Arkivverket
Den Arnamagnæanske Samling
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Reykjavík: 7446 documents
(1373 documents in progress, 2093 done, 40 left)
Þorvarður Magnússon, með samþykki konu sinnar Guðrúnar Jónsdóttur, selur Jóni Björnssyni hálfa jörðina Hlíð í Miðfirði fyrir lausafé. Útdráttur.
Solveig Torfadóttir selur Erlendi Magnússyni þann part af Stóru-Völlum á Landi er hún hafði erft eftir föður sinn.
Báðir lögmenn Íslands og 24 skilvísir menn úrskurða á Öxarárþingi dóm Eggerts heitins Hannessonar lögmanns um Veturliðastaði löglegan og jörðina réttilega eign Þórunnar Jónsdóttur.
Pétur Þorsteinsson kvittar herra Guðbrand Þorláksson um jarðaviðskipti þeirra.
Brynjólfur Jónsson selur Hákoni Árnasyni fimm hundruð í jörðinni „Flægelltu“ í Landmannahrepp fyrir lausafé. Útdráttur.
Dómur á Gröf í Ytrahrepp um jörðina Grafarbakka.
Skoðun og virðing á eignum Jóns heitins Ólafssonar á Hvítanesi í Kjós 18. október 1585. Bréfið skrifað í Hvammi í Kjós degi síðar.
Erlendur Torfason selur Erlendi Magnússyni part í Stóru-Völlum á Landi fyrir jörðina Skáldabúðir og lausafé.
Kaupmáli og brúðkaupsgjörningur Bjarna Björnssonar og Sesselju Eggertsdóttur.
Þórunn Jónsdóttir gerir Ásmund Þorsteinsson og konu hans Þuríði Þorbergsdóttur kvitt og ákærulaus um alla sína peninga sem þau hafa haft eða munu hafa héðan af.
Kaupmálabréf Torfa Sigfússonar og Vigdísar Halldórsdóttur.
Vitnisburður um að Halldór Þórðarson hafi lýst fyrir grönnum sínum þeim gjörningi að hann hafi selt Sigurði Jónssyni frænda sínum Hallsstaði í Staðarfellskirkjusókn fyrir lausafé þann 7. ágúst 1586. Útdráttur.
Samningur og sáttmáli milli séra Jóns Loftssonar og bróður hans Árna Loftssonar vegna skulda Árna til Jóns.
Magnús Jónsson gerir Bjarna Jónsson kvittan um peninga meðferð, en Bjarni hafði haft í umboði Magnúsar sýsluparta af Ísafjarðar- og Barðastrandarsýslum og þar með nokkrar kóngsins jarðir í Álftafirði og Aðalvík, og hafði byggt jarðir Magnúsar í Dýrafirði, Önundarfirði og á Sandi.
Skoðun og virðing á húsum og bæ í Tungu í Skutulsfirði.
Kvittun og lögfesta séra Þorsteins Illugasonar vegna kaupa hans á jörðinni Tunghaga í Vallaneskirkjusókn.
Ólafur Árnason afhendir herra Gísla Jónssyni jörðina Hægindi. Landamerkjum lýst.
Gjafabréf og vitnisburður um jörðina Snotrunes sem Ingibjörg Sigurðardóttir gefur syni sínum Bjarna Jónssyni.
Bjarni Einarsson, með samþykki konu sinnar Guðrúnar Þorláksdóttur, selur Bjarna Jónssyni jörðina Veðrará ytri í Önundarfirði og fær í staðinn Bassastaði og Bólstað á Selströnd. Útdráttur.
Dómur um ágreining og ákæru á milli þeirra frænda séra Pantaleons Ólafssonar og Ólafs og Illuga Péturssona.
Séra Gottskálk Jónsson selur Markúsi Ólafssyni hálfa Brunastaði í Mælifellskirkjusókn.
Kaupmálabréf Rafns Sigurðssonar og Skólastíku Gamalíelsdóttur.
Sjá apógr. 5006.
Skiptabréf um þann fimm hundraða part sem kirkjan á Hvilft átti í jörðinni Eyri í Önundarfirði.
Helga Gísladóttir selur Jóni Jónssyni frænda sínum þá fastaeign sem hún átti í garð Jóns Jónssonar lögmanns, eiginmanns síns, í sinn mála.
