Den Arnamagnæanske Samling
Nasjonalarkivet
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
Þorleifur Björnsson kvittar Svein Guðmundsson um andvirði jarðarinnar á Kryddhóli. 8. janúar 1477.
Helgi Oddsson selur Arnfinni Þorsteinssyni þann hluta í jörðinni Hálsi í Svarfaðardal, er Helgi erfði eftir Odd föður sinn.
Bróðir Ásbjörn Vigfússon ábóti á Þingeyrum kvittar Einar Bessason fyrir 30 hundraða, er hann var ábóta skyldugur fyrir jörðina Ytri-Ey í Höskuldsstaðaþingum.
Jón Arason Hólabiskup veitir Magnúsi Jónssyni djákna (syni sínum) prófastsdæmi á milli Hrauns á Skaga og Hofs í Dölum, en Gísli Sigurðsson prestur fari með prófastsdæmið.
Hákon Jónsson beiðist Odds Vigfússonar eða hans löglegs umboðsmanns, og býður sig undir lög um það tilkall, er Oddur þóttist eiga til jarðarinnar Kirkjubóls í Skutilsfirði, er Hákon hafði að sér tekið og á sest; téði og Hákon sín vitnisburðarbréf um, að hann hefði erft jörðina eftir foreldra sína, og lögfestir hann sér hana.
Guðríður Oddsdóttir handabandar með samþykki Ketils Þórðarsonar bónda síns Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi alla þá peninga, er henni hafa til erfða fallið eftir Blíg Höskuldsson föðurbróður sinn, hvar sem þeir uppspyrjast, fyrir 16 kúgildi, einn ketil og eitt hross.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup staðfestir og samþykkir Viðvíkurdóm frá 29. apríl 1474 (DI V, nr. 654) um Hólateig í Fljótum.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup staðfestir bréf hinna fyrri Hólabiskupa, Jörundar, Auðunar og Jóns, gefin til styrktar og verndar klaustrinu á Reynistað.
Dómur sjö klerkmanna útnefndur af Gottskálki Kænekssyni Hólabiskupi um séra Odd Þorkelsson, er biskupinn kærði fyrir það, að hann hefði haldið Bægisá ólöglega.
1) Þórður Þórðarson og Steinmóður Þorsteinsson officiales skipa Þorsteini Hallssyni svart kirkjuhlutann í Knappsstöðum í Fljótum, 16. apríl 1399. 2) Þorsteinn Hallsson svartur kaupir hálfa jörðina Knappstaði í Fljótum, 16. apríl 1399. 3) Transscriptum þriggja presta af tveim bréfum um Knappstaði í Fljótum frá 16. apríl 1399, 13. júní 1479.
Þorleifur Árnason bóndi selur Sveini Guðmundssyni jörðina Nýjabæ í Eystrumdölum í Skagafirði með tilgreindum landamerkjum og kvittar Svein um andvirðið.
Vitnisburður Odds Einarssonar og Magnúsar Sigurðssonar um að hafa verið viðstaddir á Arnbjargarlæk í Þverárhlíðarheppi 21. júlí 1591 þegar Brandur Guðmundsson meðkenndi fyrri vitnisburð sinn, frá 1. september 1589, um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá, sjá F5.
Dómur klerka, útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um kæru biskups til Gunnlaugs Helgasonar, vegna Ingileifar Kolladóttur konu Gunnlaugs, um peninga þá, er séra Jóni Kollasyni bróður hennar höfðu fallið til arfs eftir Kolla Magnússon og Ingibjörgu Þorláksdóttur foreldra sína og fleiri frændur, svo og um hestgrip og smjörtöku.
Dómur að Þórður Guðmundsson lögmaður lét dæma öll skjöl veiðinnar í Nikulásarkeri í Norðurá fyrir sig.
Samningur Ólafs Hjaltasonar Hólabiskups og séra Einars Úlfssonar um það, að prestur sleppi tilkalli sínu til Sæunnarstaða í Hallárdal, en biskup lofar að styrkja til, að prestur nái réttum lögum um tikall sitt til Strjúgs og Refsstaða, er faðir hans hafði látið úti við Jón Arason Hólabiskup fyrir Barkarstaði í Svartárdal, en sú jörð var nú af honum gengin og systkinum hans.
Benedikt Sæmundsson selur með upplagi og samþykki Sigríðar Hallsdóttur konu sinnar séra Ögmundi Andréssyni 15 hundruð í jörðinni Borgarhöfn í Kálfafellskirkjusókn fyrir 20 hundruð í lausafé.
Sigurður Sigurðsson prófastur skoðar reikningsskap kirkjunnar á Ingjaldshóli.
