þorkelssonar um landamerki Hóls í Kinn og Garðshorns, þá er Hrafn Guðmundsson átti þær og endranær.
Erlendur Gunnlaugsson selur Bjarna Ólasyni og konu hans Margréti Ólafsdóttur jörðina Öxará í Ljósavatnskirkjusókn.
Kaupmálabréf Andrésar Guðmundssonar og Þorbjargar Ólafsdóttur.
Samningur milli Þorleifs Björnssonar og Stepháns Jónssonar, þar
sem Stephán handlagði Þorleifi alla peninga eptir Jón Jónsson
bróður sinn prest í Hruna, er þó að vísu voru brotnir við heilaga kirkju; skilur Stephán sér æfinlegt framfæri hjá Þorleifi, og
að Þorleifr útvegi hjá réttlegum Skálholtsbiskupi, þegar hann
komi, prestakall handa Þorleifi syni sínum.
Þrír prestar og þrír leikmenn votta, að junkæri Þorleifur Björnsson
hafi afhent Hrunastað, svo að Andrési Grænlendingabiskupi og
umboðsmanni Skálholtskirkju vel ánægði, og kvittaði biskup Þorleif með öllu.
Einar Markússon og Gró Jónsdóttir kona hans selja hústrú Ólofu
Loptsdóttur og Birni Þorleifssyni jörðina Árnardal hinn meira
frá teknum sex hundruðum, er seld voru áður Jóni Erlingssyni,
fyrir jörðina Hanhól í Bolungarvík og þar til átta kúgildi.
Haukur bóndi Einarsson selur Birni bónda Þorleifssyni jarðirnar
Hvassafell í Norðrárdal, Grjót í Þverárhlíð og Háfafell í Dölum fyrir það, sem Björn bóndi átti í Tungufelli í Hreppum,
Jörðina Minni-Brú í Grímsnesi og enn tuttugu hundraða jörð.
Halldór Sveinsson selr Þórkatli Einarssyni Hjarðardal enn
femra í Dýrafirði hálfau »milli Skolladalsár og Hjarðardalslækjar«, og kvittar fyrir andvirðið.
Ólafur prestur Tumason lofar Jóni Sveinssyni fyrstum kaupi á
Eyri í Bitru, ef Björn bóndi þorleifsson lofi og samþykki það.
Ragna Auðunardóttir selr Birni bónda jporleifssyni fjóra tigi
hundraða í jörðuuni Alptanesi á Mýrum fyrir þrjátigi hundraða jörð eða tuttugu og fjögurra huiidraða jörð og sex kúgildi; skyldi kaupið óbrigðilegt, ef »minn herra kong Kristiern
vill láta það kaup haldast, er Vermundr Kolbeinsson kallaðist hafa keypt við hann.
Jón Jónsson selur Jóni Sigmundssyni hálfa jörðina Lundarbrekku í Bárðardal fyrir hálfa jörðina Reistará á syðri Galmarsströnd og þar til sextán kúgildi og hest.
Margrét Ólafsdóttir (Loftssonar) gefur Jón Ólafsson bróður sinn kvittan um allan föðurarf sinn og umboð allra sinna peninga.
Afrit tveggja bréfa sem tengjast Teiti Gunnlaugssyni.
1. Alþingisdómur tólf manna útnefndur af Birni Þorleifssyni hirðstjóra sunnan og austan á Íslandi, að Teitur Gunnlaugsson sé skyldur að hylla Kristján konung hinn fyrsta, en laus við Eirík konung (af Pommern).
2. Kvittunarbréf Björns Þorleifssonar hirðstjóra til Teits Gunnlaugssonar um sakir hans við Kristján konung hinn fyrsta.
Einar Markússon og kona hans Gró selja Jóni Erlingssyni og konu hans Ingibjörgu sex hundruð í jörðunni Arnardal hinum neðra í Skutilsfirði fyrir tólf hundruð í ganganda fé og lausafé, og lýsir Einar landamerkjum.
