Den Arnamagnæanske Samling
Nasjonalarkivet
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
1) Vitnisburður Illuga Björgólfssonar um osttoll til Hólastaðar af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum. 31. júlí 1448 2) Vitnisburður Steinþórs Jónssonar um osttoll til Hólastaðar af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum. 3. ágúst 1448 3) Vitnisburður tólf mana um það að Hólastaður eigi osttoll af hverjum skattbónda milli Skaga og Hrauns í Fljótum. 7. júlí 1450 4) Fjórir menn transkríbera þrjú bréf um osttoll Hólakirkju. 17. júlí 1480
1) Eilífur Ólafsson vottar að Valdís Helgadóttir hafi pláguveturinn gefið Þingeyrakirkju í sitt testamentum jörðina Ytriey á Skagaströnd, ef hún andaðist úr þeirri sótt er þá gekk yfir landið. 28. júlí 1403. 2) Guðmundur Indriðason transkríberar bréf Eilífs Ólafssonar frá 28. júlí 1403. 6. júní 1527
1) Jón Arason Hólabiskup gefur og geldur Helgu Jónsdóttur (Sigmundssonar), vegna Einars Jónssonar bróður hennar, 20 hundruð í jörðinni Þóreyjarnúpi, en selur Kráki Hallvarðssyni bónda Helgu tólf hundruð í jörðinni fyrir Kvennahól á Skarðsströnd og átta hundruð í smíðum eða öðru, er þeim semdi biskupi og Kráki. 6. maí 1532 2) Transskrift tveggja manna. 28. apríl 1578
Vitnisburður Guðmundar Salómonssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá. Pálmasunnudag [11. apríl] 1582.
Dómur átta presta og fjögurra leikmanna útnefndur af Jóni Vilhjálmssyni Craxton Hólabiskupi, þar sem jörðin Kelduland í Skagafirði er dæmd óbrigðileg eign heilagrar Hólakirkju í Hjaltadal.
Logi Stígsson prestur og fimm menn aðrir votta að þeir hafi séð sálugjafabréf Steinmóðar Þorsteinssonar prests og tilfæra úr því kafla.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lýsir því, að hann haldi jarðirnar Núpufell og Hnappstaði með öllu því góssi, er þar fylgi, fallnar undir heilaga kirkju og hennar formenn samkvæmt Eyrarlandsdómi 7. júní 1479 (DI VI, nr. 202), er Árni Höskuldsson hafi rofið, og fyrirbýður hverjum manni hald á þessum jörðum, nema með sínu leyfi.
Skrá yfir eignir Hólakirkju í Hjaltadal, þá er Pétur Nikulásson Hólabiskup bjóst til skips.
Gottskálk Keneksson Hólabiskup selur Einari ábóta á Munkaþverá jörðina Kaldbak á Melrakkasléttu, er Hólastaður á, að fráteknum reka, en ábóti gefur í mót jörðina að Dýjum í Grenjaðarstaðaþingum.
Sáttmáli um arf eftir Jón Nikulásson en Helga Jónsdóttir, ekkja hans, skyldi fá tvo hluti en dætur þeirra Sigríður eldri, kona Steinmóðar Jörundssonar, og Sigríður yngri, kona Ólafs Örnólfssonar, skyldu skipta með sér afganginum. Helga skyldi eignast í mála sinn 12 hndr. í Látrum í Mjóafirði en dætur hennar skyldu hver um sig fá sinn 6 hndr. hlut. Minnst er á Veðrará hina stærri í Önundarfirði sem hafði gengið kaupum og sölum og loks samþykkt að Helga megi gefa alla sína peninga í próventu hverjum sem hún vill.
Þrír prestar og einn leikmaður votta, að Hrafn Brandsson beiddist lausnar af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi af forboði því, er biskup hafði sett hann í heilagrar kirkju vegna, og sagðist biskup vilja leysa hann, þá er hann skilaði aftur Randíði Bjarnadóttur, sem Bjarni Ólason faðir hennar hefði legið með, og skyldi það gert fyrir langaföstu (þ.e. 18. febrúar).
