Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
Afhending Reynistaðarklausturs undir yfirsýn Loga Stígssonar officialis, þegar séra Björgólfur Illugason lét af ráðsmennsku, en systir Þórunn Ormsdóttir og systir Þuríður Halldórsdóttir tóku vð staðnum.
Einar Ísleifsson ábóti á Munkaþverá selur Sigurði Jónssyni príor og klaustrinu á Möðruvöllum skóg með tilgreindum ummerkjum í Skuggabjarga jörðu í Laufássókn, fyrir vervist út í Flatey með öllum vergögnum, saltbrennu, húsgerð og naustgerð.
1) Brandur Jónsson lögmaður norðan og vestan á Íslandi úrskurðar, að Ólafi Rögnvaldssyni skuli gjaldast allir skattar, skyldur og sakeyrir um Hegranessþing, samkvæmt bréfi Kristjáns konungs (frá 29. nóvember 1459, nr. 187). 10. nóvember 1463. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 29. apríl 1489.
Finnbogi Jónsson lögmaður fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi til fullrar eignar jarðirnar Ásgeirsár og Lækjamót í Víðidal með þriðjungi af þeim peningum, sem stóðu með jörðunum, þá er Narfi Sigurðsson og Sigurður Narfason luktu Finnboga þær, - gegn tilkalli og eignarorði biskups til Lögmannshlíðar í Kræklingahlíð.
Sveinn Þorfinnsson fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi til fullrar eignar jörðina Ystagil í Langadal með þeim ítökum, er bréfið greinir, en biskup lofar að kenna Jóni syni Sveins til prests, og fær honum til halds staðinn í Vestuhópshólum þar til Jón sonur hans vígist þangað, og skal Sveinn ekki annað af staðnum gjalda en biskupsgisting og útlausn, þegar biskup fer í yfirreið sína.
Vigdís Jónsdóttir selur Páli Þórólfssyni þann hluta í jörðunni Björgum í Kinn, er hún hafði erft eftir Björn Jónsson bróður sinn.
Benedikt Sæmundsson selur Ögmundi Andréssyni presti með samþykki Sigríðar Hallsdóttur konu sinnar 15 hundraða part í Borgarhöfn í Hornafirði, er hann erfði eftir Sigríði Jónsdóttur móður sína.
Þorvarður Guðmundsson gefur, með leyfi bræðra sinna séra Þórðar og Ívars Guðmundssona, Sigurði Finnbogasyni og Margrétu Þorvarðsdóttur konu hans jörðina Egilsstaði í Fljótsdalshéraði í próventu sína.
Þorsteinn Þorleifsson bóndi fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og Hóladómkirkju til eignar jarðrinar Presthvamm í Grenjaðarstaðarþingum og Tungu á Tjörnesi til fullrar eignar, og lausafé að auki, en biskup kvittar Þorstein um fjársektir þær, er á hann höfðu verið dæmdar.
Jón Hallvarðsson, Ásgautur Jónsson og Medía Sigurðardóttir móðir hans gefa Jóni Sigmundssyni til eignar og sóknar alla þá peninga fasta og lausa, sem Sigurður Geirmundsson hefði gefið Medíu dóttur sinni og Ásgauti dóttursyni sínum.
Bréf um landamerki Ytra-Hóls í Kaupangssveit og Grafar.
1) Pétur Pálsson ábóti á Munkaþverá og Magnús Jónsson prestur selja, í umboði Jóns Arasonar Hólabiksups, Ögmundi Pálssyni Skálholtsbiskupi jarðinar Æðey, Unaðsdal, Sandeyri og fimm jarðir í Veiðileysi fyrir jarðinar Mársstaði og Skútir, en fyrir hálfa Akra, hálfa Sjávarborg og Kimbastaði, er Ögmundur biskup fær Jóni biskupi, skal Jón biskup fá honum aðrar jarðir, er þeim um semur, með fleira því, sem bréfið hermir. 30. apríl 1533. 2) Vottfest uppskrift tveggja manna, 20. júní 1553. 3) Vottfest uppskrift fjögurra manna, 16. júní 1565. 4. Liðsbónarbréf, óársett brot.