Jón Þórðarson selur Birni bónda Þorleifssyni jörðina Norðtungu í Borgarfirði fyrir sextíu hundruð og geldur Björn í mót jörðina Skuggabjörg í Deildardal fyrir tuttugu hundruð og fjörutíu hundruð í vel virðu góssi.
Halldór Sveinsson handleggur Þorkatli Einarssyni þann part úr jörðunni Fremra-Hjarðardal í Dýrafirði er Páll bróðir hans handlagði honum, og þar til málnytukúgildi og hundrað ófrítt, gegn hálfu átta hundraði í jörðunni Tungumúla á Barðaströnd.
Barbara abbadís á Stað í Keyninesi selr Ólafi bónda Grímssyni jörðina
Brúarland bálft í Deildardal fyrir Syðra-Vatn í
Tungusveit.
Vottorð fjögurra manna, að Jón Nikulásson hafi lýst eigö
sinni á nokkrum ánefndum jörðum í ísafjarðarsýslu og fyrirboðið hverjum manni hald á þeim eða nökkur skipti á þær
láta ganga, þá féskipti var gert eptir Kristínu Björnsdóttur.
Kaupmálabréf Eindriða Jónssonar og Ingibjargar Pálsdóttur.
Hafliði ívarsson fær Birni þorleifssyni til fullrar sóknar og
eptirkæru alla þá peninga, sem Haíliða höfðu fallið eptir ívar
föður sinn, og Einar Bessason hafði að sér tekið; var þar í
jörðin Auðólfsstaðir; skildi Björn sér þessa peninga hálfa til
eignar, en hálfa Auðólfsstaði til lausnar.
Þórður Sigurðsson og Ingibjörg Halldórsdóttir kona hans gefa Halldóri Hákonarsyni alla þá tiltölu og eign, hvort það er meira eða minna, er þau þóttust eiga í Kirkjubóli í Valþjóðfdal, til æfinlegrar eignar.
Afrit af bréfi fjögurra manna sem votta að Oddur Ásmundsson fékk Torfa Arasyni hirðstjóra part úr Þorleiksstöðum í Skagafirði fyrir það að hann útvegaði Oddi lögmannsbréf frá konguni. Guðlaug Finnbogadóttir eiginkona Odds samþykkir gjörninginn.
Gottskálk Keniksson biskup á Hólum selur Ásgrími Þorkelssyni jörð Hólastaðar er heitir Haganes við Mývatn fyrir Steinnýjarstaði á Skagaströnd.
Solveig Þorleifsdóttir selur Gottskálki biskupi á Hólum jörðina Núpdalstungu í Núpsdal fyrir gangandi fé og lausafé.
Helmingarfélagskaupmáli Jóns Alexíussonar og Bergljótar Jónsdóttur.
Guðmundur Björgólfsson og Ragnheiður Þorvarðsdóttir kona hans selja Birni bónda Þorleifssyni jörðina Skarð í Fagranesþingum með teigi í Veðramóts jörð fyrir tuttugu hundraða jörð og þar til tíu hundruð.
Samningur þeirra Jóns Sigmundssonar og Runólfs Höskuldssonar um Ásskóg, er Jón eignaði jörðunni Vindheimum á Þelamörk.
Skúli Loptsson selur Sigmundi Einarssyni jörðina Silfrastaði í
Skagafirði fyrir Álfgeirsvelli, Gegnishól og Yzta-Gil í Langadal.
Kaupmálabréf Indriða Hákonarsonar og Guðrúnar Gísladóttur.
Gottskálk biskup á Hólum og administrator heilagrar Skálholtskirkju veitir hverjum þeim fjörutíu daga aflát, er með góðfýsi sækja til kirkju heilags Ólafs kongs í Vatnsfirði á tilgreindum helgidögum eða leggi kirkjunni lið, og svo fyrir
ýmsa aðra guðrækni.
