Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 721 documents
(9 documents in progress, 0 done, 712 left)
Bréf þriggja presta um það, að séra Þorkell Guðbjartsson fékk Jóni Vilhjálmssyni Craxton Hólabiskupi í umboði hústrú Margrétar Bjarnadóttur jörðina Hóla í Laxárdal, sem hún gaf í testamentum Hrafns Guðmundssonar bónda síns, og lofaði biskup að láta segja 30 sálumessur fyrir sál Hrafns og kvittaði sál hans og líkama á guðs vegna, en ekki erfingja Hrafns fyrir brotum Hrafns við heilaga kirkju.
Bréf tólf klerka í Hólabiskupsdæmi um ágreining biskups og leikmanna um kirknamál.
Dómsúrskurður Jóns Arasonar prests, prófasts og almennilegs dómara milli Varðgjár og Glerár, um kærur hans vegna Gottskálks Nikulássonar Hólabiskups til Tómasar Hjálmssonar, að hann hefði eigi gert lagabrullaup til Helgu Þorvarðsdóttur, er hann hefði haldið sína eiginkonu í 20 ár eða lengur, að hann hefði eigi goldið rétta biskupstíund í þrjú ár samfleytt, og að hann hefði eigi viljað lesa fræði sín fyrir Jóni presti, þegar hann krafði hann þess.
Halldór Jónsson selur Eyjólfi Arnfinnssyni bónda jörðina Brimnes í Svarfaðardal með tilgreindum ítökum.
Vitnisburður fimm presta um það, að Bjarni Ólason hafi lýst því, að hann hefði haft nógan mat og klæði, síðan hann kom undir kirkjunnar vald, nema fastað annan hvern dag um jólaföstu, en annan hvern étið fisk.
1) Verndarbréf, er Magnús Eiríksson konungur gefur Ormi Áslákssyni biskupi og dómkirkjunni á Hólum. 10. mars 1346 2) Magnús Eiríksson konungur stefnir utan átta bændum fyrir norðan land sakir mótþróa við Orm Ásláksson biskup á Hólum. 2. júní 1350 3) Þorsteinn Eyjólfsson lögmaður úrskurðar verndarbréf það, er Magnús Eiríksson konungur gaf Ormi Áslákssyni biskupi og Hólakirkju, stöðugt í öllum greinum. 8. maí 1393 4) Bréf Friðriks konungs I. til lærðra manna og leikra í Hólabiskupsdæmi, þar sem hann samþykkir kosning Jóns Arasonar prests í Odda til biskups og tekur hann í vernd sína. 25. ágúst 1523 5) Transskriftarbréf fjögurra manna. 30. júlí 1542
Vitnisburður Brands Guðmundssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Vitnisburður um landamerki Efri-Hóla í Núpasveit.
Höskuldur Árnason fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til fullrar eignar jörðina Blængshól og lofar þar til 20 hundruðum í fullgildis peningum fyrir Mikaelsmessu (Mikjálsmessa, 29. september), fyrir þær sakir að hann sór rangan bókareið með Bjarna Ólasyni og fyrir óhlýðni og þrjósku við biskupinn í langan tíma. Þar með skal og Höskuldur halda settar skriftir.
Vitnisburður Hallvarðar Jónssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er þar fyrir austan fellur og kallaður er Dyrhólaós.
Eyvindur Eyvindsson selur Eyjólfi Arnfinnssyni bónda, með samþykki Sölva Jónssonar, til fullrar eignar jörðina Skarðsdal með kotinu Leyningi í Siglufirði fyrir 14 hundruð í lausafé.
Reikningsskapur séra Þórðar Þórðarsonar og Valdísar Helgadóttur barnamóður hans.
Skrá yfir eignir Hólakirkju í Hjaltadal, þá er Pétur Nikulásson Hólabiskup bjóst til skips.
Magnús Jónsson selur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til fullrar eignar jörðina Sveinungsvík í Þistilfirði og þar með tíu hundruð, gegn því, að biskup taki Jón Magnússon son Magnúsar níu vetra gamlann til uppfæðis og lærdóms með því skilorði, er bréfið hermir.
1) Dómur klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um Grenjaðarstað og hans peninga, er þá var forstöðulaus eftir burtför Eiríks Einarssonar af landinu með þýskum í óhlýðni og þrjósku. 7. ágúst 1489. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 2. september 1489.
