Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
Þorlákur Sigurðsson gefur með samþykki Guðmundar Þorlákssonar djákna sonar síns allan þann rétt og tiltölu, sem þeir áttu og höfðu til jarðarinnar Rípur í Hegranesi og Ástríður Jörundardóttir gaf Guðmundi, heilagri Hólakirkju og Jóni Vilhjhálmssyni Craxton Hólabiskupi, (sbr. bréf rá 24. mars 1431, nr. 491).
Dómur klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um Grenjaðarstað og hans peninga, er þá var forstöðulaus eftir burtför Eiríks Einarssonar af landinu með þýskum í óhlýðni og þrjósku.
Þóra Guðmundsdóttir samþykkir sölu Jóns Eyjólfssonar bónda síns á jörðunni Guðmundarlóni til Hólakirkju í Hjaltadal.
Jón Arason prestur fær klaustrinu á Munkaþverá jörðina Miðhús í Höfðahverfi, sex málnytukúgildi og sex hundruð að næstum fardögum, en Einar Benediktsson ábóti lofar með samþykki Gottskálks Nikulássonar Hólabiskups og konventubræðra Elínu Magnúsdóttur, móður Jóns prests, ævinlegri próventu og frjálsmannlegu framfæri á klaustrinu, með fleirum greinum, sem bréfið hermir.
Dómur sex presta, kvaddra af Ólafi Hjaltasyni Hólabiskupi, um framfæri uppgefinna presta, þeirra er eiga sjálfir fé fyrir sig að leggja.
Sigurður Jónsson selur Þorleifi Brandssyni hálfa jörðina Hleiðrargarð í Eyjafirði fyrir 30 hundruð.
Jón Arason Hólabiskup gefur ærlegri dándikvinnu Ólöfu Einarsdóttur jörðina Stafn í Reykjadal.
Finnbogi Einarsson prestur fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi til fullrar eignar jörðina Grindur á Höfðaströnd og kvittar hann um andvirði hennar.
Vitnisburðarbréf, að Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup hafi látið marga skilvísa presta sverja bókareið að öllum skildaga hans og Runólfs Höskuldssonar frá 23. janúar 1471. (DI V, nr. 543).
1) Máldagi Staðarfellskirkju er Gyrðir Ívarsson Skálholtsbiskup setti. 1354 2) Skrá um það, hverjar eignir Staðarfellskirkju hafi bæst síðan máldaga Gyrðis biskups. 1394 3) Sveinn Pétursson Skálholtsbiskup kvittar Þórð Helgason bónda um porcio Staðarfellskirkju um þau 16 ár, sem hann hafði haldið hana og hafði Þórður bóndi lagt henni til 16 hundraða. 7. október 1467 4) Máldaga- og reikningsskaparbréf kirkjunnar undir Staðarfelli á Meðalfellsströnd þeirra Stefáns Jónssonar Skálholtsbiskups og Þórðar Helgasonar bónda. 19. september 1492 5) Stefán Jónsson Skálholtsbiskup staðfestir máldaga og skipan prófastanna séra Þorbjarnar Ásmundssonar og séra Jóns Helgasonar um málsmjólkurtoll á Pétursmessu til Staðarfells af 20 bæjum, þar á meðal sérdeilis af Galtardalstungu. 18. október 1492 6) Ögmundur Pálsson Skálholtsbiskup kvittar Guðlaugu Finnbogadóttur húsfreyju undir Staðarfelli um porcio kirknanna á Staðarfelli og Sauðafelli um fjögur ár og um önnur gjöld, sem henni bar að svara fyrir kirkjur sínar. 28. ágúst 1534 7) Ögmundur Pálsson Skálholtsbiskup kvittar Orm Sturluson bónda um kirkjureikning á Sauðafelli og Staðarfelli og hefur Ormur lofað að vera biskupi og heilagri Skálholtskirkju til styrks og góða. 24. febrúar 1539 8) Ögmundur Pálsson Skálholtsbiskup kvittar Orm Sturluson bónda um kirkjureikning á Staðarfelli og á Sauðafelli. sumar 1540 9) Gissur Einarsson Skálholtsbiskup samþykkir máldaga Gyrðis Ívarssonar biskups og Stefáns Jónssonar biskups fyrir Staðarfellskirkju og kvittar Orm Sturluson um kirkjureikning þar. 30. júní 1546 10) Vottfest uppskrift tveggja manna. 30. mars 1553.
Jón Þorsteinsson fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi til fullrar eignar jörðina Þóristaði á Svalbarðsströnd og kvittar um andvirðið.
Jón Arason Hólabiskup selur Skúla Guðmundssyni bónda jarðirnar Syðri-Ey á Skagaströnd, Hvamm og Kúgastaði í Svartárdal fyrir jörðina Holtastaði í Langadal og part í Kagaðarhóli.
