Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
Afrit af bréfi Brynjólfs Sveinssonar Skálholtsbiskups um yfirráð (jus patronatus) Ingjaldshólskirkju. Skipar Matthíasi Guðmundssyni, sýslumanni og Stapaumboðsmanni, að taka að sér forstöðu og fjárræði kirkjunnar. 7. apríl 1663. Afrit gert af Magnúsi Jónssyni lögmanni á Öxarárþingi 7. júlí 1689.
Kvittunarbréf Sigurðar Ívarssonar til handa Jóni Þorvaldssyni presti um lúkning á andvirði tíu hundraða í jörðinni Mánaskál.
Bréf Þorleifs Björnssonar um veðsetningu hans á Galtarnesi í Víðdal til Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups um þrjú ár.
Sigmundur Steinþórsson veðsetur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Flatatungu í Skagafirði, að dýrleika tíu tugi hundraða, fyrir sektir við biskup út af Miklabæjarráni og öðrum oftekjum, en áskilur sér lausn á jörðinni innan þriggja ára.
Stefán Ögmundsson selur heilagri Hólakirkju fjórðunginn úr jörðunni Skálá í Sléttahlíð.
Vitnisburður, að Vigdís Jónsdóttir sór að því bókareið, að Ólafur Filippusson bóndi sinn hefði að sínu viti ekki verið í neinum þeim sökum að sifjum eða mægðum né nokkurri útlegð, að það mætti hindra þeirra hjónskap.
Jón Ólason lýkur Þorlaugu Árnadóttur konu sinni jörðina Ærlæk í Öxarfirði fyrir Stokkahlaðir í Eyjafirði, er hann hafði selt, en hún hafði haft til kaups við Jón.
Bréf um útlúkning Ásgeirsáa og Lækjamóts og fjögurra jarða (Krossnes, Melar, Norðfjörður og Seljanes) á Ströndum til Finnboga Jónssonar lögmanns og Teits Þorleifssonar.
Guðríður Ólafsdóttir vottar að Rannveig Eiríksdóttir hafi 13. ágúst 1407 gefið Oddi Oddssyni í fjórðungsgjöf hálfa jörðina Skóga í Axarfirði og þar til tíu hundruð; samþykkti Oddur Eiríksson bóndi hennar gjöfina og lagði mála konu sinnar upp í jörðina Ærlæk.
Dómur sautján klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákærur biskups til Þorsteins Þorleifssonar um töku á Húsavíkurstað og fleirum kirkjunnar eignum.
Skrá um landamerki Þrándarstaða og Ingjaldshóls undir Jökli.
Vitnisburður Magnúsar Gunnsteinssonar, nærri 70 ára, um að í sínu ungdæmi hafi hann þekkt Þorlák Helgason heitinn, sem síðast þegar hann vissi bjó í Ljótshólum í Svínavatnshreppi, og hafi hann aldrei heyrt tvímæli á því leika að hann væri samfeðra bróðir Brands Helgasonar heitins.
a) Nokkrar minnisgreinar séra Jóns Sigurðssonar á Breiðabólsstað um prestverk og möguleg jarðakaup. 1636. b) Fjörumörk Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð eftir gamalli kórbók kirkjunnar, ásamt fornri lögfestu forsögn. Um 1363. c) Ágrip úr „Laxmans“ bréfi um þessi fjörumörk. 1608. d) Ágrip af samningi um þessi fjörumörk. 1603.
Sveinn Sumarliðason bóndi fær Jóni Finnbogasyni að gjöf til fullrar eignar jörðina Skáldalæk í Svarfaðardal, og gerir það með samþykki Guðríðar Finnbogadóttur konu sinnar.
Ólafur Hjaltason Hólabiskup fær Vigfúsi Þorsteinssyni til eignar 20 hundruð í heimalandi í Ási í Kelduhverfi, þau er kirkjan átti, en Vigfús skyldi aftur greiða kirkjunni 20 hundruð í fríðum peninum.
Ólafur Bjarnason fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til fullrar eignar hálfa jörðina Hvassafell í Eyjafirði, en biskup kvittar Ólaf um gröft foreldra hans, Margrétar Ólafsdóttur og Bjarna Ólasonar, er Ólafur hafði grafið að kirkju í forboði biskups.
