Den Arnamagnæanske Samling
Nasjonalarkivet
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
1) Verndarbréf, er Magnús Eiríksson konungur gefur Ormi Áslákssyni biskupi og dómkirkjunni á Hólum. 10. mars 1346 2) Magnús Eiríksson konungur stefnir utan átta bændum fyrir norðan land sakir mótþróa við Orm Ásláksson biskup á Hólum. 2. júní 1350 3) Þorsteinn Eyjólfsson lögmaður úrskurðar verndarbréf það, er Magnús Eiríksson konungur gaf Ormi Áslákssyni biskupi og Hólakirkju, stöðugt í öllum greinum. 8. maí 1393 4) Bréf Friðriks konungs I. til lærðra manna og leikra í Hólabiskupsdæmi, þar sem hann samþykkir kosning Jóns Arasonar prests í Odda til biskups og tekur hann í vernd sína. 25. ágúst 1523 5) Transskriftarbréf fjögurra manna. 30. júlí 1542
Halldór Jónsson selur Eyjólfi Arnfinnssyni bónda jörðina Brimnes í Svarfaðardal með tilgreindum ítökum.
Vitnisburður Hallvarðar Jónssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er þar fyrir austan fellur og kallaður er Dyrhólaós.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um það, hvort Hólakirkja í Hjaltadal eigi Drangey í Skagafirði. Sóru sex prestar, er sumir báru að þeir vissu að Hólakirkja hefði haft hana í 40 ár, svo að þeir vissu, aðrir vissu um 30 ár og einn um 25 ár. Dæmdu þeir kirkjuna eyna til óbrigðilegrar eignar.
Höskuldur Árnason fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til fullrar eignar jörðina Blængshól og lofar þar til 20 hundruðum í fullgildis peningum fyrir Mikaelsmessu (Mikjálsmessa, 29. september), fyrir þær sakir að hann sór rangan bókareið með Bjarna Ólasyni og fyrir óhlýðni og þrjósku við biskupinn í langan tíma. Þar með skal og Höskuldur halda settar skriftir.
Eyvindur Eyvindsson selur Eyjólfi Arnfinnssyni bónda, með samþykki Sölva Jónssonar, til fullrar eignar jörðina Skarðsdal með kotinu Leyningi í Siglufirði fyrir 14 hundruð í lausafé.
Guttormur Jónsson lýsir því, að hann hafi gefið Þórði Jónssyni bróður sínum tíu hundruð í jörðinni Hóli í Siglufirði.
Magnús Jónsson selur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til fullrar eignar jörðina Sveinungsvík í Þistilfirði og þar með tíu hundruð, gegn því, að biskup taki Jón Magnússon son Magnúsar níu vetra gamlann til uppfæðis og lærdóms með því skilorði, er bréfið hermir.
Reikningsskapur séra Þórðar Þórðarsonar og Valdísar Helgadóttur barnamóður hans.
Vitnisburður fjögurra manna um að Benedikt Kolbeinsson hafi gefið Reynisstaðarklaustri reka þá sem Ólöfarpartar heita.
Omur Snorrason gefur guði allsvaldanda, hans signuðu móður og öllum guðs heilögum mönnum þau 20 hundruð, er Óttar Bjarnarson hafði honum selt, og sem hann hafði átt að staðnum í Reynisnesi.
Jón Þórðarson gefur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi í testamentisgjöf sína jörðina Skarðsdal í Siglunesskirkjusókn.
Þorvaldur Eiríksson vottar að hann heyrði Einar Þorbjarnarson lýsa því í Fornhaga í Hörgárdal pláguárið (1403) að Ingiríður Böðvarsdóttir gaf Hólakirkju í Hjaltadal jörðina Kelduland í Skagafirði.
Heit Jóns Eiríkssonar skalla Hólabiskups og Norðlendinga til guðs signuðu móður jómfrú sánkta Maríá, hins heilaga Jóns og hins góða Guðmundar Hólabiskupa og allra guðs heilagra manna um linun á snjóþyngslum og vetrarhörkum, og lofa þeir að halda heilaga getnaðartíð Máríu á jólaföstu (8. desember).
