Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
Þorlákur Semingsson fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju jörðina Þóroddsstaði (Þórustaði) í Kaupangssveit til fullrar eignar og þar með fimm kúgildi, fyrir þá sök , er séra Semingur Magnússon faðir hans hafði haft burt tvo gullkaleika frá heilagri Hólakirkju.
Skinnrolla
Árni ábóti á Munkaþverá selur Guðmundi Sigurðarsyni hálfa jörðina Skriðuland í Öxnadal.
Oddbjörg abbadís á Reynistað felst á, með samþykki allra konventusystra og klausturráðsmanns, að Narfi Sveinsson ljúki klaustrinu á Stað 30 hundraða, sem eftir stóðu af þeim 40 hundruðum er Örnólfur bóndi lagði með Ingibjörgu dóttur sinni til klaustursins.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup skipar séra Jóni Helgasyni að taka saman osttoll þann, sem Hólakirkja á að hafa ævinlega af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum.
Jón Pálsson prestur selur Þorvaldi Jónssyni jörðina Reyki í Ólafsfirði með tilgreindum landamerkjum fyrir jörðina Skóga í Fnjóskadal, einnig með tilgreindum landamerkjum.
Goðsvin Comhaer Skálholtsbiskup og umboðsmaður heilagrar Hólakirkju skipar samkvæmt kosning konventunnar Þóru til abbadísar í Reynistaðarklaustri, sem hafði áður verið abbadísarlaust um mörg ár síðan Ingibjörg abbadís dó, og sömuleiðis veitir hann undanþágu með Þóru um eitt ár um aldur hennar, sem eigi var lögboðinn.
1) Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Þórunnar Finnbogadóttur á jörðunni á Valþjófsstöðum í Núpasveit, er biskupinn reiknaði eign Hólakirkju í Hjaltadal. 13. júlí 1464. 2) Transkriftarbréf þriggja manna. 25. september 1466.
1) Vitnisburður Herjólfs Gissurarsonar, 75 ára að aldri, um að Vífilsstaðir eigi Finnastaðakot í Álftaneshreppi og þar hafi stekkur verið frá Vífilsstöðum. Tilgreinir landamerki sem voru haldin þegar hann 16 ára kom til Vífilsstaða með Jóni Pálssyni heitnum. 24. apríl 1601. 2) Nokkrar minnisgreinar. a) Ólafur Bagge segir að Jón Ólafsson heitinn hafi sagt sér að hann hefði átölulaust í fyrstu Vetrarmýri alla og stekkjartúnið austur á Vatnsendanum í Seltjarnarneshreppi og þar hafi hann slegið á meðan hann bjó þar. b) Hafa þeir í Hvammskoti (Hvammur/Fífuhvammur) haldið sínum peningum í Finnastaðakoti og Vetrarmýri og látið sitja hjá sínum peningum. c) Hermir Bjarni á Ólaf Bagga að hann hafi sagt honum að þá hann hafði umboð á Bessastöðum hafði hann aldrei byggt nokkrum manni á Álftanesi ítak nokkuð fram á Grunnavatnsskóg (Grænavatnsskógur) eða fram á Langahjalla. 1601.
Ólafur Þorgeirsson prestur lýsir, því að hann hafi eftir skipun Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups ætlað að lesa á Grenjaðarstöðum dóminn frá 13. júlí 1464 (DI V, nr. 372) um Valþjófsstaði yfir Þórunni Finnbogadóttur, en séra Jón Pálsson hafi ruskað sér og blótað, og ætlað að ná í bréfið og Þorgils Gunnlaugsson hafi gripið í það og rifið, og haft með sér mestan part þess.
Vitnisburður Jóns Nikulássonar um veiði í Nikuláskeri í Norðurá og annar vitnisburður þeirra Jóns Björnssonar og séra Jóns Salómonssonar um að hafa heyrt á vitnisburð Jóns Nikulássonar.
Þorleifur Árnason lofar Agnesi priorissu og öllum systrunum á Stað í Reyninesi að taka hvorki klaustrið né þess peninga og veita þar engan styrk og engin ráð til að það sé gert.
Séra Björgólfur Illugason gefur i klaustrið á Stað í Reyninesi undir reglu hins heilaga Benedicti Steinunni dóttur sína og Sigríði Sæmundardóttur frændkonu sína og gefur klaustrinu 50 hundraða í forgift.
Dómur klerka útnefndur af séra Eiríki Sumarliðasyni í umboði Gottskálks Nikulássonar Hólabiskups um kærur biskups til Þórðar Þórðarsonar, Hallvarðs Jónssonar og Auðunar Sigurðssonar.
