Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 721 documents
(9 documents in progress, 0 done, 712 left)
Vitnisburður Gottskálks Nikulássonar prests, að hann hafi útvegað landvistarbréf fyrir Jón Ásgeirsson 1492 um víg Guðmundar Þorsteinssonar, þó að hann gæti ekki náð því fyrir forfalla sakir.
Vitnisburðarbréf, að þrír prestar og einn leikmaður, sóru bókareið að því á prestastefnu 22. júní 1495, að Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup, góðrar minningar, hefði gefið og skipað heilagri Hólakirkju alla þá peninga, sem hann átti auk þeirrra, sem í hans testamentisbréfi standa.
Jón Jónsson og Margrét Jónsdóttir kona hans selja Páli Þórólfssyni þann part í jörðunni Björgum í Kinn, sem Margrétu hafði til erfða fallið eftir Björn bróður sinn, fyrir þá peninga, er þau urðu ásátt um.
Vigdís Jónsdóttir selur Páli Þórólfssyni þann hluta í jörðunni Björgum í Kinn, er hún hafði erft eftir Björn Jónsson bróður sinn.
Narfi Benediktsson selur séra Einari Benediktssyni hálfa jörðina Grindur á Höfðaströnd gegn kennslu og uppfæðslu á Benedikt Narfasyni syni hans, með fleira skilorði, er bréfið greinir.
Séra Einar Benediktsson selur Finnboga Einarssyni, syni sínum, jörðina Grindur á Höfðaströnd fyrir Skáldalæk í Svarfaðardal og lausafé að auki.
Jón Hallvarðsson, Ásgautur Jónsson og Medía Sigurðardóttir móðir hans gefa Jóni Sigmundssyni til eignar og sóknar alla þá peninga fasta og lausa, sem Sigurður Geirmundsson hefði gefið Medíu dóttur sinni og Ásgauti dóttursyni sínum.
Guðríður Finnbogadóttir selur Finnboga Einarssyni jörðina Fjósatungu í Fnjóskadal með skógi í Þórðarstaðajörðu með ummerkjum fyrir jörðina Grindur á Höfðaströnd með skógi og selför, með fleira skilyrði, er bréfið greinir.
Eiríkur Einarsson prestur gefur jungfrú Marie og klaustrinu á Skriðu í Fljótsdal jörðina Lækjardal í Öxarfirði með fjórum kúgildum, sér til sáluhjálpar og frændum, vinum og ættmönnum lífs og liðnum.
Sigurður Ívarsson selur séra Jóni Þorvaldssyni tíu hundruð í jörðunni Mánaskál í Laxárdal fyrir tíu hundruð í lausafé.
Tylftardómur útnefndur, af Einari Oddssyni, kóngs umboðsmanni í Húnavatnsþingi, um tilkall Ólafs Filippussonar vegna Einars Ólafsssonar sonar síns til arfs eftir Solveigu Björnsdóttur.
Kristín Jörundardóttir lýkur og afhendir Jóni Jónssyni í fjórðungsgjöf sína alla jörðina Skeggjastaði "á Strönd" með þeim atriðisorðum, er bréfið greinir.
Dómur klerka útnefndur af Jóni Þorvaldssyni presti og Guðmundi Jónssyni officialibus Hólabiskupsdæmis, að Einar Benediktsson ábóti á Munkaþverá og klaustrið skuli hafa og halda jörðina Illugastaði í Fnjóskadal þar til réttur Hólabiskup gerir þar lagaskipan upp á.
Kvittunarbréf Sigurðar Ívarssonar til handa Jóni Þorvaldssyni presti um lúkning á andvirði tíu hundraða í jörðinni Mánaskál.
Eiríkur Sumarliðason prestur gefur Guðnýju Þorleifsdóttur í tíundargjöf sína hálfa jörðina Kalmanstungu í Borgarfirði.
Jón Þorvaldsson officialis lýsir því, að hann hafi gift Jón Sigmundsson og Björgu Þorvaldsdóttur, og að engir sé meinbugir á með þeim.
Eiríkur Einarsson prestur kaupir af Randíði Bjarnadóttur jörðina Vað í Skriðuhverfi fyrir 13 hundruð í lausum aurum.
Tylftardómur útnefndur af Einari Oddssyni, kóngs umboðsmanni í Húnavatnsþingi, um arftöku Einars Ólafssonar eftir Solveigu Björnsdóttur móðurmóður sína.