Jón Arason Hólabiskup boðar klerka á milli Hrútafjarðarár og Úlfsdalafjalla til prestastefnu á Víðivöllum í Blönduhlíð föstudaginn 4. maí 1526.
Sex manna dómur, genginn að Dyrhólum 8. október 1448, útnefndur af Jóni Jónssyni officialis, þar sem Þykkvabæjarklaustri í Veri er dæmd til ævinlegrar eignar hálf Dyrhólaey í Mýrdal (Dyrhóladómur).
Sex prestar og þrír leikmenn í Hólabiskupsdæmi skilja stólinn undan þeirri skyldu, að prestar fái leigulausar hinar bestu dómkirkjunnar jarðir.
Þórður Jónsson lýsir því, að hann hafi gefið séra Sigurði Þorlákssyni jörðina Hól í Siglufirði.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup kvittar Þuríði Halldórsdóttur systur á Reynistað um barneign með Þorláki Sigurðssyni.
Tylftardómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um kaup forvera síns Gottskálks Kenekssonar af séra Sigmundi Steindórssyni um jörðina Syðsta-Hvamm á Vatnsnesi.
Þorkell Guðbjartsson prestur vottar um skipti þeirra Jóns Vilhjálmssonar Craxtons Hólabiskups og Ólafs Eyjólfssonar, að Jón biskup lætur Ólaf fá þann part, sem Hólastaður átti í Höfða í Höfðahverfi fyrir jörðina Héðinshöfða á Tjörnesi.
a) Opið bréf Odds Einarssonar biskups um ágreining á milli prestanna séra Árna Gíslasonar í Holtsstað og séra Sigurðar Einarssonar á Breiðabólsstað um rekapart. 26. janúar 1608. b) Vitnisburður þriggja presta um að hafa verið viðstaddir á Lambeyjarþingi þegar séra Sigurður Einarsson las bréfið fyrir séra Árna Gíslasyni og bauð máldaga sinn undir álit biskups og höfuðsmanns en afsagði héraðsdómi og áreið. Þá gerði séra Árni fimmtarstefnu til áreiðar á fjöruna. Aðeins undirskrifað af séra Páli Erasmussyni. 29. janúar 1608.
Einar Björnsson fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi til fullrar eignar jörðina Kamphól fyrir 30 hundraða í þann pant, er hann hafði sett biskupinum í Þverá í Vesturhópi fyrir þær sakir, sem hann hafði brotlegur orðið við guð, heilaga kirkju og biskupinn.
Tylftardómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um reka Reynistaðarklausturs milli Gaukstaðaár og Fossár og í Litlabási fyrir utan Gaukstaðaá.
Grímur Egilsson kaupir hálfa jörðina Brúarland í Deildardal af Ólafi Hallssyni og Jórunni konu hans fyrir lausafé.
Þrír klerkmenn votta, að Einar ábóti á Munkaþverá seldi með samþykki konventubræðra Gottskálki Hólabiskupi og Hólastað þann part, er klaustrið átti í Laxármýraósi, til móts við Grenjaðarstað, en biskup lét klaustrið fá í staðinn alla þá laxveiði, er Hólastaður átti í Deildará norður á Sléttu.
Jón Gamlason ábóti á Þingeyrum og fjórir klerkar aðrir votta, að systir Margrét Þorbergsdóttir hafi lýst því í náveru Goðsvins Comhaer Skálholtsbiskups, að hún hafi lofað frú Guðrúnu abbadís á Kirkjubæ hlýðni, eins og hún hafi fyrr sagt hlýðni í hennar klaustur í Noregi, og að hún hafi verið í fimm ár í greindu klaustri.
Böðvar Finnsson lýkur heilagri Hólakirkju til ævinlegrar eignar jörðina Þverá í Svarfaðardal, 24 hundruð að dýrleika, í fullrétti, er hann varð kirkjunni skyldugur eftir tólf presta dómi.
Gissur Einarsson Skálholtsbiskup staðfestir á prestastefnu dóm Magnúsar Eyjólfssonar officialis frá 3. maí 1544 um mál séra Jóns Eiríkssonar (DI XI, nr. 265, bls. 283).
Einar Ísleifsson ábóti á Munkaþverá kvittar Bjarna Ólason bónda um þá peninga, er hann skyldi gefa í millum Kasthvamms og Jódísarstaða og Höskuldsstaða.
