Arkivverket
Den Arnamagnæanske Samling
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 721 documents
(9 documents in progress, 0 done, 712 left)
Fjörumörk Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð.
Húsaúttekt á Ingjaldshóli þá Þórður Steindórsson viðskildi en herra lögmaðurinn Magnús Jónsson viðtók.
Lögfesta Magnúsar Jónssonar fyrir Ingjaldshóli og Hraunskarði.
Kaupbréf þeirra Hauks Gunnarssonar og Órækju Sturlusonar, að Órækja kaupir af Hauki land að Ingjaldshvoli undir Jökli með öllum gögnum og gæðum, en geldur Hauki hálfa jörðina Kálfárvöllu á Snæfellsnesi með öllum gögnum og gæðum.
Skrá um landamerki Þrándarstaða og Ingjaldshóls undir Jökli.
Sigurður Sigurðsson prófastur skoðar reikningsskap kirkjunnar á Ingjaldshóli.
Sigurður Sigurðsson prófastur tekur út kirkjuna á Ingjaldshóli að bón Þórðar Þorlákssonar Skálholtsbiskups.
Afrit af bréfi Brynjólfs Sveinssonar Skálholtsbiskups um yfirráð (jus patronatus) Ingjaldshólskirkju. Skipar Matthíasi Guðmundssyni, sýslumanni og Stapaumboðsmanni, að taka að sér forstöðu og fjárræði kirkjunnar. 7. apríl 1663. Afrit gert af Magnúsi Jónssyni lögmanni á Öxarárþingi 7. júlí 1689.
Bréf Brostrup Geddes höfuðsmanns frá 17. júlí 1595 um veiði Stafholtskirkju i Nikuláskeri í Norðurá.
Bréf Henriks Krags höfuðsmanns frá 14. júlí 1593 um veiði Stafholtskirkju í Nikuláskeri í Laxfossi í Norðurá.
Dómur að Þórður Guðmundsson lögmaður lét dæma öll skjöl veiðinnar í Nikulásarkeri í Norðurá fyrir sig.
Vitnisburður Jóns Nikulássonar um veiði í Nikuláskeri í Norðurá og annar vitnisburður þeirra Jóns Björnssonar og séra Jóns Salómonssonar um að hafa heyrt á vitnisburð Jóns Nikulássonar.
Vitnisburður Guðmundar Nikulássonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Vitnisburður séra Salómons Guðmundssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Vitnisburður Odds Einarssonar og Magnúsar Sigurðssonar um að hafa verið viðstaddir á Arnbjargarlæk í Þverárhlíðarheppi 21. júlí 1591 þegar Brandur Guðmundsson meðkenndi fyrri vitnisburð sinn, frá 1. september 1589, um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá, sjá F5.
Vitnisburður Brands Guðmundssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Vitnisburður Björns Þórarinssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Vitnisburður Guðmundar Salómonssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá. Pálmasunnudag [11. apríl] 1582.
Vitnisburður séra Salómons Guðmundssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Summa uppá gamla og nýja máldaga og eignir kirkjunnar í Stafholti í Stafholtstungum staðfest af biskupunum síðan sá fyrsti var settur.
Vitnisburður Sigvalda Halldórssonar um Dyrhólaey í Mýrdal.
Vitnisburður Gissurar Þorlákssonar um Dyrhólaey í Mýrdal.
Vitnisburður Jóns Ísleikssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er þar fyrir austan fellur. Svarinn að bón bræðranna Magnúsar og Hákonar Þorsteinssona.
Vitnisburður Ólafs Ólafssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er þar fyrir austan fellur og kallaður er Dyrhólaós. Svarinn að bón bræðranna Magnúsar og Hákonar Þorsteinssona.
Vitnisburður Einars Jónssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er er þar fyrir austan fellur og Dyrhólaós er kallaður. Svarinn að bón Hákonar Þorsteinssonar.
Vitnisburður Hallvarðar Jónssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er þar fyrir austan fellur og kallaður er Dyrhólaós.
Vitnisburður Jóns Péturssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er þar fyrir austan fellur. Svarinn að bón bræðranna Magnúsi og Hákoni Þorsteinssonum.
Vitnisburður Ólafs Sigurðssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og landið þar um kring, reka og um þann ós sem þar fyrir austan fellur, Dyrhólaós. Svarinn að bón bræðranna Magnúsar og Hákonar Þorsteinssona
Sex manna dómur, genginn að Dyrhólum 8. október 1448, útnefndur af Jóni Jónssyni officialis, þar sem Þykkvabæjarklaustri í Veri er dæmd til ævinlegrar eignar hálf Dyrhólaey í Mýrdal (Dyrhóladómur).