Vitnisburður Jóns Jónssonar, barnfæddur á Tjörnum í Sléttahlíð og þar vistfastur til 34 ára aldurs en síðan verið 9 ár í Hofsþingum, um að hafa aldrei heyrt annað haldið eða haft en að Fjall í Sléttahlíð ætti land og reka inn í Raufarberg. Árið 1595 rak hvalbrot lítil spöl fyrir innan Raufarberg og tók séra Erlendur Guðmundsson það að sér, lét vega það og afhenti Þorláki Runólfssyni sem var verkamaður Magnúsar Björnssonar á Hofi á Höfðaströnd og gerði enginn athugasemd við það.
Heitbréf Skagfirðinga.
Jón Þorfinnsson ábóti í Þykkvabæ og officialis heilagrar Hólakirkju samþykkir og tekur Illuga Björgólfsson til ævinlegrar próventu á staðinn í Reyninesi.
Kristín Þorsteinsdóttir selur Guðmundi Jónssyni alla jörðina Þorbjargarstaði í Laxárdal fyrir tíu hundruð í lausafé.
Vitnisburður, að Halldór Brandsson hafi samþykkt, að Ólafur Halldórsson sonur sinn gæfi Sturlu Magnússyni í próventu og sér til framfærslu alla þá peninga, er Ólafi höfðu til erfða fallið eftir Helgu Einarsdóttir.
Dómur sex manna útnefndur af Páli Grímssyni bónda, er þá hafði kóngsins sýslu og umboð yfir Húnavatnsþingi, um kærur Jóns Halldórssonar til Þorláks Þórissonar, að hann hefði ekki rekið lambfé sitt á Eyvindarstaðaheiði eða toll goldið eftir gömlum vana.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lýkur séra Katli Grímólfssyni jörðina Bakka í Ólafsfirði í ráðsmannskaup fyrir fimm hundruð.
Þórður Jónsson gefur Sigurði Þorlákssyni presti jörðina Hól í Siglufirði í löggjöf sína, en Sigurður prestur gefur Þórði söðul með öllum reiðskap fyrir tvo hundruð og góðan hest bleikálóttan.
Dómur tólf presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, að Bjarni Ólason sé rétt fangaður af kirkjunnar valdi.
Snjólfur Sigurðsson prestur lýsir því að hann hafi vegna Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups lukt séra Guðmundi Skúlasyni svo mikla peninga fyrir jörðina Býjasker, sem bréfið greinir.
Jón Jónsson geldur og fær Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi til fullrar eignar jarðirnar Vindheima og Ás í Hörgárdal og Bakka í Öxnadal í sakfelli og brot sín og Rögnu Finnbogadóttur, en þau voru að öðrum og þriðja manni, og gerir biskup Jón kvittan og ákærulausan.
Vitnisburður um landamerki Hóls og Selár á Skaga.
Tylftardómur klerka útnefndur af Sigurði Þorlákssyni officialis um kæru hans til séra Jóns Þorvaldssonar um prímsigning heiðins barns "fyrir utan alla bevísing að vakta efni eða atferli", um að hafa messað yfir og samneytt forboðuðum manni, um tíunda aðtekt og fyrir að hafa farið burt af þingum sínum orlofslaust.
Þorbergur Bessason bóndi lýsir því, að hann hafi fengið Ólafi Hjaltasyni Hólabiskupi til eignar jörðina Litla-Tungu í Bárðardal.
Vitnisburður Hákonar Kálfssonar um selveiði í Jökulsá fyrir Skógum í Axarfirði.
Sigmundur Steindórsson prestur selur Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi 15 hundraða part í jörðunni Ási í Vatnsdal, en biskup geldur í móti jörðina Hól í Svartárdal, og á Sigmundur prestur að gefa 15 kúgildi í milli.
Guðmundur Hákonarson sýslumaður og klausturhaldari á Þingeyrum bætir sex kúgildum við fyrri gjöf sína fyrir 12 árum þegar hann gaf fátækum jörðina Hamar í Svínavatnshreppi.
Vitnisburður séra Jóns Jónssonar, 52 ára, sem hefur frá því hann man eftir sér verið á Þingeyrum og oftast á Skagaströnd og heyrt jafnan haft og haldið að Spákonufell í Vindhælishreppi ætti þann höfða sem kallaður er Spákonufellshöfði og aldrei heyrt tvímæli á því leika. Þá hafi hann aldrei heyrt höfðann eignaðan nokurri annarri jörð fyrr en hval rak þar í sumar.