Tylftardómur útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um ákærur biskups til Höskuldar Runólfssonar.
Ásgrímur Jónsson selur með samþykki Guðrúnar Magnúsdóttur konu sinnar Þorkeli Guðbjartssyni presti jarðirnar Þverá í Laxárdal og Höskuldsstaði og Hól i Reykjadal fyrir jörðina á Breiðamýri í Reykjadal; en ef riftingar koma á Þverá fær Þorkell prestur aftur 20 hundruð í Mýri eða 30 kúgilda.
Stefán Gunnlaugsson prestur tekur í umboði Laurentíusar Kálfssonar Hólabiskups land á Guðmundarstöðum tuttugu hundruð og fimm hundruð fríð þar með í öðru lagi, er Bergur Sokkason ábóti lauk Hólakirkju upp í þau hundruð hundraða, er Laurentíus biskup heimti að Munkaþverárklaustri eftir reikningi Auðunnar Þorbergssonar biskups.
Kolli Magnússon fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Vatnsenda í Ljósavatnsþingum með fimm málnytukúgildum til fullrar eignar fyrir þann reikningsskap, er Kolli varð biskupi skyldugur fyrir brytastarf.
Magnús Magnússon bóndi fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Ljósavatn í Ljósavatnsskarði fyrir jörðina Hof í Svarfaðardal.
parchment and paper
-
Vitnisburður Helga Magnússonar, 76 ára að aldri, um landamerki Syðri-Bægisár og Neðstalands í Öxnadal. Segist hafa verið 17 ár í sínu ungdæmi í þessum Dalahreppi [svo] og hafi í allt verið þar 43 ár og aldrei hafi hann heyrt nein tvímæli á því leika að Neðstaland ætti alla landeign út í Reiðhól sem stendur á milli Syðri-Bægisár og Neðstalands og svo sjónhending í fjall upp. Það var enginn ágreiningur uppi um þetta fyrr en Arnes Helgason sem hélt Bægisá vildi eigna henni land lengra suður en hann vann þar ekkert á. Loks segist hann hafa heyrt að þrír steinar hafi fundist undan Reiðhól til forna er áreið var gerð á landið.
Kaupmálabréf Hallvarðs Eiríkssonar og Þorgerðar Jónsdóttur.
Gottskálk Gottskálksson selur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Efstaland í Öxnadal, er Gottskálk Keneksson Hólabiskup hafði gefið honum, og þar með tíu kúgildi, og kvittar hann Ólaf biskup fyrir andvirðinu, nema 15 hundruðum, sem eftir stóðu.
Ásbjörn ábóti að Þingeyrum selur Einari Bessasyni bónda jörð klaustursins Ytri-Ey á Skagaströnd fyrir hálfan þriðja tug hundraða í lausafé, en komi brigður á jörðina þá á lausaféð að ganga til klaustursins í próventu Einars með öðru því, er hann vill meira gefa.
Fjórir menn votta, að Þorleifur Björnsson hafi 2. janúar 1477 selt Sveini Guðmundssyni jörðina á Kryddhóli í Skagafirði fyrir Ásgrímsstaði í Hegranesi og þar til lausafé.
Illugi Björgólfsson vottar, að hann hafi vitað, að Reynistaðarklaustur hafi óátalið um hálfan fimmta tug ára eða lengur tekið landskyldir af Hofi á Skagaströnd.
Vitnisburður um viðtal Eiríks Einarssonar prests og Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups um sakir þær, er biskup taldi til hans.
Fjórir menn votta, að Jón Þorvaldsson hafi greitt Halldóru Broddadóttur, Brandi Brandssyni og Ingimundi Sighvatssyni fullt verð fyrir Laugaland í Fljótum, og að hlutaðeigendur hafi kannast við það.
Ólafur Jónsson fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi til fullrar eignar jörðina Þverá í Svarfaðardal fyrir jörðina Svartárdal í Dölum.
Sáttargerð þeirra séra Jóns Pálssonar og séra Þorkels Guðbjartssonar í viðurvist og að tilhlutun Goðsvins Comhaer Skálholtsbiskups og margra annarra klerkmanna og leikmanna; sættast þeir alsáttum á allan reikningsskap og óvinskap, er þeim hafði farið á milli, og heitir séra Þorkell séra Jóni fullri vináttu og fylgi og kyssast þeir að lyktum "fyrir munninn trúlega".
Ólafur Ingimundarson prestur vottar, að hann hafi í sumar lesið í lögréttu fyrir Brandi Jónssyni lögmanni og öllum ríkismönnum og almúganum dóm frá 29. apríl 1474 (DI V, nr. 654) um Hólateig í Fljótum, og lét Brandur lögmaður samþykkja prófaleiðslur biskups löglegar.