Kaupmálabréf Hallvarðs Eiríkssonar og Þorgerðar Jónsdóttur.
Narfi Jónsson príor á Skriðu selur Einari Benediktssyni ábóta á Munkaþverá og klaustrinu þar jarðirnar Lækjardal og Flautafell í Þingeyjarþingi og nokkurt lausafé fyrir þau 15 hundruð, er Narfi príor hafði upp borið af peningum Guðrúnar Bárðardóttur vegna Einars ábóta.
Dómur klerka útnefndur af Jóni Þorvaldssyni presti og Guðmundi Jónssyni officialibus Hólabiskupsdæmis, að Einar Benediktsson ábóti á Munkaþverá og klaustrið skuli hafa og halda jörðina Illugastaði í Fnjóskadal þar til réttur Hólabiskup gerir þar lagaskipan upp á.
Dómur klerka útnefndur af Jóni Þorvaldssyni presti og Guðmundi Jónssyni officialibus Hólabiskupsdæmis, að Einar Benediktsson ábóti á Munkaþverá og klaustrið skuli hafa og halda jörðina Illugastaði í Fnjóskadal þar til réttur Hólabiskup gerir þar lagaskipan upp á.
Jón Jónsson lýkur heilagri Hólakirkju jörðina alla á Bæ (Ábæ), er liggur í Dölum í Skagafirði, og þrjú hundruð í fríðvirðum peningum, og þar með skal Jón og Ragna Finnbogadóttir kvitt af holdlegum girndum líkamlegrar sambúðar með barngetnaði; en jörðin standi til lausnar um tvö ár fyrir tólf hundruð.
Kristín Þorsteinsdóttir geldur Sigmundi Guðmundssyni syni sínum hálft þrettánda hundrað í jörðunni Sólheimum ytri í Mýdal gegn tíu hundruðum í Ystaskála undir Eyjafjöllum, með þeim atriðisorðum, sem bréfið greinir.
Þórður Brynjólfsson selur, vegna Solveigar Jónsdóttur konu sinnar, Magnúsi Jónssyni til fullrar eignar jörðina Garð í Þistilfirði með reka fyrir tíu hundruð í lausafé.
Kvittunarbréf til handa Jóni Sigmundssyni um biskupstíundir.
Ólafur Bjarnason fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til fullrar eignar hálfa jörðina Hvassafell í Eyjafirði, en biskup kvittar Ólaf um gröft foreldra hans, Margrétar Ólafsdóttur og Bjarna Ólasonar, er Ólafur hafði grafið að kirkju í forboði biskups.
1) Máldagi Nikuláskirkju í Odda á Rangárvöllum. 1270. 2) Þrír prestar transkríbera máldaga frá 1270 (DI II, nr. 34). 23. desember 1499.
Vitnisburður um lýsing til hjónalags og um festing Bárðar Jónssonar og Sigríðar Jónsdóttur.
Dómur klerka, útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um kæru biskups til Gunnlaugs Helgasonar, vegna Ingileifar Kolladóttur konu Gunnlaugs, um peninga þá, er séra Jóni Kollasyni bróður hennar höfðu fallið til arfs eftir Kolla Magnússon og Ingibjörgu Þorláksdóttur foreldra sína og fleiri frændur, svo og um hestgrip og smjörtöku.
Tylftardómur útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um ákærur biskups til Höskuldar Runólfssonar.
Grímur Pálsson bóndi lýkur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi 25 hundruð upp í jörðina Hvassafell í Eyjafirði í reikningsskap þann, er hann og Páll Brandsson faðir hans urðu skyldugir biskupinum.
Hallsteinn Þorsteinsson lýsir því, að hann og Cecelia Þorsteinsdóttir (Sesselja Þorsteinsdóttir) kona hans hafi gefið "fyrst að upphafi guði almáttugum, jungfrú Marie og helga blóð" jörðina Skriðu í Fljótsdal með rekum og ítökum til ævinlegs klausturs.
Koðrán Jónsson gefur guði almáttugum, jungfrú Maríu og klaustrinu á Skriðu hálft fimmta hundrað í jörðunni Ánastöðum á Útmannasveit og vottar, að hann heyrði séra Svein Jónsson heitinn lýsa því, að hann hefði gefið sama klaustri hálft sjöunda hundrað upp í nefnda jörðu.