Arngrímur Jónsson og Stígur Björnsson prestar ásamt Jóni Einarssyni og Jóni Jónssyni gera kunnugt að hafa séð og yfirlesið jarðareikning Hóladómkirkju sem gerður var eftir andlát Jóns Arasonar Hólabiskups. Þar kemur fram að hann hafi fengið Hóladómkirkju jarðir fyrir þær sem hann hafði burtselt og lógað. Umræddar jarðir eru: Mannskapshóll 60 hndr., Ytra Vatn 30 hndr., hálft Ytra Vallholt 20 hndr., Þórisstaðir 50 hndr., Guðrúnarstaðir 60 hndr., Núpur 50 hndr., Harastaðir 40 hndr., Tungufell 40 hndr., í Eyvindarstaðir 50 hndr., Saurar 10 hndr., Veisa 40 hndr., hálfur Stafn 10 hndr., Stóridalur 40 hndr., Síða 10 hndr.
Hallur Ásgrímsson fær Ólafi Rögvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til ævinlegrar eignar jörðina Steðja í Hörgárdal og lausafé að auk upp í sakir við biskupinn bæði fyrir kirknarán og barnshvarf.
Helgi Ketilsson kvittar Jón Þorvaldsson prest um andviði jarðarinnar Ytri-Valla í Miðfirði.
Klerkar fyrir norðan lands kjósa Ólaf Rögnvaldsson prest til Hólabiskups.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup selur Oddi Þorbjarnarsyni jörðina Halldórsstaði í Ljósavatnsþingum fyrir Leifsstaði í Öxarfirði.
Bréf Henriks Krags höfuðsmanns frá 14. júlí 1593 um veiði Stafholtskirkju í Nikuláskeri í Laxfossi í Norðurá.
Testamentisbréf Margrétar Bjarnardóttur.
Vitnisburðarbréf um viðtal þeirra bræðra Magnúsar Bjarnarsonar og Gunnars Bjarnarsonar um eign á parti í Harrastöðum.
Vitnisburður Einar Hafliðasonar prests og þriggja annarra, að Brandur Eiríksson bóndi frá Höfða hafi borgað að ábyrgjast allar lagariftingar á Frostastöðum.
Snorri Bjarnason selur Einari Ísleifssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá jörðina Hróastaði í Fnjóskadal með þeim gögnum og gæðum, er hann og Rannveig Björnsdóttir kona hans varð eigandi að, en ábóti leggur í mót Kross í Ljósavatnsþingum.
Vitnisburður um reikningsskap séra Sigurðar Jónssonar staðinn Ólafi Hjaltasyni Hólabiskupi af norðurumboðum.
Tylftardómur klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um kæru biskups til Helga Ásgrímssonar daglegs sveins síns, að hann hefði ekki viljað ríða norður með öðrum sínum sveinum með séra Nikulási Vilhjálmssyni að lesa dóm yfir Oddi Arnórssyni.
Dómur sex presta, kvaddra af Ólafi Hjaltasyni Hólabiskupi, dæmir af Magnúsi Jónssyni, "sem prestur hafði verið", þrjár Hólastólsjarðir, er honum höfðu verið fengnar "í sína lífstíð" til framfæris.
Nikulás Vilhjálmsson prestur selur í umboði Gróu Guðmundsdóttur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi hálfa jörðina Skörð í Reykjahverfi fyrir jörðina Finnastaði í Höfðahverfi.
Kaupbréf fyrir Lundi í Fljótum.
Einar Benediktsson ábóti á Munkaþverá selur Guðmundi Þorleifssyni jörðina Ásgeirsvöllu í Skagafirði fyrir jörðina Tjarnir í Ljósavatnsskarði.
Dómur fimm manna útnefndur af Ara Þorbjarnarsyni officiali heilagrar Hólakirkju um hald Stefáns Hallssonar á prests- og kirkjutíundum af Uppsölum fyrir Munkaþverárklaustri.
