Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 721 documents
(9 documents in progress, 0 done, 712 left)
Hákon Hallsson selur Einari Ísleifssyni ábóta á Munkaþverá með samþykki Þorbjargar Þorkelsdóttur, konu sinnar, jörðina Sandfellshaga í Öxarfirði fyrir 20 hundruð í gangandi fé.
Halldór Jónsson selur Eyjólfi Arnfinnssyni bónda jörðina Brimnes í Svarfaðardal með tilgreindum ítökum.
Vitnisburður Halls Árnasonar prests um rekamörk milli Skóga og Byrgis í Öxarfirði.
Vitnisburður þriggja manna um kæru Ingibjargar Einarsdóttur fyrir Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi yfir hórdómum Runólfs Höskuldssonar bónda síns, og biður hún biskup að gera sér rétt og skilja sig frá hjónalagi við hann.
Ólöf Loftsdóttir og Þorleifur Björnsson selja Magnúsi Jónssyni jarðirnar Kross í Landeyjum og Núp í Eystrahrepp, er Björn Þorleifsson heitinn hafði keypt af Teiti Helgasyni; ennfremur meðkenna þau, að þau hafi selt Magnúsi jörðina Böðvarshóla og Galtarnes í Víðidal.
Kaupmálagjörningur Bjarna Ólasonar og Margrétar Ólafsdóttur, Loftssonar, er fram fór 1461, en vottast og bréfast af fimm mönnum tíu árum síðar.
Bjarni Ólason leiðir próf og lögleg vitni fyrir Brandi Jónssyni lögmanni að því, að Óli Bjarnason og Þóra Sturludóttir, kona hans, gáfu Bjarna syni sínum jarðirnar Þverá í Fnjóskadal, Heiðarhús á Flateyjardalsheiði, Vík í Flateyjardal og Samtýni í Kræklingahlíð til giftingar við Margréti Ólafsdóttur konu sína á festingardegi.
Skrá um peninga þá, er Árni Höskuldsson bóndi reiknaði sér, þá er hann sigldi af Íslandi.
Runólfur Höskuldsson fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og kirkjunni á Hólum jarðirnar Skollatungu, Brattavöllu og Hornbrekku, 15 málnytu kúgildi og 25 hundruð í fríðvirðum peningum að næstu fardögum, fyrir hórdæmi hans með Halldóru Þórðardóttur og Þórdísi Guðmundardóttur.
Vitnisburðarbréf, að Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup hafi látið marga skilvísa presta sverja bókareið að öllum skildaga hans og Runólfs Höskuldssonar frá 23. janúar 1471. (DI V, nr. 543).
Vitnisburðarbréf Bessa Svartssonar prests um vottorð tveggja manna, að Skrapatunga ætti allan Mjóvadal fyrir austan fram Mjóvadalsá, Gulltungur, Bárðardal og Ambáttardal til móts við Þverá í Norðurárdal.
Sigurður Björnsson lýkur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Tungu á Svalbarðsströnd fyrir 20 hundruð og þar til 20 hundruð í fríðvirðum peningum að næstum fardögum fyrir porcio Svalbarðskirkju um sína daga, og lofar að svara á prestastefnu fyrir porciu um daga föður síns.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, að Runólfur Höskuldsson, er biskupinn hafði látið handtaka, væri rétt fangaður, því að hann hefði rofið sátt og lofan við biskup, gengið á settar skriftir og fallið til fyrra hórdæmis og legið með Halldóru Þórðardóttur undir einum klæðum í kirkjunni á Bakka í Öxnadal.
Dómur tólf presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um Mjóvadalsmál; hafði Þorsteinn Ormsson beitt Mjóvadal, en biskup taldi dalinn eign Skrapatungu, jarðar Hólakirkju.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup staðfestir Mjóvadalsdóm, sbr. dóm frá 4. september 1472 (DI V, nr. 602).
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um kirkjureikning á Einarsstöðum og Svalbarði, er Sigurður Björnsson átti að svara.