Vitnisburður Arnodds Þórðarsonar, Péturs Sæmundssonar, Eyjólfs Jónssonar, Ásgeirs Albertssonar og Hemings Jónssonar, auk Hálfdanar Hálfdanarsonar sem séra Magnús Jónsson á Breiðabólsstað krafðist af þeim um landamerki á milli Lambeyjar og Teigs í Fljótshlíð. Þeir segjast ennfremur aldrei hafa heyrt Kirkjulæk eignað yfir Fljótsveg eða farveg þar.
a) Opið bréf Odds Einarssonar biskups um ágreining á milli prestanna séra Árna Gíslasonar í Holtsstað og séra Sigurðar Einarssonar á Breiðabólsstað um rekapart. 26. janúar 1608.
b) Vitnisburður þriggja presta um að hafa verið viðstaddir á Lambeyjarþingi þegar séra Sigurður Einarsson las bréfið fyrir séra Árna Gíslasyni og bauð máldaga sinn undir álit biskups og höfuðsmanns en afsagði héraðsdómi og áreið. Þá gerði séra Árni fimmtarstefnu til áreiðar á fjöruna. Aðeins undirskrifað af séra Páli Erasmussyni. 29. janúar 1608.
a) Fjörumörk Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð. Um 1363.
b) Holtsmáldagi undir Eyjafjöllum. Um 1332.
c) Afhending Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð, þegar séra Sigurður Einarsson tók við. 1591.
a) Nokkrar minnisgreinar séra Jóns Sigurðssonar á Breiðabólsstað um prestverk og möguleg jarðakaup. 1636.
b) Fjörumörk Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð eftir gamalli kórbók kirkjunnar, ásamt fornri lögfestu forsögn. Um 1363.
c) Ágrip úr „Laxmans“ bréfi um þessi fjörumörk. 1608.
d) Ágrip af samningi um þessi fjörumörk. 1603.
Sex manna dómur, genginn að Dyrhólum 8. október 1448, útnefndur af Jóni Jónssyni officialis, þar sem Þykkvabæjarklaustri í Veri er dæmd til ævinlegrar eignar hálf Dyrhólaey í Mýrdal (Dyrhóladómur).
Manntalsþing á Svínavatni á Ásum. Kom til tals og yfirskoðunar það efni sem áhrærði kristfjárjörðu sem er fátækra eign, þ.e. jörðin Hamar liggjandi í Svínavatnskirkjusókn sem Guðmundur Hákonarson gaf til ellefu hreppa. Hreppstjórar Miðfjarðarhrepps kvarta yfir því að hafa ekki fengið neitt í sinn hlut.
Kirkjureikningur Þingeyraklausturs. Gripir kirkjunnar taldir upp.
Guðmundur Hákonarson sýslumaður og klausturhaldari á Þingeyrum bætir sex kúgildum við fyrri gjöf sína fyrir 12 árum þegar hann gaf fátækum jörðina Hamar í Svínavatnshreppi.
1) Eignaskrá Kálfafellskirkju í Fljótshveri, er séra Sveinn Árnason tók við. 1557. 2) Eignaskrá Kálfafellskirkju í Fljótshverfi, er séra Jón Hakason tók við. 1584.
Vitnisburður, að Þorkell Erlendsson meðkenndist, að hann hefði fyrir mörgum árum selt Þorvarði Helgasyni príor á Skriðu jörðina Seljamýri í Loðmundarfirði, og kvittar hann nú fyrir andvirðinu.
a) Gottskálk Nikulásson prestur, postulatus til Hóladómkirkju, skipar með ráði og samþykkt officialanna og allra annarra klerka Hólabiskupsdæmis séra Einar Benediktsson ábóta á Munkaþverá og megi hann vígjast til ábóta þegar hann vilji og hafi eitt ár staðið sína æfing. 11. júlí 1496 b) Vígslubréf Einars Benediktssonar ábóta á Munkaþverá, útgefið af Stefáni Jónssyni Skálholtsbiskupi. 1. júlí 1497 c) Stefán Jónsson Skálholtsbiskup fær Einari Benediktssyni ábóta á Munkaþverá umboð um alla þá hluti sem honum kunna til að falla í Hólabiskupsdæmi, bæði Þorlákspeninga og annað. 2. júlí 1497
Sveinn Jónsson prestur selur í umboði klaustursins í Kirkjubæ Bárði Auðunarsyni ábóta í Þykkvabæ hálfa jörðina Eystri-Ása í Skaftártungu fyrir allan þann skóg, er síðastnefnt klaustur átti í Brandalandi, og eru ummerki hans tilgreind.