1) Jón Arason Hólabiskup gefur og geldur Helgu Jónsdóttur (Sigmundssonar), vegna Einars Jónssonar bróður hennar, 20 hundruð í jörðinni Þóreyjarnúpi, en selur Kráki Hallvarðssyni bónda Helgu tólf hundruð í jörðinni fyrir Kvennahól á Skarðsströnd og átta hundruð í smíðum eða öðru, er þeim semdi biskupi og Kráki. 6. maí 1532 2) Transskrift tveggja manna. 28. apríl 1578
Vitnisburðarbréf ellefu klerka um mótfall Hrafns Brandssonar lögmanns og lögréttumanna við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup frammi haft í lögréttu á Öxarárþingi með harki og háreysti og lemjandi höndum, og höstuðu þeir biskup út af lögréttunni og sögðu, að hann ætti ekki að vera þar.
Skúli Loftsson selur Hallsteini Höskuldssyni jörðina Þingnes í Borgarfirði fyrir 60 hundraða, en Skúli leggur í mót hálf Býjasker á Rosmhvalanesi, Hraunhafnarbakka á Snæfellsnesi og þar til fjögur kúgildi búlæg, og votta þetta fjórir menn ári síðan en kaupið fór fram (1445).
Pétur Nikulásson Hólabiskup kvittar Árna Einarsson um 10 hundraða ílag í jörðina Ásláksstaði í Kræklingahlíð.
Viðvíkurdómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um Hólateig í Fljótum.
Logi Stígsson prestur og fimm menn aðrir votta að þeir hafi séð sálugjafabréf Steinmóðar Þorsteinssonar prests og tilfæra úr því kafla.
Vitnisburður Guðmundar Salómonssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá. Pálmasunnudag [11. apríl] 1582.
Dómur átta presta og fjögurra leikmanna útnefndur af Jóni Vilhjálmssyni Craxton Hólabiskupi, þar sem jörðin Kelduland í Skagafirði er dæmd óbrigðileg eign heilagrar Hólakirkju í Hjaltadal.
Grímur Pálsson bóndi lýkur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi 25 hundruð upp í jörðina Hvassafell í Eyjafirði í reikningsskap þann, er hann og Páll Brandsson faðir hans urðu skyldugir biskupinum.
Vottorð tveggja manna um peninga þá, er Guðrún Sæmundardóttir erfði eftir Þórð Þórðarson prest.
Árni Ólafsson Skálholtsbiskup, visitator og hirðstjóri yfir allt Ísland, kvittar Pál Runólfsson fyrir víseyri og landskuldum, sem hann hafi sýslu haft og umboð milli Jökulsár og Norðfjarðarnípu.
Þorgerður Jónsdóttir selur Magnúsi Jónssyni hálfa jörðina Efsta-Fell í Kinn, með greindum ítölum í aðrar jarðir, fyrir Geirbjarnarstaði í Kinn og tíu hundrað að auki.
Séra Einar Benediktsson selur Finnboga Einarssyni, syni sínum, jörðina Grindur á Höfðaströnd fyrir Skáldalæk í Svarfaðardal og lausafé að auki.
Sáttmáli um arf eftir Jón Nikulásson en Helga Jónsdóttir, ekkja hans, skyldi fá tvo hluti en dætur þeirra Sigríður eldri, kona Steinmóðar Jörundssonar, og Sigríður yngri, kona Ólafs Örnólfssonar, skyldu skipta með sér afganginum. Helga skyldi eignast í mála sinn 12 hndr. í Látrum í Mjóafirði en dætur hennar skyldu hver um sig fá sinn 6 hndr. hlut. Minnst er á Veðrará hina stærri í Önundarfirði sem hafði gengið kaupum og sölum og loks samþykkt að Helga megi gefa alla sína peninga í próventu hverjum sem hún vill.
Þrír prestar og einn leikmaður votta, að Hrafn Brandsson beiddist lausnar af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi af forboði því, er biskup hafði sett hann í heilagrar kirkju vegna, og sagðist biskup vilja leysa hann, þá er hann skilaði aftur Randíði Bjarnadóttur, sem Bjarni Ólason faðir hennar hefði legið með, og skyldi það gert fyrir langaföstu (þ.e. 18. febrúar).
Dómur tólf presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, að Bjarni Ólason, sé skyldur að halda þær skriftir, er honum verði settar af biskupi og hann sé maður til að bera, og að allt hálft fé hans sé fallið undir Ólaf biskup og heilaga kirkju.
Elín Magnúsdóttir, Einar Sigurðsson og Jón Sigurðsson fá Einari Benediktssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá til fullrar eignar þann part í jörðinni Illugastöðum, er þau hefði mátt hljóta að erfð eftir Stíg Einarssson, en ábóti kvittar Stíg um allt það, er hann hefði mátt vera klaustrinu skyldugur.
