Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 721 documents
(9 documents in progress, 0 done, 712 left)
Sigmundur Steindórsson selur Bergljótu Sigmundsdóttur dóttur sinni 35 hundruð í jörðinni Bjargi í Miðfirði fyrir Hvarf í Víðidal.
Gunnar Jónsson prestur vottar, að Þorleifur Árnason heitinn hafi sjúkur á líkama, en heill að skynsemi, gert sitt testamentum, og hafi hann þá gefið með endurnýjuðum gerningi Þorgerði Hallsdóttur Vatn eða Merkigil, hvort sem hún heldur vildi, og þar til tíu kúgildi.
Brynjólfur Magnússon selur Þorsteini Þorkelssyni jörðina Vatnsleysu í Draflastaðaþingum fyrir tólf hundruð í lausafé, en Brynjólfur skyldi sér skógarpart upp í jörðina og skýrir frá landamerkjum.
Gunnlaugur Þorkelsson fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagi Hólakirkju til ævinlegrar eignar jörðina Brimnes í Svarfaðardal ítöluslausa og með reka, en Ólafur biskup leggur á mót partinn í Tungu í Vatnsdal í Grímstungnaþingum.
Böðvar Finnsson lýkur heilagri Hólakirkju til ævinlegrar eignar jörðina Þverá í Svarfaðardal, 24 hundruð að dýrleika, í fullrétti, er hann varð kirkjunni skyldugur eftir tólf presta dómi.
Vitnisburður, að Árni Höskuldsson gerði testament sitt sjúkur á líkama, en heill að viti, og lukti kirkjunni í Núpufelli í reikning sinn hálfa jörðina Gilsá í Eyjafirði, en hálfa gaf hann Indriða Árnasyni syni sínum, og skyldi Höskuldur Árnason þá eiga lausn á allri jörðinni.
Tylftardómur klerka útnefndur af Sigurði Þorlákssyni officialis um kæru hans til séra Jóns Þorvaldssonar um prímsigning heiðins barns "fyrir utan alla bevísing að vakta efni eða atferli", um að hafa messað yfir og samneytt forboðuðum manni, um tíunda aðtekt og fyrir að hafa farið burt af þingum sínum orlofslaust.
Runólfur Guðmundsson selur Símoni Pálssyni jörðina Skinnþúfu fyrir 20 hundruð í lausafé.
Tylftardómur klerka útnefndur af séra Sveinbirni Þórðarsyni, officialis fyrir norðan Öxnadalsheiði, um ákæru séra Ketils Grímólfssonar til Magnúsar Þorkelssonar, "er umboðsmann var barna sinna, er erft höfðu séra Þorkel Guðbjartsson að þriðjungi", um fyrnd á stað og kirkju í Laufási upp á hálfan fjórða tug vetra, er séra Þorkell, faðir Magnúisar, hafði haldið staðinn.
Sigurður Þorláksson officialis úrskurðar löglegan Blákápuselsdóm (DI VI, nr. 434).
Tylftardómur presta útnefndur af séra Sigurði Þorlákssyni, officialis fyrir vestan Öxnadalsheiði, um ákæru Hrafns Halldórssonar, í umboði nefnds séra Sigurðar til Böðvars Finnssonar, að hann hefði selt selland kirkjunnar á Barði í Fljótum, er heitir Blákápusel.
Vitnisburður þriggja manna um samning þeirra Magnúsar Þorkelssonar, vegna Kristínar Eyjólfsdóttur, konu sinnar, og Guðrúnar Gunnlaugsdóttur um arf eftir Eyjólf Arnfinnsson heitinn.
Benedikt Sæmundsson selur með upplagi og samþykki Sigríðar Hallsdóttur konu sinnar séra Ögmundi Andréssyni 15 hundruð í jörðinni Borgarhöfn í Kálfafellskirkjusókn fyrir 20 hundruð í lausafé.
Hallsteinn Þorsteinsson gefur aftur í vald Benedikts Sæmundssonar það sama lögveð, sem hann hafði lagt upp í fimmtán hundruð í Borgarhöfn í Hornafirði, en Benedikt gefur hann kvittan um meðferð og byggingu á Borgarhöfn með fleira skilorði, er bréfið greinir.
Kvittunarbréf til handa Einari Ísleifssyni ábóta á Munkaþverá um jarðirnar Ærlæk í Öxarfirði og Efri-Hóla í Núpasveit.