Jón Henriksson (Tófason) Hólabiskup kvittar Steindór Andrésson um hálfa jörðina Brúarland í Óslandshlíð.
Ólafur Filippusson selur með samþykki Einars sonar síns Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi jörðina Auðkúlu í Svínadal fyrir jarðinar Ytri- og Syðri-Borg í Vesturhópi, með þeim atriðum, er bréfið hermir.
Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Þórunnar Finnbogadóttur á jörðunni Valþjófsstöðum í Núpasveit, er biskupinn reiknaði eign Hólakirkju í Hjaltadal.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup selur Skúla Loftssyni bónda jöðina í Ási í Vatnsdal fyrir Uppsali í Skagafirði.
Vottorð þriggja klerka, að Óli Bjarnason og Þóra Sturludóttir kona hans hafi árið 1435 fengið Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi jörðina Ljósavatn kvitta af sér og ákærulausa.
Hálfdan Einarsson handsalar Einari Ísleifssyni ábóta á Munkaþverá klaustrinu til eignar þann skóg, er hann reiknaðist eiga í Vaglajörðu í Fnjóskadal, gegn svo miklu timbri úr skóginum, er Árni Einarsson bróðir Hálfdanar hafði átt skilið, en það var tíu hundrað að tölu eða tólf.
Reikningur Möðruvallaklausturs.
Sigurður Þorláksson officialis úrskurðar löglegan Blákápuselsdóm (DI VI, nr. 434).
Goðsvin Comhaer Skálholtsbiskup og formann og umboðsmann heilagrar Hólakirkju vottar, að hann hafi séð próventubréf Jóns Vilhjálmssonar Craxtons Hólabiskups og Sveins Hallvarðssonar, og af því að Sveinn hefur fullgoldið próventukaupið kvittar biskup hann öldungis fyrir.
Vitnisburður fjögurra presta, að Marjón hafi fengið Ólafi Rögnvaldsyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju jörðina Finnastaði í Höfðahverfi fyrir þau frænsdemisspell, er Steinvör dóttir hennar féll í með Sigurði Grímssyni.
Kaupmálagjörningur Bjarna Ólasonar og Margrétar Ólafsdóttur, Loftssonar, er fram fór 1461, en vottast og bréfast af fimm mönnum tíu árum síðar.
Magnús Ásgrímsson prestur afhendir Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Eið á Langanesi til fullrar eignar fyrir þær sakir og brot, sem hann hafði brotlegur orðið með biskupinn.
Vitnisburður Kolbeins Tómassonar, að Helgi Bjarnarson prestur og nokkrir nafngreindir menn með honum hafi tekið hval þann og látið flytja burt, sem rak í Náttfaravíkum út frá Svíná, á milli og Ófeigshellis, en Einar ábóti á Munkaþverá tekur vitnisburðinn.
Vitnisburður Ólafs Sigurðssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og landið þar um kring, reka og um þann ós sem þar fyrir austan fellur, Dyrhólaós. Svarinn að bón bræðranna Magnúsar og Hákonar Þorsteinssona
Dómur níu klerkmanna og tveggja leikmanna útnefndur af Jóni Snorrasyni presti og prófasti milli Glerár og Úlfsdalsfjalla um lambseldi til kirkju hins blessaða Ólafs kóngs á Völlum í Svarfaðardal.
Kvittunarbréf til handa Jóni Sigmundssyni um biskupstíundir.
Tylftardómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um reka Reynistaðarklausturs milli Gaukstaðaár og Fossár og í Litlabási fyrir utan Gaukstaðaá.
Vitnisburðarbréf 24 presta um mótblástur, hugmóð og forþrot Hrafns Brandssonar lögmanns við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup.
Próventubréf Sveins Guðmundssonar, er Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup tekur í próventu á Hólastað.
Ásmundur Hallsson prestur lýsir því, að hann muni ekki til þess, að hann hafi neina peninga út tekið vegna klaustursins í Kirkjubæ af Margréti Þorbergsdóttur, en vill þó ekki þræta þess, ef hún leiðir tvö skilrík vitni að því með svörnum eiði.