Vitnisburður Jóns Jónssonar, barnfæddur á Tjörnum í Sléttahlíð og þar vistfastur til 34 ára aldurs en síðan verið 9 ár í Hofsþingum, um að hafa aldrei heyrt annað haldið eða haft en að Fjall í Sléttahlíð ætti land og reka inn í Raufarberg. Árið 1595 rak hvalbrot lítil spöl fyrir innan Raufarberg og tók séra Erlendur Guðmundsson það að sér, lét vega það og afhenti Þorláki Runólfssyni sem var verkamaður Magnúsar Björnssonar á Hofi á Höfðaströnd og gerði enginn athugasemd við það.
Jón Þorfinnsson ábóti í Þykkvabæ og officialis heilagrar Hólakirkju samþykkir og tekur Illuga Björgólfsson til ævinlegrar próventu á staðinn í Reyninesi.
Tylftardómur klerka útnefndur á prestastefnu af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um ákæru séra Eiríks Einarssonar til Símonar Þorsteinssonar um jörðina Kálfskinn á Árskógsströnd.
Sveinn Jónsson prófastur og almennilegur dómari milli Helkunduheiðar og Breiðdalsár lýsir eiði Benedikts Sæmundssonar um sölu hans á 15 hundraða parti í Borgarhöfn til séra Ögmundar Andréssonar.
Jón Jónsson geldur og fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi til fullrar eignar jarðirnar Vindheima og Ás í Hörgárdal og Bakka í Öxnadal í sakfelli og brot sín og Rögnu Finnbogadóttur, en þau voru að öðrum og þriðja manni, og gerir biskup Jón kvittan og ákærulausan.
Vitnisburður Hákonar Kálfssonar um selveiði í Jökulsá fyrir Skógum í Axarfirði.
Sigmundur Steindórsson prestur selur Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi 15 hundraða part í jörðunni Ási í Vatnsdal, en biskup geldur í móti jörðina Hól í Svartárdal, og á Sigmundur prestur að gefa 15 kúgildi í milli.
Tylftardómur klerka útnefndur af Sigurði Þorlákssyni officialis um kæru hans til séra Jóns Þorvaldssonar um prímsigning heiðins barns "fyrir utan alla bevísing að vakta efni eða atferli", um að hafa messað yfir og samneytt forboðuðum manni, um tíunda aðtekt og fyrir að hafa farið burt af þingum sínum orlofslaust.
1) Úrskurður Brands Jónssonar lögmanns, að Hallvarður Ámundsson, er Skúla Árnason óforsynju í hel sló, sé ferjandi til Noregs og sæki landvist sína á konungs náð. 5. september 1468. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 9. september 1468.
Guðmundur Jónsson prestur selur Nikulási Þormóðssyni príor og klaustrinu á Möðruvöllum jörðina Böggustaði í Svarfaðardal fyrir jarðinar Bakka og Steindyr í sömu sveit með þeirri milligjöf, er bréfið hermir.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup skipar séra Jóni Helgasyni að taka saman osttoll þann, sem Hólakirkja á að hafa ævinlega af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum.
Jón Arason Hólabiskup fær Ara Jónssyni (syni sínum) til fullrar eignar jörðina Reyki á Reykjaströnd fyrir 40 hundraða jörð, er Ari eigi hjá Jóni Magnússyni bónda fyrir Vindehima í Hörgárdal.
Próventusamningur Magnúsar Jónssonar og Margrétar Finnbjarnardóttur við Einar Ísleifsson ábóta og klaustrið á Munkaþverá.
Tylftardómur útnefndur af Einari Oddssyni, kóngs umboðsmanni í Húnavatnsþingi, um arftöku Einars Ólafssonar eftir Solveigu Björnsdóttur móðurmóður sína.
Próventugerningur Jóns Sigfússonar og Arnþrúðar Árnadóttur við Jón ábóta og klaustrið á Munkaþverá.
Bréf Brostrup Geddes höfuðsmanns frá 17. júlí 1595 um veiði Stafholtskirkju i Nikuláskeri í Norðurá.
1) Dómur tólf manna, útnefndur af Jóni Þórðarsyni, kóngs umboðsmanni í Hegranessþingi, um vígsmál Hallvarðs Ámundssonar, er sló Skúla Árnason ófyrirsynju í hel. 22. júní 1468. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 24. júní 1468.