Bréf Gauta Ívarssonar erkibiskups í Niðarósi til manna í Hólabiskupsdæmi, að allir þeir, er vörslur hafi á hálfkirkjum sé skyldir að gera biskupi reikningsskap af þeim, en Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup hafði kært málið fyrir erkibiskupi.
Vitnisburðarbréf, að Magnús Þorgrímsson djákni og Una Þorgrímsdóttir systir hans hafi samþykkt allan skilmála Magnúsar Jónssonar og Margrétar Finnbjarnardóttur móður þeirra um jörðina Skóga í Öxarfirði.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lýkur séra Katli Grímólfssyni jörðina Bakka í Ólafsfirði í ráðsmannskaup fyrir fimm hundruð.
Vitnisburðarbréf, að Árni Þorleifsson handleggur Þorgerði Hallsdóttur, konu Símonar Pálssonar, jörðina Merkigil í Eystrumdölum til fullrar eignar eftir gjöf Þorleifs Árnasonar föður síns.
Kolli Magnússon fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Vatnsenda í Ljósavatnsþingum með fimm málnytukúgildum til fullrar eignar fyrir þann reikningsskap, er Kolli varð biskupi skyldugur fyrir brytastarf.
1) Guðmundur Skúlason prestur lýkur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Syðra-Holt í Svarfaðardal fyrir þær skuldir og reikningsskap, er hann átti að svara upp á sinn part fyrir Skúla Loftsson föður sinn, sem hann var skyldugur biskupinum í tíundir og útlausnir upp á langa tíma, svo og fyrir þær skuldir, er séra Guðmudnur átti að gjalda biskupinum fyrir sjálfan sig. 1. mars 1481. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 27. amí 1491.
1) Dómur Jóns Sigmundssonar kóngs umboðsmanns í Vöðuþingi um peninga Bjarna Ólasonar í Hvassafelli. 24. maí 1481. 2) Transskrift af dómi Jóns Sigmundssonar um Bjarna Ólason frá 24. maí 1481. 24. mars 1489.
Vitnisburður fimm presta um það, að Bjarni Ólason hafi lýst því, að hann hefði haft nógan mat og klæði, síðan hann kom undir kirkjunnar vald, nema fastað annan hvern dag um jólaföstu, en annan hvern étið fisk.
Dómur tólf presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, að Bjarni Ólason, sé skyldur að halda þær skriftir, er honum verði settar af biskupi og hann sé maður til að bera, og að allt hálft fé hans sé fallið undir Ólaf biskup og heilaga kirkju.
Vitnisburðarbréf 24 presta um mótblástur, hugmóð og forþrot Hrafns Brandssonar lögmanns við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup.
Bréf tólf klerka í Hólabiskupsdæmi um ágreining biskups og leikmanna um kirknamál.
Vitnisburðarbréf ellefu klerka um mótfall Hrafns Brandssonar lögmanns og lögréttumanna við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup frammi haft í lögréttu á Öxarárþingi með harki og háreysti og lemjandi höndum, og höstuðu þeir biskup út af lögréttunni og sögðu, að hann ætti ekki að vera þar.
Þrír prestar og einn leikmaður votta, að Hrafn Brandsson beiddist lausnar af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi af forboði því, er biskup hafði sett hann í heilagrar kirkju vegna, og sagðist biskup vilja leysa hann, þá er hann skilaði aftur Randíði Bjarnadóttur, sem Bjarni Ólason faðir hennar hefði legið með, og skyldi það gert fyrir langaföstu (þ.e. 18. febrúar).
Sjö prestar og tveir leikmenn votta, að Hrafn Brandsson lýsti því, að hann lofaði ekki að halda Viðvíkurdóm um hálfkirknareikninga, heldur bannaði öðrum að gera Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi reikninga af þeirra hálfkirkjum, og bannaði prestum að ganga dóma, er biskup tilnefndi þá um kirkjunnar mál.
Dómur átján presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, um kærur biskups til Hrafns Brandssonar, að hann vildi eigi gera biskupi reikning af hálfkirkjunni í Skriðu, og að hann hefði veitt sér mótblástur og mótikast, svo að hann hefði bannað öðrum í sínu lögdæmi að gera biskupi hálfkirknareikninga.
1) Dómur átján presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, um ákæru biskups til þeirra bræðra Hrafns Brandssonar, Halldórs Brandssonar og Snjólfs Brandssonar um kirkjugóssin á Barði í Fljótum (Barðsdómur hinn fyrri). 15. janúar 1481. 2) Transskrift sex manna af Barðsdómi hinum fyrra. 24. júní 1488.