Margrét Jónsdóttir selur Þormóði Ásmundssyni fimm hundruð í jörðinni Grafarbakka í Ytrahrepp.
Pétur Þorsteinsson og synir hans Finnbogi og Magnús selja herra Guðbrandi Þorlákssyni jarðinar Bjarnargil og Stafnshóll og fá í staðinn Skálá og Hraun í Sléttahlíð.
Sigurður Jónsson selur Bjarna Oddssyni jörðina alla Hallsstaði í Staðarfellskirkjusókn fyrir Efri-Langey og lausafé.
Vitnisburður um að Snorri heitinn Jónsson hafi lýst því að hafi fengið fulla borgun fyrir jarðarpart í Hallsstöðum frá bróður sínum Sigurði Jónssyni.
Sjá apógr. 5006.
Jón Torfason selur móður sinni Þorkötlu Snæbjarnardóttur garðinn allan Kirkjuból í Langadal á Langadalsströnd. Í staðinn fær Jón Árbæ í Holtamannahrepp. Enn fremur lýsir Þorkatla því yfir að Kirkjuból verði eign sonar síns Snæbjörns Torfasonar eftir sinn dag.
Kaupmálabréf Péturs Magnússonar og Elínar Björnsdóttur.
Séra Sigurður Jónsson gefur dóttur dótturdóttur sinnar, Halldóru Gunnlaugsdóttur, jörðina Hafralæk í Aðaldal.
Ólafur Tómasson gefur séra Gottskálk Jónsson og Markús Ólafsson kvitta um greiðslu fyrir Brunastaði í Mælifellskirkjusókn.
Dómur á Gröf í Ytrahreppi vegna kaupa Þormóðar Ásmundssonar á parti í Grafarbakka.
Jón Magnússon selur Teiti Björnssyni jörðina Harastaði í Vesturhópi en fær í staðinn Signýjarstaði í Hálsasveit.
Þórunn Jónsdóttir selur Magnúsi Björnssyni allan reka fyrir jörðinni Hóli á Tjörnesi.
Dómur um þann orðróm sem Vigfús Jónsson, sonur hans Jón Vigfússon og Ari Jónsson höfðu á sig fengið um faðerni barns þess sem Ragnheiður Þórðardóttir hafði alið.
Hrafn Einarsson selur séra Árna Gíslasyni tíu hundruð í jörðinni Ystabæli í Miðbæliskirkjusókn fyrir lausafé auk þess sem séra Árni tekur á sig skuldir þær sem Hrafn hafði ekki greitt til kirkju og kóngs og gefur Hrafn kvittan.
Ari Þormóðsson selur Jóni Björnssyni allan arf sem honum til erfða fallið eftir bróður sinn Sigurð Þormóðsson.
Guðrún Klængsdóttir selur séra Stefáni Gíslasyni tíu hundruð í Neðri-Gegnishólum í Flóa. Útdráttur.
Útdráttur úr AM Dipl. Isl. Fasc. LVIII, 12.
Fjórir vitnisburðir um virðingu og peninga á Hallgilsstöðum eftir Helga Kolbeinsson frá fallinn.
Afrit af AM Dipl. Isl. Fasc. LVIII, 12.
Björn og Jón Konráðssynir klaga að Torfi heitinn Jónsson hafi án samþykkis hans móður, Guðrúnar heitinnar Björnsdóttur, gefið konu sinni, Margréti Jónsdóttur, of mikla tilgjöf. Á Hvestu í Arnarfirði 1589. Útdráttur.
Vottorð, útgefið af borgarráði Hamborgar, um að Jürgen Otto sé, samkvæmt vitnisburði borgaranna Cordt Canzler og Hans Piel, Þjóðverji að ætt en ekki Vendi, fæddur af kristilegu hjónabandi Claus og Catrinen Otten, frjáls maður og að fullu gjaldgengur í samfélaginu.
Mat á kúgildum er gjaldast áttu Páli bónda Jónssyni vegna Björns bónda Benediktssonar. Gert á Tannstöðum í Hrútafirði 28. maí 1589.
Mat á kúgildum er gjaldast áttu Páli bónda Jónssyni vegna Björns bónda Benediktssonar. Gert á Reykjum í Miðfirði 5. maí 1589, skrifað á Staðarbakka degi síðar.
Page 103 of 149