Kristín Björnsdóttir (Vatnsfjarðar-Kristín) gefur Ólafi Jónssyni jörðina alla Reykjafjörð í Arnarfirði í þjónustulaun hans um tíu ár.
Þrír menn votta að Skúli Loftsson hafi uppboðið, reiknað og sýnt það fé, að upphæð sextíu hundruð, er hann lét meta í fardögum og bauð erfingjum Gunnlaugs Guðmundssonar fyrir Uppsali í Skagafirði og kallaði þá jörðina sína eign.
Kaupmálabréf Guðmundar Sigurðssonar og Guðnýjar Þorsteinsdóttur.
Ólafur Jónsson kvittar síra Bjarna Sigurðsson fyrir andvirði þess hluta í Krossadal í Tálknafirði er Ólafur bar til erfðar eftir Jón Halldórsson föður sinn.
Vitnisburður Ljóts Helgasonar prests að Jón biskup Gerreksson hafi, þegar hann var í vísitasíu sinni á Reyhólum (1432), skipað sveinum sínum eftir beiðni Gissurar Runólfssonar að gera Filippusi Sigurðssyni einhverja ólukku, en þegar þess var getið að Filippus væri kominn í kirkju hafi biskup skipað sveinum sínum að taka hann þaðan því að hann skyldi hreinsa kirkjuna á morgun þótt hún væri saurguð í kvöld.
Halldóra Helgadóttir selur Þórði Helgasyni bróður sínum þann part í jörðinni Staðarfelli á Meðalfellsströnd sem hún átti en Þórður gefur í mót jörðina Hellu í Staðarfellsþingum, að frá skildri selveiði, og kvittar Halldóra hann fyrir andvirðinu.
Kaupmálabréf Þorkels Einarssonar og Ólofar Narfadóttur.
Fimm prestar transskríbera transskript frá 18. Febrúar 1443 af
tveim bréfum frá 14. öld og einu frá 15. öld.
Tveir menn votta, að Oddr Þórðarson (leppur) hafi erft eptir
föður sinn (Þórð Flosason) og Erlend bróður sinn jarðirnar
Ós, Klungrbrekku, Langadal hinn litla, Vörðufell og Bílduhvol
og alla hólma fyrir Skógarströnd íyrir innan Strauma, og hafi
verið kölluð Kongslönd, og hafi Oddr haldið þessum eignum
til deyjanda dags.
Eftir AM 479: Ólafur bóndi Vigfússon keypti að Eiríki Ísleifssyni land í Auðbrekku fyrir Öngulstaði /:ítök og tökur nefnast/: með fjóra tígi hundraða milligjöf. Kaupvottar Bergur Þorvaldsson, Eiríkur Þorvarðsson [prestar, Eyjólfur Arnfinnsson, Ásgrímur Bjarnason, Hákon Helgason, Þorsteinn Sumarliðason]. Bréf þetta er ódaterað en transskriptarbréf þess er skrifað á Möðruvöllum í Hörgárdal mánudaginn næsta eftir krossmessu um vorið [þ.e. 5. maí 1449].
Tveir menn votta, að Þorkell prestur Guðbjartsson hafi fyrir
einu ári selt Ásgrími Jónssyni jörðiua Lundarbrekku í Bárðardal
fyrir jarðirnar Höskuldstaði og Hól í Helgastaðaþingum og
Haga í Grenjaðarstaðaþingum.
Gottskálk biskup á Hólum selur þorkeli presti Guðbjartssyni
jarðirnar hvortveggja Neslönd við Mývatn og Brettingsstaði i
Laxárdal fyrir jörðina á Sandi í Aðaldal og þar með rekapart
fyrir austan fljótsós, er fylgt hefir Bjarga landi, og ennfremur
jörð á Brekkum í Reykjahverfi.
Page 25 of 149