Dómur átján presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, um ákæru biskups til þeirra bræðra Hrafns Brandssonar, Halldórs Brandssonar og Snjólfs Brandssonar um kirkjugóssin á Barði í Fljótum (Barðsdómur hinn fyrri).
Tylftardómur, útnefndur af Eyjólfi Gunnarssyni lásara, kóngs umboðsmanni í Skaftafellsþingi, að Páll Pálsson mætti réttilega að sér taka jörðina Borgarhöfn í Kálfafellsþingum, samkvæmt skiptisbréfi, er Páll bar í dóminn.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup skipar séra Jóni Helgasyni að taka saman osttoll þann, sem Hólakirkja á að hafa ævinlega af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum.
Geir Vigfússon prestur vottar, að hann hafi lesið bréf Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups (DI VI, nr. 245) á Hnappstöðum í Eystrum-Fljótum eftir boði biskups, og síðan lögfest jörðina undir heilaga kirkju.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lýsir því, að hann haldi jarðirnar Núpufell og Hnappstaði með öllu því góssi, er þar fylgi, fallnar undir heilaga kirkju og hennar formenn samkvæmt Eyrarlandsdómi 7. júní 1479 (DI VI, nr. 202), er Árni Höskuldsson hafi rofið, og fyrirbýður hverjum manni hald á þessum jörðum, nema með sínu leyfi.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lýsir jarðirnar Núpufell og Hnappstaði fallna undir heilaga kirkju og hennar formenn samkvæmt Eyrarlandsdómi frá 7. júní 1479 (DI VI, nr. 202), er Árni Höskuldsson hafði rofið.
Þrír prestar votta, að Bjarni Ólason hafi í návist Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups játað það, að hann hafi legið átta sinnum eða oftar með Randíði Bjarnadóttur dóttur sinni, þá er hún var 15 vetra, og að hann beiddist enn að nýju náðar og miskunnar af Ólafi biskupi.
Dómur tólf presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, að Bjarni Ólason sé rétt fangaður af kirkjunnar valdi.
Atli Önundarson, Kári Önundarson og Eyjólfur Önundarson selja Einari Ísleifssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá allan skóginn í Vaglajörðu milli Merkilækjar við Valavörðu og Kiðsár, að fráteknum ánefndum parti, fyrir alls 15 hundruð, með fleira skilorði, er bréfið greinir.
Vitnisburður um landamerki Efri-Hóla í Núpasveit.
Vitnisburðarbréf tveggja presta, að Solveig Þorleifsdóttir hefði lýst því í banasótt sinni, að Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup skyldi eiga jörðina Flatatungu, ef hún væri eigi leyst innan þess tíma, er bréf þar um gert vottar.
1) Solveig Þorleifsdóttir lýsir því, að hún hafi gengið í borgun fyrir séra Sigmund Steindórsson við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup, að ljúka honum tíutugi hundraða samkvæmt sáttabréfi þeirra, en skilur aftur undir sig og sína erfingja svo mikið í Flatatungu, sem hún lýkur eða lætur ljúka, en lýsir Jóni Sigmundsssyni óheimila veðsetning jarðarinnar. 15. apríl 1479. 2) Transskriftarbréf þriggja manna. 24. júní 1479.
Vitnisburður, að þeir bræður Halldór Brandsson, Hrafn Brandsson og Snjólfur Brandsson gengu í borgan við Rögnu Hrafnsdóttur móður sína að svara kirkjugóssum á Barði vegna Brands Halldórssonar föður þeirra, eftir því sem á hvers þeirra hlut kæmi á móts við systur sínar.
Solveig Þorleifsdóttir selur Jóni Sigmundssyni syni sínum jörðina Staðarhól í Saurbæ fyrir jörðina Flatatungu, er Jón hafði fyrrum fengið af móður sinni fyrir Bjarg í Miðfirði.
Bréf Þorleifs Björnssonar um veðsetningu hans á Galtarnesi í Víðdal til Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups um þrjú ár.
Þorleifur Björnsson fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi til panta upp á þrjú ár í skuld sína jörðina Galtarnes í Víðidal með kúgildum, er þar með standa, en væri jörðin eigi leyst á þriggja ára fresti, þá skyldi hún eign biskups.
Skipan Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups um sálumessur á Hólum í Hjaltadal.