Den Arnamagnæanske Samling
Nasjonalarkivet
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Reykjavík: 7451 documents
(1781 documents in progress, 3794 done, 40 left)
Vitnisburður Þorvalds Jónssonar um að hann hafi, ásamt fleiri mönnum (ónefndum), verið við staddur þegar Magnús Jónsson gaf Elínu Magnúsdóttur, dóttur sinni, jörðina Þórustaði.
Vitnisburður Brands forgilssonar og tveggja manna annarra að Þingeyraklaustur hafi átt og haldið alla fiskveiði í «Víðudalsá»
fyrir Syðri-Borg að helmingi við Þorkelshólsmenn frá Ingimundarhóli og ofan til Melrakkadalsáróss meir en þrjátiu ár átölulaust.
Sjá AM Dipl. Isl. Fasc. LIX, 23.
Afrit af eignaskrá Guðmundar ríka Arasonar, dómsbréfi um arf og annálsbrot.
Sjá AM Dipl. Isl. Fasc. LVIII, 5.
Magnús bóndi Björnsson kaupir jörðina Kross í Krosshlíð af hjónunum Nikulási Einarssyni og Þórdísi Jónsdóttur fyrir 12 hundruð en fær þeim í staðinn Fagranes við Mývatn fyrir 8 hundruð.
Vigfús hirðstjóri Erlendsson veitir Þorsteini Finnbogasyni sýslu á milli Vargjár og Úlfdalafjalla.
Afrit af AM Dipl. Isl. Fasc. LV, 21 (Vitnisburður um dýrleika Hofs í Dýrafirði).
Keistín Þorsteinsdóttir gefr Ingveldi Helgadóttur, dóttur
sinni, tíundargjöf úr öllnm sínum peningum, sem hún reiknaði þá, að frádregnum skuldum, hálft fimta hundrað hundraða, og greindi í þá gjöf sérlega jarðirnar Syðra-Dal og
Minni-Akra í Skagafirði.
Gísli Magnússon selur syni sínum Birni Gíslasyni Skutulsey fyrir Mýrum og 18 hundruð í Laxárholti með sex kúgildum fyrir 450 ríksdali er Björn skyldi gjalda Hans Nanssyni, borgara í Kaupmannahöfn, en það var skuld eftir Þorleif Gíslason bróður hans andaðan.
Vitnisburður um hestmál, og hafði Þorkell Skeggjason gripið
hest fyrir Grírni Þorsteinssyni.
Magnús Björnsson kaupir Reykjahlíð við Mývatn af Nikulási Einarssyni sem fær í staðinn fyrir Héðinshöfða á Tjörnesi og Finnsstaði í Eiðakirkjusókn.
Kaupmáli sr. Snorra Hákonarsonar og Þórkötlu Bjarnadóttur.
Dómr tólf manna útnefndr af Þorleifi bónda Arnasyni sýslumanni í Hegranessþingi um skuldamál milli Ásgeirs Árnasonar
og Guðfinnu konu hans af einni hálfu og Sveins Hallvarðssonar og Ástríðar konu hans af annari, út af gjöf séra Einars
Olafssonar til Rannveigar dóttur sinnar.
Margrét Ólafsdóttir (Loftssonar) gefur Jón Ólafsson bróður sinn kvittan um allan föðurarf sinn og umboð allra sinna peninga.
Vitnisburður að Halldór Sigmundsson hefði gefið Sumarliða syni sínum jörðina Meiragarð í Dýrafirði
til æfinlegrar eignar.
Vitnisburður Þorláks Auðunarsonar um skóginn Botnsdal í Tungulandi í Skutilsfirði, sem er eign Kirkjubólskirkju.
Fimm menn afrita jarðakaupabréf Odds bónda Kolbeinssonar og Stefáns Snorrasonar. Oddur kaupir jörðina Syðri-Vík og Stefán lætur í staðinn jörðina Hrærekslæk og lausafé. Fjórir menn hafa vottað frumbréfið.
Viðurvistarbréf sex manna um gjörning þeirra Jóns Jónssonar lögmanns og Gunnars Gíslasonar bónda um að allur ágreiningur milli þeirra skyldi niður falla, sem sprottinn var af sölu Gunnars á hálfum Silfrastöðum og Borgargerði til Jóns lögmanns. Skyldu þær jarðir nú vera eign Jóns með sama móti sem Gunnar keypti þær af Brandi.
Indriði Hallsson og Hildur Ólafsdóttir kona hans gefa kvitt það tilkall er Þórður Helgason hafði til þeirra haft um jörðina Bakka á Skógaströnd.
Þorkell Guðmundsson lofar séra Brynjólfi Árnasyni að sanna með eiði sinn vitnisburð um landamerki jarðanna Hóls, Hvamms og Kúastaða í Svartárdal.
Kaup- og landamerkjabréf um Hróaldsstaði í Vopnafirði.
Vitnisburðarbréf þriggja manna um það, hver bréf Þorleifr
Björnsson hafði með sér til Danmerkr, og bauð „fram á kongsins náðir og ríkisins ráð i Noregi á Öxarárþingi á Íslandi“,
svo og í „kanceleri".
Falsbréf ritað á uppskafning. Texti þess snýst um landamerki á milli Núps (Gnúps) og Alviðru og Gerðhamra í Dýrafirði.
Afrit tveggja bréfa, gert í Skálholti árið 1672.
1) Hannes Bjarnason selur Bjarna Sigurðssyni Ísólfsstaði á Tjörnesi og tilgreinir landamerki, fær í staðinn Hlíð í Grafningi. Hagi í Holtum, 1. maí 1642.
2) Vitnisburður Jóns Finnbogasonar, handsalaður Hákoni Árnasyni, um landamerki Ísólfsstaða. Ytri-Tunga á Tjörnesi, 22. janúar 1582.
Arfaskiptabréf Sesselju Ásmundsdóttur.
Samningur þeirra Jóns Sigmundssonar og Runólfs Höskuldssonar um Ásskóg, er Jón eignaði jörðunni Vindheimum á Þelamörk.
Fjórir menn votta um jarðaskipti og jarðakaup þeirra Þorgils Jónssonar og Ingunnar Brynjólfsdóttur konu hans, Benedikts Brynjólfssonar og Bjarnar Einarssonar.
Prófentugjörningur Árna bónda Bárðarsonar og Arngríms ábóta Brandssonar á Þingeyrum.
Stefnubréf Þorleifs Magnússonar, í umboði Jóns Þórðarsonar, til Einars Jónssonar, að koma til Hvestuþings 4. maí 1670 fyrir konungs umboðsmenn í Barðastrandarsýslu, Magnús Jónsson og Eggert Björnsson, og svara þar fyrir sig viðvíkjandi kröfu Þorleifs fyrir hönd barna Ívars Jónssonar til jarðarinnar Auðna á Barðaströnd af Einari og Sigurði bróður hans.
Vitnisburður séra Páls Brandssonar að séra Jón heitinn Brandsson, bróðir hans, hefði sagt sér að hann vildi ekki meðkennast að hafa selt Jóni lögmanni jörðina Garð í Ólafsfirði, né að hann hefði gefið Jóni lögmanni lagaumboð upp á Hall Magnússon eða Gunnlaug Ormsson, skyldmenni sín.
Page 45 of 150
















