1) Þórður Örnólfsson afhendir Finni Gamlasyni í umboði Valgerðar Vilhjálmsdóttur konu hans, jarðirnar Barð í Fljótum, Reyki, Grilli, Steinavöllu, Illugastaði, Nes, Ysta-Mó, Móskóga og Laugaland. 25. desember 1416. 2) Tveir menn transskríbera bréf um nokkrar jarðir í Fljótum. 30. maí 1487.
Vitnisburðarbréf, að Árni Þorleifsson handleggur Þorgerði Hallsdóttur, konu Símonar Pálssonar, jörðina Merkigil í Eystrumdölum til fullrar eignar eftir gjöf Þorleifs Árnasonar föður síns.
1) Þorleifur Björnsson kvittar Svein Guðmundsson um andvirði jarðarinnar á Kryddhóli. 8. janúar 1477. 2) Transskriftarbréf tveggja manna. 7. maí 1490.
Fjórir menn votta, að Höskuldur Runólfsson seldi Jóni Sighvatssyni 1404 jörðina að Hvoli í Vesturhópi fyrir Tungufell í Svarfaðardal.
Klængur Einarsson prestur vottar, að hann hafi lesið dóminn um Hólateig, frá 19. apríl 1474 (DI V, nr. 654) yfir Þorvaldi Jónssyni.
Símon Þorsteinsson fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi til fullrar eignar jörðina Fagraskóg á Galmaströnd og kvittar um andvirðið.
Illugi Björgólfsson gefur heilagri Hólakirkju og Jóni Vilhjálmssyni Craxton Hólabiskupi þrjá hluti í jörðinni Hóli á Skaga með öllum gögnum og gæðum, og vill ekki neitt fyrir taka, nema umbun af guði og ýmsum guðs helgum mönnum, og þar á meðal hinum góða Guðmundi biskupi.
Vitnisburður Einars Jónssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er er þar fyrir austan fellur og Dyrhólaós er kallaður. Svarinn að bón Hákonar Þorsteinssonar.
Jón Magnússon gefur séra Jóni Finnbogasyni jarðirnar Rauðá og Bæ fyrir hálfa Grenivík í Höfðahverfi og þar til milligjöf nokkra.
Ásmundur Hallsson prestur lýsir því, að hann muni ekki til þess, að hann hafi neina peninga út tekið vegna klaustursins í Kirkjubæ af Margréti Þorbergsdóttur, en vill þó ekki þræta þess, ef hún leiðir tvö skilrík vitni að því með svörnum eiði.
Hallsteinn Þorsteinsson gefur aftur í vald Benedikts Sæmundssonar það sama lögveð, sem hann hafði lagt upp í fimmtán hundruð í Borgarhöfn í Hornafirði, en Benedikt gefur hann kvittan um meðferð og byggingu á Borgarhöfn með fleira skilorði, er bréfið greinir.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup dæmir séra Ara Þorbjarnarsyni 100 hundraða gjald til sín og heilagrar Hólakirkju fyrir forsómun í officialisstarfi á ýsman hátt og óhlýðni við sig.
Sveinn Hallvarðsson og Ástríður Jörundardóttir kona hans fá Jóni Vilhjálmssyni Craxton Hólabiskupi jörðina Ríp í Hegranesi upp í reikningskap, en það sem jörðin var dýrari gengur upp í próventu Sveins, og ákveða þeir ítarlegar um próventuskilmálana.
Gunnar Jónsson prestur vottar, að Þorleifur Árnason heitinn hafi sjúkur á líkama, en heill að skynsemi, gert sitt testamentum, og hafi hann þá gefið með endurnýjuðum gerningi Þorgerði Hallsdóttur Vatn eða Merkigil, hvort sem hún heldur vildi, og þar til tíu kúgildi.
Jón Skúlason og Ingibjörg Sigurðardóttir gefa Ísleifi Sigurðssyni, bróður Ingibjargar, umboð yfir öllum þeim peningum, er börnum Ingibjargar hafa til erfða fallið eftir Bjarna Torfason föður sinn og Helgu Guðnadóttur ömmu sína.
Stefnubréf Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups til Þorláks Gíslasonar um það, að hann hefði farið til Efsta-Lands, jarðar Hólakirkju, brotið upp bæinn, raskað húsum og hrakið Ásgrím Árnason, landseta heilagrar kirkju.
Sigurður Sigurðsson prófastur skoðar reikningsskap kirkjunnar á Ingjaldshóli.