Helgi Höskuldsson ábóti á Þingeyrum og átta klerkar aðrir samþykkja Pétur Pálsson prest forstjóra Hóladómkirkju til næstu prestastefnu eftir Gottskálk Nikulásson Hólabiskup andaðan til jafns við Jóns Arason prest, er Einar Benediktsson ábóti á Munkaþverá og Nikulás Þormóðsson príor á Möðruvöllum höfðu, ásamt fleirum klerkum fyrir norðan Öxnadalsheiði, samþykkt.
Dómur klerka, útnefndur á prestastefnu af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi, um umboð það, er Guðrún Jónsdóttir, kona Einars Jónssonar, Sigmundssonar, en Einar hafði verið í banni í þrjú ár, hafði gefið Gilbrikt Jónssyni presti frænda sínum yfir öllum sínum peningum.
Tylftardómur útnefndur af Finnboga Jónssyni lögmanni um ákæru Þorsteins Finnbogasonar til Teits Þorleifssonar, að hann hefði og héldi peninga, sem átt hafði Eiríkur Loftsson, í engu frelsi þeirra, er átt hafa, og Bjarni Ívarsson og Þorleifur Árnason höfðu burt frá Grund í Eyjafirði og víða annars staðar á vegna Soffíu Loftsdóttur kvinnu Bjarna, og hún var skyldug dæmt aftur að leggja Sveini Sumarliðasyni til eignar.
Fimmtán klerkmenn fyrir norðan land kanna skilríki þau, er Gottskálk Kæneksson biskup hafði fyrir biskupsembætti á Hólum, og úrskurða þeir þau fullnægjandi og samþykkja hann fyrir löglegan Hólabiskup.
Oddur Jónsson prestur kvittar Guðbrand Þorláksson Hólabiskup fyrir móttöku 1 ½ hndr. af klausturgjaldi sem var lagt til eftir konungsskipun prestunum til uppheldis og guðs orði til meiri framgangs.
Jón Arason Hólabiskup gerir Glaumbæ í Skagafirði að beneficium, með þeim greinum, er bréfið hermir.
Dómur sex manna útnefndur af Brandi Sigurðssyni, kóngs umboðsmanni í Húnavatnsþingi, um lambatoll af Eyvindarstaðaheiðum.
Tveir menn lýsa því að Guttormur Jónsson handlagði Þórði Jónssyni bróður sínum tíu hundruð í jörðinni Hóli í Siglufirði.
Vitnisburður Sigvalda Halldórssonar um Dyrhólaey í Mýrdal.
Fjörumörk Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð.
a) Gottskálk Nikulásson prestur, postulatus til Hóladómkirkju, skipar með ráði og samþykkt officialanna og allra annarra klerka Hólabiskupsdæmis séra Einar Benediktsson ábóta á Munkaþverá og megi hann vígjast til ábóta þegar hann vilji og hafi eitt ár staðið sína æfing. 11. júlí 1496 b) Vígslubréf Einars Benediktssonar ábóta á Munkaþverá, útgefið af Stefáni Jónssyni Skálholtsbiskupi. 1. júlí 1497 c) Stefán Jónsson Skálholtsbiskup fær Einari Benediktssyni ábóta á Munkaþverá umboð um alla þá hluti sem honum kunna til að falla í Hólabiskupsdæmi, bæði Þorlákspeninga og annað. 2. júlí 1497
Boðunarbréf Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups til prestastefnu þann 29. apríl 1494 að Víðivöllum í Skagafirði.
Sigmundur Steindórsson selur Bergljótu Sigmundsdóttur dóttur sinni 35 hundruð í jörðinni Bjargi í Miðfirði fyrir Hvarf í Víðidal.
Vitnisburður Guðmundar Nikulássonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Vitnisburður Tómasar Þorsteinssonar, 57 ára, að mestu uppalinn í Húnaþingi og var á Skagaströnd í 20 ár (2 ár á Spákonufelli og 18 á Vindhæli í Vindhælishreppi) um að hafa heyrt haft og haldið af eldri mönnum að Spákonufell ætti höfðann sem kallaður hefur verið Spákonufellshöfði fyrir framan merkigarð þann sem gengur úr Einbúa. Hann hafði aldrei heyrt höfðann eignaðan nokkurri annarri jörðu en Spákonufelli og engin tvímæli á þessu leika fyrr enn í sumar þegar hval rak þar. Þá viti hann til þess að Spákonufellsmenn hafi tekið lóðarfisk af þeim skipum sem hafi gengið í höfðann að Hólum [Höfðahólum] undanskildum sem eigi þar skipgöngu.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup kaupir hálft skip með rá og reiða, er heitir Bartholomeus og liggur í ósnum í Skagafirði af Vilhjálmi Bell og Játmundi Smidh fyrir tólf lestir skreiðar, er lúkast á tveimur árum.