Vitnisburðarbréf um viðtal þeirra bræðra Magnúsar Bjarnarsonar og Gunnars Bjarnarsonar um eign á parti í Harrastöðum.
Vitnisburðarbréf um landamerki milli Geldingaholts og Glaumbæjar í Skagafirði.
Vitnisburður Kolla Magnússonar um teiginn milli Hóla og Reykjarhóls í Fljótum, að hann hafi fylgt Hólum meir en upp á 20 ár.
Jón Þórðarson vottar, að hann hafi heyrt teginn milli Hóla og Reykjarhóls í Fljótum, er Hólastaður á, eignaðan Hólum meir en í 30 vetra.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru biskups til Þorsteins Ormssonar um dómrof.
Dómur útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru séra Jóns Broddasonar, ráðsmanns Hólastaðar, til Þórarins Þorsteinssonar, að hann hefði ekki goldið leigur af sex kúgildum Hólastaðar og tvö ásauðar kúgildi.
Eyvindur Eyvindsson selur Eyjólfi Arnfinnssyni bónda, með samþykki Sölva Jónssonar, til fullrar eignar jörðina Skarðsdal með kotinu Leyningi í Siglufirði fyrir 14 hundruð í lausafé.
Sigurður Þorláksson prestur og Kolli Magnússon lofa Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi að gera upp á sinn eigin kostnað kirkjuna í Ási í Hegranesi svo góða sem hún áður var, nema biskup skyldi leggja til sex hundruð, og taka þeir jörðina á leigu um þrjú ár.
Stefnubréf Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups til Þorláks Gíslasonar um það, að hann hefði farið til Efsta-Lands, jarðar Hólakirkju, brotið upp bæinn, raskað húsum og hrakið Ásgrím Árnason, landseta heilagrar kirkju.
Jón Ólason selur Kolbeini Ingimundarsyni presti, heilagrar Hólakirkju til eignar, þrjú hundruð í Núpi í Öxarfirði fyrir fimm hundruð, og kvittar um andvirðið.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup setur Jón Snorrason af kjól og kalli fyrir manndrápsáburð, áverka við prest, rán og gripdeildir, óhlýðni, ill orð og verk, og hótar að bannfæra hann.
Steingrímur Ísleifsson selur Einari Ísleifssyni bróður sínum, ábóta á Munkaþverá, propiciatorium (oblátuaskja?) með silfur forgyllt, er vegur vart fjórar merkur, klaustrinu til eignar, fyrir tíu málnytukúgildi og fimm geldfjárkúgildi, tvítuga voð, tvær stikur klæðis og tvo klyppinga á ári meðan fimm hundruð sé ólukt af skuldinni.
1) Sveinn Pétursson Skálholtsbiskup afleysir og kvittar þau hjón Árna Guðmundsson og Steinunni Sigurðardóttur, að settum skriftum, fyrir það þau voru með Þorleifi Björnssyni og hans fylgjurum í heimreið til Oddgeirshóla í Flóa þegar kirkjan var saurguð með slögum og blóðsúthellingum, kvittar biskup og fyrir bæn þeirra hjóna Þorleif og fylgjara hans af fjársektum en bannar þeim kirkjugöngu fyrr en þeir hafi tekið skriftir. 12. mars 1474 2) Sveinn Pétursson biskup í Skálholti gefur séra Oddi Péturssyni, officialis heilagrar Skálholtskirkju, umboð til að afleysa Þorleif Björnsson og þá sem með honum voru í Oddgeirshólareið 3. október 1473, og setja þeim skriftir nema Eyjólf lásara Gunnarsson, sem var í Krossreið, og Eyjólf Fúsason sem bannsunginn var af Ólafi biskupi á Hólum; ennfremur umboð til að skrifta Þorleifi og Ingveldi Helgadóttur fyrir síðustu barneign þeirra. 12. apríl 1474 3) Transkriftarbréf þriggja manna. 1. maí 1474.
Viðvíkurdómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um Hólateig í Fljótum.