Dómur tólf klerka nyrðra útnefndur af Ögmundi Pálssyni Skálholtsbiskupi og umboðsmanni Hóladómkirkju um kærur biskups til séra Jóns Arasonar og allra þeirra, er rænt hafa skipi dómkirkjunnar, gulli, silfri, smjöri, slátri, skreið og vaðmálum og öðrum þarflegum peningum.
Guðmundur Jónsson prestur selur Nikulási Þormóðssyni príor og klaustrinu á Möðruvöllum jörðina Böggustaði í Svarfaðardal fyrir jarðinar Bakka og Steindyr í sömu sveit með þeirri milligjöf, er bréfið hermir.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup samþykkir staðaskipti þeirra séra Ólafs Þorgeirssonar og Magnúsar Ásgeirssonar, að Ólafur verði prestur á Bægisá, en Magnús í Húsavík.
Jón Broddason officialis Hólabiskupsdæmis bannar Magnúsi Illugasyni presti að þjónusta Einar Björnsson og hans fylgjendur, sem voru að ráninu í Miklabæ.
parchment and paper
-
Vitnisburður Björns Eyjólfssonar um landamerki milli Bægisár og Neðstalands í Öxnadal. Hann var hjá föðurbróður sínum, séra Guðmundi Skíðasyni heitnum, í 23 ár og sagði hann hafa byggt Neðstaland í Reiðhól sem er á milli jarðanna og svo sjónhending á fjall upp. Allan þann tíma sem hann var hjá séra Guðmundi hafi þessi landamerki verið haldin og það hafi ekki verið fyrr en Arnes Helgason á Syðri-Bægisá vildi eigna henni land lengra suður að þau voru dregin í efa. Málið hafi farið fyrir dóm á Neðri-Lönguhlíð í Skriðuhreppi en Arnesi hafi ekkert orðið ágengt og var landið dæmt undir Neðstaland. Hann segist hafa heyrt séra Guðmund, sem var nærri 80 ára þegar hann lést, segja frá því að riðið hafi verið á landið milli jarðanna og lýrittasteinar fundist upp undan Reiðhól. Þá finnist ekkert stekkjarstæði í Neðstalandi annað en í því takmarki sem nú sé eignað undan Neðstalandi og til Bægisár fyrir utan þann stekk sem gerður var fyrir nokkrum árum á milli Neðstalands og Miðlands.
Vitnisburður Jóns Jónssonar og Brands Sveinssonar um að hafa verið viðstaddir í eldaskálanum á Urðum í Svarfaðardal þegar Hallur Magnússon taldi upp fimm jarðir sínar, þ.e. Garð í Ólafsfirði, Grilli, Gil og Þverá í Fljótum og Tungufell í Svarfaðardal, sem hann væri reiðubúinn að selja Sturla Sigurðssyni.
Vitnisburður um skilríki fyrir Hólateig eða landamerkjum í milli Reykjarhóls og Hóla í Fljótum.
Þrúður Benediktsdóttir selur Finnboga Jónssyni lögmanni jörðina Vík í Reynistaðarþingum með þeim atriðisorðum, er bréfið greinir.
Ögmundur Pálsson Skálholtsbiskup lýsir því, að hann hafi hinn 22. maí 1529 í kirkjunni á Hvanneyri í Andakíl vígt Magnús Jónsson til prestskapar í Hólabiskupsdæmi, enda hafi hann fengið löglega og fulla aflausn af páfagarði og Jón Arason Hólabiskup hafi vígt hann hinum lægri vígslum.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lýsir jarðirnar Núpufell og Hnappstaði fallna undir heilaga kirkju og hennar formenn samkvæmt Eyrarlandsdómi frá 7. júní 1479 (DI VI, nr. 202), er Árni Höskuldsson hafði rofið.
Vitnisburður Jóns Ísleikssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er þar fyrir austan fellur. Svarinn að bón bræðranna Magnúsar og Hákonar Þorsteinssona.
Jón Jónsson lýkur heilagri Hólakirkju jörðina alla á Bæ (Ábæ), er liggur í Dölum í Skagafirði, og þrjú hundruð í fríðvirðum peningum, og þar með skal Jón og Ragna Finnbogadóttir kvitt af holdlegum girndum líkamlegrar sambúðar með barngetnaði; en jörðin standi til lausnar um tvö ár fyrir tólf hundruð.
Höskuldur Árnason lofar Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi að lúka kirkjunni í Núpufelli að næstum fardögum tíutugi hundraða, og skyldi jörðin laus, þá er peningar þessir væru greiddir, en biskup hafði tekið hana að sér í síðustu fardögum.
Björn Sæmundsson selur Þorsteini Magnússyni jarðirnar Hvamm með tilgreindum landamerkjum, Foss og Molastaði í Fljótum, en Þorsteinn leggur í mót jarðirnar Syðri-Laugar, Dattsstaði og Hóla í Reykjadal í Einarsstaðaþingum.
