Den Arnamagnæanske Samling
Nasjonalarkivet
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Reykjavík: 7451 documents
(1782 documents in progress, 3799 done, 40 left)
Prófentugjörningur Árna bónda Bárðarsonar og Arngríms ábóta Brandssonar á Þingeyrum.
Þorkell Guðmundsson lofar séra Brynjólfi Árnasyni að sanna með eiði sinn vitnisburð um landamerki jarðanna Hóls, Hvamms og Kúastaða í Svartárdal.
Þorvarður príor af Skriðuklaustri selur Þorvarði bónda Bjarnasyni jarðirnar Eyvindará og Mýnes á Útmannasveit
með fleiri jörðum fyrir jarðirnar Meðalnes og Birnufell í Fellum og aðrar tilgreindar jarðir.
Stefán biskup vottar bréfið einnig og setur sitt innsigli fyrir.
Jón Ólason selr Einari ábóta og klaustrinu á Munkaþverá jörðina á Stokkahlöðum í Eyjafirði með fjórðungskirkju skyld og
lambsfóðri til klaustrsins, en ábóti leggr í mót jarðirnar Snartarstaði og Brekku í Núpasveit, fráskilur allan reka, en áskilr
klaustrinu skipstöðu í Snartarstaði og hússtöðu og eldivið í Brekku og segir þar til bænhússkyldar; hér til leggr ábóti tuttugu hundruð í lausafé.
Tylftardómur klerka útnefndur af Stepháni biskupi í Skálholti, um kærur biskups til Björns Guðnasonar fyrir dómrof, misþyrming á Jörundi presti Steinmóðssyni og fleira; dæma þeir Björn óbótamann, fallinn í bann í sjálfu verkinu og fé hans öll föst og laus fallinn undir konung og biskup.
Bréf sama efnis og AM Dipl. Isl. Fasc. XLII, 24. Bæði bréf eru prentuð í DI VIII, nr. 238.
Jón Einarsson selur Örnólfi Einarssyni jörðina Breiðadal hinn fremra í Önundarfirði fyrir 14 hundruð í lausafé og kvittar Örnólf um andvirðið.
Sendibréf Kristínar Guðnadóttur til Jóns Asgeirssonar bónda síns.
Vitnisburðarbréf um umboð Jóns Finnbogasonar á fé Ólafar Jónsdóttur haustið næsta eftir pláguna (1495)
með þeim greinum, er bréfið hermir (DI VII:663).
Bréf að Björn Þorleifsson hefði goldið Ingveldi Helgadóttur móður sinni jarðirnar Hvallátur og Skáleyjar
á Breiðafirði í þau áttatíu hundruð, sem Ingveldi þótti eftir standa í garð Þorleifs Björnssonar, föður Björns,
en Ingveldur fær jarðirnar mágum sínum Eyjólfi Gíslasyni og Grími Jónssyni í peninga dætra sinna Helgu og Guðnýjar, og kvittar Björn um greiðsluna. Sjá einnig AM Dipl. Isl. Fasc. XLI,17.
Afrit af bréfi fjögurra manna sem votta að Oddur Ásmundsson fékk Torfa Arasyni hirðstjóra part úr Þorleiksstöðum í Skagafirði fyrir það að hann útvegaði Oddi lögmannsbréf frá konguni. Guðlaug Finnbogadóttir eiginkona Odds samþykkir gjörninginn.
Ólafur prestur Tumason lofar Jóni Sveinssyni fyrstum kaupi á
Eyri í Bitru, ef Björn bóndi þorleifsson lofi og samþykki það.
Jón Þorbjarnarson selur Böðvari súbdjákn Ögmundarsyni jörðina
Hallfríðarstaði í Hörgárdal með tilteknum ítökum og landamerkjum fyrir
lausafé (Íslenzkt fornbréfasafn III:503).
Afrit af dómi Finnboga Jónssonar lögmanns og tólf manna, útnefndur á alþingi, þar sem Björn Þorleifsson og systkin hans eru, samkvæmt páfabréfi, konungsbréfum, erkibiskupsbréfi og biskupa úrskurðum, dæmd lögkomin til alls arfs eftir Þorleif Björnsson og Ingveldi Helgadóttur, foreldra sína.
Björn Þorleifsson selur "Eyjólfi Arnfinnssyni jarðirnar Voga
á Rosmhvalanesi og Gunnólfsá í Ólafsfirði fyrir jarðirnar
Þernuvik, Efstadal, Ós, Hanhól og Gil á Vestrlandi.
1. DI III, nr. 383: Bjarni Ásgrímsson selur Benedikt Brynjólfssyni jarðirnar Syðri-Látur og Kaðalstaði og alla Grundarreka samkvæmt viðfestri rekaskrá
2. Vitnisburður frá 1580.
3. Aftan á skjalinu: DI III, nr. 385: Skrá um Grundarreka, sem Bjarni Ásgrímsson seldi Benedikt Brynjólfssyni.
Guðmundur Árnason gefur Magnús Björnsson kvittan um verð fyrir Eyri í Tálknafirði, vegna konu sinnar Elísabetar Bjarnadóttur.
Kaupmálabréf Einars Oddssonar og Ásu Egilsdóttur.
Þorgiis prestr Nikulásson gerir og gefr, eptir undirtali við
Ragnhildi Bjarnadóttur, alla menn Björns Guðnasonar frjálsa
og kvitta um alla sök og sókn og alt skaðræði, sem hann
þóttist af þeim hafa feingið, „sérdeilis tilskilið það rusk og
rask, högg eðr slög, sem til kom með þeirra monnum á
Holtseingi," en skilur þó undan þessari kvittan Helga Pálsson,
nema meðan hann sé undir vernd Björns eða Ragnhildar.
Vitnisburðarbréf nokkurra helstu bænda fyrir sunnan land, til konungsins, um hirðstjórn
og lögmennsku Vigfúsar Erlendssonar, og lýsa þeir yfir, að þeir vilji hafa hann að hirðstjóra
eftir heitorðum Gamla sáttmála.
Katrín Nikulásdóttir og maður hennar Kolbeinn Jónsson fá Pétri Pálssyni jarðirnar Hól og Garðshorn í Kinn með ýmsum skilmálum en Pétur hafði keypt þær af fyrri eiginmanni hennar, Sigurði Jónssyni heitnum. Katrín tekur fram að bréf sem tengjast jörðunum séu í varðveislu Jóns Einarssonar norður í Bólstaðarhlíð.
Gottskálk Keniksson biskup á Hólum selur Ásgrími Þorkelssyni jörð Hólastaðar er heitir Haganes við Mývatn fyrir Steinnýjarstaði á Skagaströnd.
Gottskálk biskup á Hólum skipar síra Sigmundi Guðmundssyni þing um allan Öxarfjörð um næstu 12 mánuði og það lengur sem hann gerir ekki aðra skipun á.
Page 56 of 150
















