Þorvarður Bjarnason lýsir því, að hann og Ingibjörg Ormsdóttir kona sín, guð hennar sál náði, hafi gefið guði, jungfrú Maríu og helga blóð á Skriðuklaustri jarðirnar allan Hrjót og Hálfan Hamragarð í Hjaltastaðaþinghá, sér og henni til eilífðrar sáluhjálpar.
Vitnisburður, að Þorvaldur Sigurðsson hafi gefið jörðina hálfa Skriðu í Breiðdal klaustrinu á Skriðu í Fljótsdal til ævinlegrar eignar.
Bréf, að Narfi Sigurðsson og Sigurður Narfason hafi fengið Finnboga Jónssyni lögmanni og Teiti Þorleifssyni til fullrar eignar jarðirnar Ásgeirsár í Víðidal og Krossnes, Mela, Norðfjörð og Seljanes á Ströndum fyrir þann mismun og féskakka, sem Árni Þorleifsson, Sigurður Þorleifsson og Teitur Þorleifsson höfðu fengið í arfaskipti við Orm Bjarnason eftir Soffíu Loftsdóttur.
Bréf um útlúkning Ásgeirsáa og Lækjamóts og fjögurra jarða (Krossnes, Melar, Norðfjörður og Seljanes) á Ströndum til Finnboga Jónssonar lögmanns og Teits Þorleifssonar.
Sáttargerðarbréf þeirra Þórðar Brynjólfssonar og Indriða Péturssonar um heytöku í óleyfi.
Dómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um ákærur séra Eiríks Einarssonar til Símonar Pálssonar um jörðina Kálfskinn á Árskógsströnd.
Tylftardómur klerka útnefndur á prestastefnu af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um ákæru séra Eiríks Einarssonar til Símonar Þorsteinssonar um jörðina Kálfskinn á Árskógsströnd.
Samþykkt Gottskálks Nikulássonar Hólabiskup og klerka á prestastefnu, að í biskupstíundir skyldi lúkast eyrir af öllum jörðum smáum og stórum, þeim sem undir kirkjuna væri nú komnar, en af þeim, sem síðar kæmi, skuli lúkast tíundir eins og lög stæði til.
Próventusamningur Gunnlaugs Helgasonar fyrir hönd Ingileifar Kolladóttur, konu sinnar, við Gottskálk Nikulásson Hólabiskup.
Einar Þórólfsson selur Halli Sigurðssyni alla jörðina minni Dal ("Ceceliu-Dal") fyrir jörðina Einholt í Biskupstungum með fjórum kúgildum, en þaðan gyldist sauðargjald til Haukadal í gamla rentu.
Dómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi, þar sem þeir dæma jörðina Þverá hina syðri í Vesturhópi af Sigurði Daðasyni bónda og eign heilagrar Hólakirkju.
Dómur klerka útnefndur af séra Eiríki Sumarliðasyni í umboði Gottskálks Nikulássonar Hólabiskups um kærur biskups til Þórðar Þórðarsonar, Hallvarðs Jónssonar og Auðunar Sigurðssonar.
Magnús Jónsson selur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til fullrar eignar jörðina Sveinungsvík í Þistilfirði og þar með tíu hundruð, gegn því, að biskup taki Jón Magnússon son Magnúsar níu vetra gamlann til uppfæðis og lærdóms með því skilorði, er bréfið hermir.
Grímur Pálsson bóndi geldur og lýkur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi 20 hundruð í jörðunni Hreiðarstöðum í Svarfaðardal fyrir 21 hundrað, er hann varð biskupi skyldugur í útlausnir.
Finnbogi Jónsson lögmaður fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi til fullrar eignar jarðirnar Ásgeirsár og Lækjamót í Víðidal með þriðjungi af þeim peningum, sem stóðu með jörðunum, þá er Narfi Sigurðsson og Sigurður Narfason luktu Finnboga þær, - gegn tilkalli og eignarorði biskups til Lögmannshlíðar í Kræklingahlíð.
Bréf Sigurðar Narfasonar um útlúkning Ásgeirsáa og Lækjamóts og fjögurra jarða (Krossnes, Melar, Norðfjörður og Seljanes) á Ströndum til Finnboga Jónssonar lögmanns og Teits Þorleifssonar.