Samþykkt Gottskálks Nikulássonar Hólabiskup og klerka á prestastefnu, að í biskupstíundir skyldi lúkast eyrir af öllum jörðum smáum og stórum, þeim sem undir kirkjuna væri nú komnar, en af þeim, sem síðar kæmi, skuli lúkast tíundir eins og lög stæði til.
Guðrún Gunnlaugsdóttir samþykkir það jarðakaup um Skarðsdal, er Jón Sigmundsson hafði gert við Jón Þórðarson, fái hún aðra jörð jafndýra.
Pétur Nikulásson Hólabiskup kvittar Árna Einarsson um 10 hundraða ílag í jörðina Ásláksstaði í Kræklingahlíð.
Vitnisburðarbréf ellefu klerka um mótfall Hrafns Brandssonar lögmanns og lögréttumanna við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup frammi haft í lögréttu á Öxarárþingi með harki og háreysti og lemjandi höndum, og höstuðu þeir biskup út af lögréttunni og sögðu, að hann ætti ekki að vera þar.
Skúli Loftsson selur Hallsteini Höskuldssyni jörðina Þingnes í Borgarfirði fyrir 60 hundraða, en Skúli leggur í mót hálf Býjasker á Rosmhvalanesi, Hraunhafnarbakka á Snæfellsnesi og þar til fjögur kúgildi búlæg, og votta þetta fjórir menn ári síðan en kaupið fór fram (1445).
Viðvíkurdómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um Hólateig í Fljótum.
Jón Eyjólfsson selur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi til fullrar eignar jörðina í Guðmundarlóni á Langanesi með rekaparti í Dritvík, en Ólafur biskup láti kenna syni Jóns tólf vetra gömlum til prests; kvittar og biskup Jón um rekatöku, en Jón galt fyrir sex málnytukúgildi.
Þorgerður Jónsdóttir selur Magnúsi Jónssyni hálfa jörðina Efsta-Fell í Kinn, með greindum ítölum í aðrar jarðir, fyrir Geirbjarnarstaði í Kinn og tíu hundrað að auki.
Þórður Örnólfsson afhendir Finni Gamlasyni í umboði Valgerðar Vilhjálmsdóttur konu hans, jarðirnar Barð í Fljótum, Reyki, Grilli, Steinavöllu, Illugastaði, Nes, Ystamó, Móskóga og Laugaland.
Vitnisburður Sveinbjarnar Þórðarsonar prests um jarðirnar Valþjófsstaði og Arnarstaði í Núpasveit.
Dómur tólf presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, að Bjarni Ólason, sé skyldur að halda þær skriftir, er honum verði settar af biskupi og hann sé maður til að bera, og að allt hálft fé hans sé fallið undir Ólaf biskup og heilaga kirkju.
Ingibjörg Ólafsdóttir gefur með samþykki skilgetinna sona sinna þann tíu hundraða part, er hún átti í Núpi undir Eyjafjöllum og allt laust og fast, er hún þá átti, í vald Gottskálks Kenekssonar Hólabiskups.
Sveinn Jónsson prófastur og almennilegur dómari milli Helkunduheiðar og Breiðdalsár lýsir eiði Benedikts Sæmundssonar um sölu hans á 15 hundraða parti í Borgarhöfn til séra Ögmundar Andréssonar.
Tylftardómur klerka útnefndur á prestastefnu af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um ákæru séra Eiríks Einarssonar til Símonar Þorsteinssonar um jörðina Kálfskinn á Árskógsströnd.
Skiptabréf þeirra Sigurðar Jónssonar príors á Möðruvöllum og Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups um jarðirnar Engimýri, er klaustrið lætur, og Skollatungu, er biskup fær klaustrinu.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup tekur staðinn Miklabæ af Sigmundi Steindórssyni presti um þrjú ár, fyrir óhlýðni hans, og segir hann skyldugan að taka lausn og skriftir.
Vitnisburður Halls Árnasonar prests um rekamörk milli Skóga og Byrgis í Öxarfirði.
Gyrðir Ívarsson Skálholtsbiskup og Jón Eiríksson Hólabiskup semja með sér, að Gyrðir biskup skili Jóni Hólabiskupi gullkaleik þeim, sem sé eign Hólakirkju, en Ormur biskup hafði gefið Jóni Sigurðssyni Skálholtsbiskupi, gegn því að Jón Hólabiskup greiði Gyrði biskupi 23 hundruð, er Ormur biskup fékk að láni af Skálholtsstað.
