Den Arnamagnæanske Samling
Nasjonalarkivet
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Reykjavík: 7451 documents
(1781 documents in progress, 3794 done, 40 left)
Anna Eyjólfsdóttir, með samþykki bónda síns Vigfúsar Þorsteinssonar, gefur syni sínum Jóni tíundargjöf úr sínu erfðagóssi, löggjöf og fjórðungsgjöf.
Vitnisburður séra Páls Brandssonar að séra Jón heitinn Brandsson, bróðir hans, hefði sagt sér að hann vildi ekki meðkennast að hafa selt Jóni lögmanni jörðina Garð í Ólafsfirði, né að hann hefði gefið Jóni lögmanni lagaumboð upp á Hall Magnússon eða Gunnlaug Ormsson, skyldmenni sín.
Prófentugjörningur Árna bónda Bárðarsonar og Arngríms ábóta Brandssonar á Þingeyrum.
Árni Guttormsson kvittar séra Bjarna Sigurðsson fyrir allt andvirði jarðarinnar Kvígandisfells í Tálknafirði.
Gyða Jónsdóttir fær Þorsteini presti Gruðmundssyni jörðina
Þverá í Vestrárdal til fullrar eignar, eptir því sem hún varð
eigandi í féskiptum eptir Gunnlaug bónda sinn, og gerir
hún það með samþykki og upplagi barna sinna, en skilr sér
framfæri hjá Þorsteini presti.
Tveir menn votta, að Þorkell prestur Guðbjartsson hafi fyrir
einu ári selt Ásgrími Jónssyni jörðiua Lundarbrekku í Bárðardal
fyrir jarðirnar Höskuldstaði og Hól í Helgastaðaþingum og
Haga í Grenjaðarstaðaþingum.
Dómur sex manna, útnefndur af Snæbirni Gíslasyni konungs umboðsmanni milli Gilsfjarðar og Langaness,
um ágreining þýskra og Eyjólfs Gíslasonar út af skipi og peningum sem rak á hans lóð, og Eyjólfur hafði
að sér tekið, sbr. AM Dipl. Isl. Fasc. XLIV,13 (DI VIII, nr. 547).
Vitnisburður Jóns Björnssonar um lambarekstur og lambatolla í Miðfirði.
Bréf Björns Þorleifssonar þar sem hann fyrirbýður tollver í Bolungarvík.
Einar Markússon og kona hans Gró selja Jóni Erlingssyni og konu hans Ingibjörgu sex hundruð í jörðunni Arnardal hinum neðra í Skutilsfirði fyrir tólf hundruð í ganganda fé og lausafé, og lýsir Einar landamerkjum.
Jón Einarsson selur Örnólfi Einarssyni jörðina Breiðadal hinn fremra í Önundarfirði fyrir 14 hundruð í lausafé og kvittar Örnólf um andvirðið.
Halldór Sveinsson handleggur Þorkatli Einarssyni þann part úr jörðunni Fremra-Hjarðardal í Dýrafirði er Páll bróðir hans handlagði honum, og þar til málnytukúgildi og hundrað ófrítt, gegn hálfu átta hundraði í jörðunni Tungumúla á Barðaströnd.
Vitnisburðarbréf um umboð Jóns Finnbogasonar á fé Ólafar Jónsdóttur haustið næsta eftir pláguna (1495)
með þeim greinum, er bréfið hermir (DI VII:663).
Tveir menn votta að Einar prestur Hafliðason hafi selt Sveinbirni Hrafnssyni jörðina Sauðadalsá á Vatnsnesi með þeim landa
merkjum, er þeir skýra frá; svo telja þeir og landamerki Bergstaða og Stapa á Vatnsnesi.
Afrit af bréfi fjögurra manna sem votta að Oddur Ásmundsson fékk Torfa Arasyni hirðstjóra part úr Þorleiksstöðum í Skagafirði fyrir það að hann útvegaði Oddi lögmannsbréf frá konguni. Guðlaug Finnbogadóttir eiginkona Odds samþykkir gjörninginn.
Sjá færslu við XXXV, 1.
Tylftardómur klerkar, útnefndur af Jóni biskupi á Hólum, um vantrúar- og villumenn.
Sendibréf Kristínar Guðnadóttur til Jóns Asgeirssonar bónda síns.
Samningur þeirra Jóns Sigmundssonar og Runólfs Höskuldssonar um Ásskóg, er Jón eignaði jörðunni Vindheimum á Þelamörk.
Dómur útnefndur af Birni Guðnasyni um áskilnað Guðna Jónssonar og Tómasar Jónssonar út af hval sem rak á Kirkjubóli í Skutulsfirði, þá er Tómas hafði jörðina á leigu, en Tómas hafði tekið hvalinn með sér.
Staðarhólsdómur Þorleifs hirðstjóra Björnssonar um gjafir og
skuldir Solveigar heitinnar Þorleifsdóttur.
Jarðaskiptabréf, og er hálfum Holtastöðum skipt við Ós stóra í Miðfirði, með 20 hundr. milligjöf.
Page 55 of 150

















