Sáttabréf þeirra Bjarna Ólasonar og Einars Ísleifssonar ábóta á Munkaþverá um rekann fyrir Vík í Flateyjardal.
1) Dómur sextán presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru Finnboga Jónssonar lögmanns til erfingja séra Sveinbjarnar Þórðarsonar, er haldið hafði staðinn og kirkjuna í Múla, eftir hann andaðan, Þorstein og Árna, að þeir hefði og héldi peninga Múlakirkju. 2) Reikningsgrein Múlakirkju í Aðaldal, sem séra Magnús Jónsson stóð Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi. 1489. Skrifuð á bakhlið bréfsins.
1) Vottorð tveggja manna, að Þórður Þorsteinsson bóndi með samþykki Sólveigar Runólfsdóttur konu sinnar fengi Gunnlaugi Guðmundssyni til eignar þá jarðarparta, sem Sólveig stóð til að erfa eftir Herdísi Þorgeirsdóttur móður sína, konu Gunnlaugs; átti Þórður að fá Kúskerpi í Skagafirði, en Gunnlaugur jarðir í Hornafirði. 2) Alþingissamþykkt um vinnufólk og fiskimenn.
Egill Eyjólfsson Hólabiskup kaupir Frostastaði og Skálá af Arnóri frosta.
Dómur tólf presta, útnefndur af Jóni Arasyni Hólabiskupi, um gjöf þá, er Teitur Þorleifsson heitinn gaf guði og sankti Jóhannesi í sitt testamentum jörðina Glaumbæ í Skagafirði að sér frá föllnum.
Solveig Þorleifsdóttir selur Jóni Sigmundssyni syni sínum jörðina Staðarhól í Saurbæ fyrir jörðina Flatatungu, er Jón hafði fyrrum fengið af móður sinni fyrir Bjarg í Miðfirði.
Jón Henriksson (Tófason) Hólabiskup lýsir því að hann hafi unnt systrunum á Stað í Reyninesi staðinn að Hofi á Skagaströnd um aldur og ævi forfallalaust præter porcionem ecclesiæ.
Vitnisburður Marteins Ívarssonar um landamerki Molastaða.
1) Tveggja tylfta dómur, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi á prestastefnu, um kæru biskups til Árna Höskuldssonar, að hann hefði eigi haldið Eyrarlandsdóm frá 7. júní 1479 (DI VI, nr. 202) um kirkjugóssin í Núpufelli og á Hnappstöðum. 9. júní 1488. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 18. júní 1488.
Kaupmálabréf Björns Sæmundssonar og Snjófríðar Björnsdóttur.
Geir Vigfússon prestur vottar, að hann hafi lesið bréf Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups (DI VI, nr. 245) á Hnappstöðum í Eystrum-Fljótum eftir boði biskups, og síðan lögfest jörðina undir heilaga kirkju.
Arnfinnur Þorsteinsson kaupir fimm hundruð í jörðinni Hálsi í Svarfaðardal af Kristínu Oddsdóttur, er hún hafði erft eftir Odd föður sinn.
Hallur Ketilsson selur með samþykki Solveigar Jónsdóttur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi jarðirnar Víðar í Reykjadal og Helluvað við Mývatn fyrir Skútustaði við Mývatn.
Ísleifur Sigurðsson, kóngs umboðsmaður í Vöðluþingi, kvittar Eyvind Magnússon um allar kóngs sektir á viðskiptum þeirra Eyvindar og Sveins Jónssonar heitins.
Sigurður Þorláksson prestur lýsir því, að hann hafi lukt og fengið Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Hól í Siglufirði með skilorði, er greinir í fyrra bréfi.
Testamentisbréf Jóns Þórðarsonar.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup kvittar Svein Hallvarðsson fyrir reikningsskap kirkjunnar á Ríp í Hegranesi.
Dómur sex presta, útnefndur á prestastefnu af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi, um 14 hundraða meðlag með Agli Hallssyni presti, er Teitur Þorleifsson bóndi hafði lofað, þegar Gottskálk Hólabiskup tók séra Egil ungan smádreng heim til Hóla til lærdóms.
Staðarbréf handa séra Jóni Brandssyni um Barð í Fljótum, útgefið af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi.
Próventugerningur Jóns Sigfússonar og Arnþrúðar Árnadóttur við Jón ábóta og klaustrið á Munkaþverá.
Sigmundur Jónsson selur Jóni Péturssyni presti jörðina Illugastaði í Flókadal með fyllra skilorði en næsta bréf á undan greinir (þ.e. DI VI, nr. 165).
Margrét Eiríksdóttir, ærleg kvinna og velborin, afhendir Jóni Vilhjálmssyni Craxton Hólabiskupi og Hólastað, með samþykki Magnúsar Benediktssonar sonar síns, jörðina Sjávarborg, er hún hafði áður selt honum.
Próventubréf Helgu Finnsdóttur við frú Barböru abbadís og klaustrið á Stað í Reyninesi.