Ólafur Ingimundarson prestur vottar, að hann hafi í sumar lesið í lögréttu fyrir Brandi Jónssyni lögmanni og öllum ríkismönnum og almúganum dóm frá 29. apríl 1474 (DI V, nr. 654) um Hólateig í Fljótum, og lét Brandur lögmaður samþykkja prófaleiðslur biskups löglegar.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup tekur staðinn Miklabæ af Sigmundi Steindórssyni presti um þrjú ár, fyrir óhlýðni hans, og segir hann skyldugan að taka lausn og skriftir.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup bannar leikmönnum að taka prófaleiðslur og ganga dóma um eignir heilagrar kirkju og draga þær svo undir sig.
Vitnisburður tveggja manna, að Hallsteinn Þorsteinsosn hafi gefið Þórði Jónssyni frænda sínum hálfa jörðina Hól í Siglufirði og þar til tíu hundruð í þarflegum peningum.
Einar Ísleifsson ábóti á Munkaþverá selur Sigurði Jónssyni príor og klaustrinu á Möðruvöllum skóg með tilgreindum ummerkjum í Skuggabjarga jörðu í Laufássókn, fyrir vervist út í Flatey með öllum vergögnum, saltbrennu, húsgerð og naustgerð.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup tekur Ingibjörgu Þorláksdóttur til ævinlegrar próventu á Hólastað, en Kolli Magnússon bóndi hennar gefur í próventuna hálfa jörðina Skálá í Sléttuhlíð og þar til 22 hundruð í gangandi fé.
Snorri Bjarnason selur Einari Ísleifssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá jörðina Hróastaði í Fnjóskadal með þeim gögnum og gæðum, er hann og Rannveig Björnsdóttir kona hans varð eigandi að, en ábóti leggur í mót Kross í Ljósavatnsþingum.
Snorri Bjarnason selur Einari Ísleifssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá jörðina Hróastaði í Fnjóskadal með þeim gögnum og gæðum, er hann og Rannveig Björnsdóttir kona hans varð eigandi að, en ábóti leggur í mót Kross í Ljósavatnsþingum.
Óli Oddsson selur Jóni Ólasyni fjögur ágildi hins þrettánda hundraðs upp í jörðina Ærlæk í Öxarfirði fyrir jafnvirði í fríðvirðum peningum.
Magnús Benediktsson selur Sigurði Jónssyni príor og klaustrinu á Möðruvöllum jörðina Skuggabjörg í Fnjóskadal með tilgreindum skógarmörkum og landamerkjum, en ábóti galt Magnúsi Sírelstaði (Sílastaði) í Kræklingahlíð, og gaf Magnús fimm hundruð í milli.
Klængur Einarsson prestur vottar, að hann hafi lesið dóminn um Hólateig, frá 19. apríl 1474 (DI V, nr. 654) yfir Þorvaldi Jónssyni.
Jón Broddason officialis Hólabiskupsdæmis bannar Magnúsi Illugasyni presti að þjónusta Einar Björnsson og hans fylgjendur, sem voru að ráninu í Miklabæ.
Vitnisburður um landamerki Hóls og Selár á Skaga.
Dómur útnefndur af séra Jóni Broddasyni, officialis fyrir norðan land og ráðsmanni á Hólum, um ákæru hans til Jóns Þórðarsonar, að hann hefði drepið hest fyrir Hólastað.
Guttormur Jónsson lýsir því, að hann hafi gefið Þórði Jónssyni bróður sínum tíu hundruð í jörðinni Hóli í Siglufirði.
Tveir menn lýsa því að Guttormur Jónsson handlagði Þórði Jónssyni bróður sínum tíu hundruð í jörðinni Hóli í Siglufirði.
Þórður Jónsson lýsir því, að hann hafi gefið séra Sigurði Þorlákssyni jörðina Hól í Siglufirði.
Þórður Jónsson gefur Sigurði Þorlákssyni presti jörðina Hól í Siglufirði í löggjöf sína, en Sigurður prestur gefur Þórði söðul með öllum reiðskap fyrir tvo hundruð og góðan hest bleikálóttan.
Bréf um landamerki Ytra-Hóls í Kaupangssveit og Grafar.