Vitnisburður Snjólfs Sigurðssonar prests um lúkning andvirðis Býjaskerja Guðmundi Skúlasyni presti, er Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup hafði af honum keypt, með þeim fleiri atriðum, er bréfið greinir.
Jón Þorkelsson selur Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi 25 hundruð í jörðinni Ási í Vatnsdal og Brekku í Grímstungnakirkjusókn en biskup gefur í mót jörðina Syðsta-Hvamm á Vatnsnesi og þar til tíu kúgildi.
Vitnisburður, að Hálfdán Jónsson fékk Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi umboð sitt og Eyjólfs og Erlends sona sinna til útheimtu á arfi þeim, er Hálfdán taldi sér og sonum sínum hafa fallið eftir Magnús Jónsson móðurbróður þeirra.
Ólafur Loftsson selur Ásgrími Jónssyni með samþykki Guðrúnar konu sinnar jarðirnar Tjörn og Hafralæk í Aðaldal, en Ásgrímur leggur á mót með samþykki Guðrúnar Magnúsdóttur konu sinnar jörðina Lundarbrekku í Bárðardal.
Bjarni Ólason leiðir próf og lögleg vitni fyrir Brandi Jónssyni lögmanni að því, að Óli Bjarnason og Þóra Sturludóttir, kona hans, gáfu Bjarna syni sínum jarðirnar Þverá í Fnjóskadal, Heiðarhús á Flateyjardalsheiði, Vík í Flateyjardal og Samtýni í Kræklingahlíð til giftingar við Margréti Ólafsdóttur konu sína á festingardegi.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup samþykkir jarðakaup þeirra Sigurðar Jónssonar príors á Möðruvöllum og Magnúsar Benediktssonar bónda, um Sírelsstaði í Kræklingahlíð og Skuggabjörg í Fnjóskadal.
Árni Ólafsson Skálholtsbiskup og umboðsmaður heilagrar Hólakirkju tekur Ástríði Jörundardóttur í próventu upp á Hólastað með samþykki Sveins Hallvarðssonar bónda hennar, og gefur hún með sér jörðina Vallholt í Skagafirði fyrir 44 hundruð.
Gottskálk Nikulásson Hólabiskup fær Þórarni Jónssyni jörðina alla Búrfell með hálfu "auðna" Búrfelli á Ásum til fullrar eignar upp á þá peninga, sem biskup hafði í borgan gengið við hann með fullri lofan.
Björn Þorleifsson bóndi selur Agli Grímssyni jörðina á Eyvindarstöðum og hálfa Reyki í Hrútafirði, en Egill gefur í móti Sólheima á Ásum, Grilli í Fljótum og Skuggabjörg í Deildardal.
Gunnlaugur Þorkelsson fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagi Hólakirkju til ævinlegrar eignar jörðina Brimnes í Svarfaðardal ítöluslausa og með reka, en Ólafur biskup leggur á mót partinn í Tungu í Vatnsdal í Grímstungnaþingum.
Bræður á Munkaþverá samþykkja, að Árni ábóti selji Guðmundi Sigurðarsyni bónda nokkurn hluta úr jörðunni Skriðulandi í Öxnadal.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup tekur hústrú Margréti Bjarnadóttur til systralags á Stað í Reyninesi, en hún gefur klaustrinu 60 hundraða í þarflegum peningum.
Dómur 22 presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um kærur biskups til Höskulds Árnasonar, að hann hefði svarið rangan bókareið með Bjarna Ólasyni vísvitandi og viljandi, að hann hefði sett sig óheyrilega og afskaplega inn í kirkjunnar vald og að hann hafi tekið ranglega guðs þjónustu í sex ár síðan hann sór bókareiðinn.
Guðmundur Þorvaldsson fær Ögmundi Pálssyni Skálholtsbiskupi til fullrar eignar, sakar og sóknar allan arf þann, er honum var fallinn fyrir norðan land eftir Finn Þorvaldsson heitinn móðurföður sinn.
Einar Hálfdánarson fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi til fullrar eignar alla þá peninga, sem honum höfðu til erfða fallið og eftir stæði óluktir hjá Eiríki Þorsteinssyni bónda.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup samþykkir próventu Helgu Finnsdóttur á klaustrið á Stað í Reyninesi.
Kristín Þorsteinsdóttir selur Guðmundi Jónssyni alla jörðina Þorbjargarstaði í Laxárdal fyrir tíu hundruð í lausafé.
Page 5 of 15





