Testamentisbréf Þorsteins Eyjólfssonar lögmanns.
Magnús Jónsson bóndi selur Einari Eiríkssyni jörðina Teig í Hrafnagilsþingum með tilteknum kvöðum og ítökum, en Einar leggur í móti jörðina Kálfskinn í Árskógsþingum.
1) Tveggja tylfta dómur, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi á prestastefnu, um kæru biskups til Árna Höskuldssonar, að hann hefði eigi haldið Eyrarlandsdóm frá 7. júní 1479 (DI VI, nr. 202) um kirkjugóssin í Núpufelli og á Hnappstöðum. 9. júní 1488. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 2. ágúst 1488.
Vitnisburður, að Þorkell Erlendsson meðkenndist, að hann hefði fyrir mörgum árum selt Þorvarði Helgasyni príor á Skriðu jörðina Seljamýri í Loðmundarfirði, og kvittar hann nú fyrir andvirðinu.
Kvittun fyrir andvirðis Smyrlabergs.
Barbara abbadís á Stað í Reyninesi selur Ólafi Grímssyni bónda jörðina Brúarland hálft í Deildardal fyrir Syðra-Vatn í Tungusveit.
Sigurður Jónsson prestur og prófastur í Skagafirði, tekur fullan bókareið af Einari Magnússyni um skóg þann, er kallaður hefur verið Maríuhrís, í Ássjörðu í Hörgárdal milli Auðbrekkuskógs og Vindheimaskógs, og sver Einar, að hann hafi aldrei heyrt annað en Möðruvallaklaustur ætti skóginn.
Jón Eiríksson skalli Hólabiskup úrskurðar Risamýri í Blönduhlíð stöðuga eign Hólakirkju í Hjaltadal.
Bréf Sigurðar Narfasonar um útlúkning Ásgeirsáa og Lækjamóts og fjögurra jarða (Krossnes, Melar, Norðfjörður og Seljanes) á Ströndum til Finnboga Jónssonar lögmanns og Teits Þorleifssonar.
Samningur þeirra Ögmundar Pálssonar Skálholtsbiskups og Jóns Arasonar Hólabiskups um útlúkningar Jóns biskups til Mýrakirkju í Dýrafirði, kennimannahald þar og fleira.
Sigurður Ívarsson selur séra Jóni Þorvaldssyni tíu hundruð í jörðunni Mánaskál í Laxárdal fyrir tíu hundruð í lausafé.
Vitnisburður Jóns Jónssonar og Þorkels Blængssonar um jörðina Brúarland í Deildardal.
Dómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um ákærur séra Eiríks Einarssonar til Símonar Pálssonar um jörðina Kálfskinn á Árskógsströnd.
Ólafur Filippusson og Einar sonur hans selja Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi jarðirnar Hrafnabjörg, Ljótshóla, Snæringsstaði, Geithamra, Mosfell, Þremi tvenna og skóg í Blöndugili, sem allt hafði átt Solveig Björnsdóttir, en biskup geldur í mót jarðirnar Arnarstapa á Vatnsnesi, Hvol í Vesturhópi, Galtarnes í Víðidal og Vatnsenda í Vesturhópi.
Sigurður Þorláksson prestur og Kolli Magnússon lofa Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi að gera upp á sinn eigin kostnað kirkjuna í Ási í Hegranesi svo góða sem hún áður var, nema biskup skyldi leggja til sex hundruð, og taka þeir jörðina á leigu um þrjú ár.
Steingrímur Ísleifsson selur Einari Ísleifssyni bróður sínum, ábóta á Munkaþverá, propiciatorium (oblátuaskja?) með silfur forgyllt, er vegur vart fjórar merkur, klaustrinu til eignar, fyrir tíu málnytukúgildi og fimm geldfjárkúgildi, tvítuga voð, tvær stikur klæðis og tvo klyppinga á ári meðan fimm hundruð sé ólukt af skuldinni.
Þorsteinn Jónsson selur Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi 20 hundruð í jörðunni Ási í Vatnsdal fyrir jörðina Brandsstaði í Blöndudal og sex kúgildi, en af því biskup lét burt jörð, er Hólakirkja átti, fékk biskupinn Hólakirkju 20 hundruð upp í greinda jörð Ás í Vatnsdal.
Próventusamningur Magnúsar Jónssonar og Margrétar Finnbjarnardóttur við Einar Ísleifsson ábóta og klaustrið á Munkaþverá.
Magnús Halldórsson prestur kvittar Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup um andvirði jarðarinnar Skútustaða, er hann hafði selt Hóladómkirkju.