Staðarbréf útgefið af Jóni Arasyni Hólabiskupi handa Ólafi Hjaltasyni presti fyrir Laufási.
Dómur átján presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, um ákæru biskups til þeirra bræðra Hrafns Brandssonar, Halldórs Brandssonar og Snjólfs Brandssonar um kirkjugóssin á Barði í Fljótum (Barðsdómur hinn fyrri).
Vitnisburður Erlends Ólafssonar um afhending Merkigils.
Eiríkur Einarsson prestur kaupir af Randíði Bjarnadóttur jörðina Vað í Skriðuhverfi fyrir 13 hundruð í lausum aurum.
Böðvar Þorsteinsson prestur selur þeim bræðrum Hjalta og Katli Guðmundssonum jörðina að Efstafelli með öllum hlutum og hlunnindum.
Þorsteinn Bessason selur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Laugaland í Fljótum, með samþykki Sigríðar Böðvarsdóttur konu sinnar, fyrir Steinnýjarstaði á Skagaströnd.
1) Benedikt Sæmundson selur Ögmundi Andréssyni presti með samþykki Sigríðar Hallsdóttur konu sinnar 15 hundraða part í Borgarhöfn í Hornafirði, er hann erfði eftir Sigríði Jónsdóttur móður sína. 13. maí 1486. 2) Transskriftarbréf tveggja manna. 4. október 1489.
Guðmundur Hjaltason bóndi fær Solveigu Guðmundsdóttur dóttur sinni hálfa jörðina Fell í Kinn upp í skuld.
Þorsteinn Illugason prestur fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi tólf hundruð í jörðinni Tungu í Vatnsdal með einu málnytukúgildi.
Vitnisburður Ketils Grímólfssonar prests um tíundargreiðslu Þórunnar Finnbogadóttur af Valþjófsstöðum í Núpasveit til Presthóla.
Bréf Goðsvins Comhaer Skálholtsbiskups til Jóns ábóta í Þykkvabæ í Veri, þar sem hann biður hann að taka opið bréf séra Ámunda Hallssonar og séra Hafliða Jónssonar hvað þeir mega framast vita um lýsing Margrétar Þorbergsdóttur (DI IV, nr. 643) og svo að hann fái skjallega að vita, hvað systurnar Ingveldur og Brigit á Kirkjubæjarklaustri muna þar til.
Sjö prestar og tveir leikmenn votta, að Hrafn Brandsson lýsti því, að hann lofaði ekki að halda Viðvíkurdóm um hálfkirknareikninga, heldur bannaði öðrum að gera Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi reikninga af þeirra hálfkirkjum, og bannaði prestum að ganga dóma, er biskup tilnefndi þá um kirkjunnar mál.
Vitnisburður um landamerki Sigríðarstaða og Vestri-Tjarna í Ljósavatnsskarði.
Guðríður Finnbogadóttir selur Finnboga Einarssyni jörðina Fjósatungu í Fnjóskadal með skógi í Þórðarstaðajörðu með ummerkjum fyrir jörðina Grindur á Höfðaströnd með skógi og selför, með fleira skilyrði, er bréfið greinir.
Vitnisburður, að Þorvaldur Sigurðsson hafi gefið jörðina hálfa Skriðu í Breiðdal klaustrinu á Skriðu í Fljótsdal til ævinlegrar eignar.
Jón Þórðarson vottar, að hann hafi heyrt teginn milli Hóla og Reykjarhóls í Fljótum, er Hólastaður á, eignaðan Hólum meir en í 30 vetra.
Tylftardómur útnefndur af Einari Oddssyni, kóngs umboðsmanni í Húnavatnsþingi, um arftöku Einars Ólafssonar eftir Solveigu Björnsdóttur móðurmóður sína.
Tveir menn votta, að Þorsteinn Þorgrímsson hafi samþykkt sölu Þorgríms föður síns á jörðunni Neðstabæ í Norðuárdal til Helga Þormóðssonar, og að hann kvitti Helga um greinda jörð.
Page 9 of 15














