Skinnrolla
Gjafabréf og stofnskrá jarðarinnar Ytra-Vallholts í Skagafirði sem kristfjárjarðar.
1) Dómur útnefndur við Miðskriðuland í Öxnadal af Jóni Sigurðssyni lögmanni um landamerkjaágreining á milli jarðanna Syðri-Bægisár og Neðstalands. Krossnessbréf frá 9. september 1397 [DI III, nr. 517, bls. 619-621] dæmt undir skoðun og álit lögmanna og lögréttu á alþingi árið 1610. 3. ágúst 1609. 2) Lögrétta dæmir Krossanessbréf myndugt. 30. júní 1610. 3) Jón Sigurðsson lögmaður vottar að þessa tvo ofanskrifaða dóma svo útnefnda og dæmda. 9. júlí 1614.
Vitnisburður Helga Magnússonar, 76 ára að aldri, um landamerki Syðri-Bægisár og Neðstalands í Öxnadal. Segist hafa verið 17 ár í sínu ungdæmi í þessum Dalahreppi [svo] og hafi í allt verið þar 43 ár og aldrei hafi hann heyrt nein tvímæli á því leika að Neðstaland ætti alla landeign út í Reiðhól sem stendur á milli Syðri-Bægisár og Neðstalands og svo sjónhending í fjall upp. Það var enginn ágreiningur uppi um þetta fyrr en Arnes Helgason sem hélt Bægisá vildi eigna henni land lengra suður en hann vann þar ekkert á. Loks segist hann hafa heyrt að þrír steinar hafi fundist undan Reiðhól til forna er áreið var gerð á landið.
Vitnisburður Björns Eyjólfssonar um landamerki milli Bægisár og Neðstalands í Öxnadal. Hann var hjá föðurbróður sínum, séra Guðmundi Skíðasyni heitnum, í 23 ár og sagði hann hafa byggt Neðstaland í Reiðhól sem er á milli jarðanna og svo sjónhending á fjall upp. Allan þann tíma sem hann var hjá séra Guðmundi hafi þessi landamerki verið haldin og það hafi ekki verið fyrr en Arnes Helgason á Syðri-Bægisá vildi eigna henni land lengra suður að þau voru dregin í efa. Málið hafi farið fyrir dóm á Neðri-Lönguhlíð í Skriðuhreppi en Arnesi hafi ekkert orðið ágengt og var landið dæmt undir Neðstaland. Hann segist hafa heyrt séra Guðmund, sem var nærri 80 ára þegar hann lést, segja frá því að riðið hafi verið á landið milli jarðanna og lýrittasteinar fundist upp undan Reiðhól. Þá finnist ekkert stekkjarstæði í Neðstalandi annað en í því takmarki sem nú sé eignað undan Neðstalandi og til Bægisár fyrir utan þann stekk sem gerður var fyrir nokkrum árum á milli Neðstalands og Miðlands.
1) Jón Arason Hólabiskup gefur og geldur Helgu Jónsdóttur (Sigmundssonar), vegna Einars Jónssonar bróður hennar, 20 hundruð í jörðinni Þóreyjarnúpi, en selur Kráki Hallvarðssyni bónda Helgu tólf hundruð í jörðinni fyrir Kvennahól á Skarðsströnd og átta hundruð í smíðum eða öðru, er þeim semdi biskupi og Kráki. 6. maí 1532 2) Transskrift tveggja manna. 28. apríl 1578
1) Vilkismáldagi, Oddi. 1397 2) Dómur sex presta útnefndur af Jóni Krabba Skálholtsbiskupi um að Árni Pétursson bóndi í Hjálmholti sé skyldur að greiða Skálholtsráðsmanni þá ískyldarsauði er eigi hefði verið luktir í níu eða tíu ár af jörðunni Hjálmholti. 21. júlí 1464 3) Transskriftarbréf tveggja manna. 5. febrúar 1548
Þorleifur Pálsson lögmaður staðfestir Vatnsfjarðardóm frá 3. maí 154, sbr. DI XI, nr. 265, sbr. nr. 268).
Gissur Einarsson Skálholtsbiskup staðfestir á prestastefnu dóm Magnúsar Eyjólfssonar officialis frá 3. maí 1544 um mál séra Jóns Eiríkssonar (DI XI, nr. 265, bls. 283).
Page 1 of 15