Elín Magnúsdóttir, Einar Sigurðsson og Jón Sigurðsson fá Einari Benediktssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá til fullrar eignar þann part í jörðinni Illugastöðum, er þau hefði mátt hljóta að erfð eftir Stíg Einarssson, en ábóti kvittar Stíg um allt það, er hann hefði mátt vera klaustrinu skyldugur.
Grímur Pálsson bóndi lýkur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi 25 hundruð upp í jörðina Hvassafell í Eyjafirði í reikningsskap þann, er hann og Páll Brandsson faðir hans urðu skyldugir biskupinum.
Vitnisburður tveggja presta um það, að páfatíund hafi verið greidd til Noregs úr Hólabiskupsdæmi á dögum þeirra Hólabiskupanna Auðunns Þorbergssonar rauða, Lárentíusar Kálfssonar og Egils Eyjólfssonar.
1) Úrskurður Brands Jónssonar lögmanns, að Hallvarður Ámundsson, er Skúla Árnason óforsynju í hel sló, sé ferjandi til Noregs og sæki landvist sína á konungs náð. 5. september 1468. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 9. september 1468.
Mikael Jónsson prestur lýsir því að Jón Henriksson (Tófason) Hólabiskup, góðrar minningar, hafi kallað sig frá Noregi til að gerast prestur á hans umdæmi, og hafi biskup veitt sér Breiðabólsstað (í Vesturhópi), og hafi hann meðal annars gerst fjárráðamaður biskupsstólsins, og á deyjanda degi hafi Jón biskup, er hann sá af forvitru sinni og lækniskunnustu, að sjúkleikur sá, er hann hafði tekið, mundi draga hann til bana, skipaði sig til officialis og hafi það verið samþykkt af mörgum lærðum og leikum, en því embætti hafi hann lítt náð, og kennir það ofríki séra Þorkels Guðbjartssonar og séra Ara Þorbjarnarsonar, er prestafundur á Möðruvöllum kaus til officialis, og stefnir hann þeim því báðum á ársfresti fyrir erkibiskupinn í Niðarósi.
Testamentisbréf ónafngreinds manns, er gefur ýmsar gjafir einkum klaustrinu á Reynistað og systrunum þar, en bóla gengur um land.
Vitnisburðarbréf, að Kristín Jörundsdóttir gaf Jóni Jónssyni, er kallaður var príorsbróðir, fjórðungsgjöf úr öllum sínum peningum, og að hann tók að sér og eignaðist með vilja og samþykki Kristínar jörðina Skeggjastaði á Ströndum.
Dómur tuttugu presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru hans til Þorláks Semingssonar um það, að hann hefði höggvið skóg í jörðum Hólastaðar (Barnafell og Garður), og um 80 hundraða gjöf séra Semings Magnússonar föður Þorláks.
Vitnisburður sex manna um upplestur bréfa á alþingi.
Kristín Þorsteinsdóttir geldur Sigmundi Guðmundssyni syni sínum hálft þrettánda hundrað í jörðunni Sólheimum ytri í Mýdal gegn tíu hundruðum í Ystaskála undir Eyjafjöllum, með þeim atriðisorðum, sem bréfið greinir.
Ásgautur Ögmundsson selur Narfa Jónssyni príor í Skriðu 20 hundruð í jörðunni Borgarhöfn í Hornafirði og 18 hundruð í fjöru, er liggur í Öræfum milli Kvíár og Hamraenda, hálfa við Sandfellinga, og að auk hundrað í fríðu og ófríðu, fyrir Sumarliðabæ í Holtum með sex málnytukúgildum, og þar til lofaði Narfi príor að taka að sér pilt, er Ásgauti heyrði til, og kenna honum les, söng, skrif og rím, svo að hann mætti vígjast prestur, með öðru skilorði, er bréfið greinir.
Tylftardómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um kærur biskups til Páls Þórálfssonar um kúgildahald fyrir Hólakirkju "um tólf ár síðan sóttina" (1494).
Halldór Steinþórsson selur Jóni Gamlasyni presti, ráðsmanni og umboðsmanni heilagrar Hólakirkju, og staðnum á Hólum jörðina Nýlendi á Höfðaströnd fyrir lausafé.
1) Máldagi Nikuláskirkju í Odda á Rangárvöllum. 1270. 2) Þrír prestar transkríbera máldaga frá 1270 (DI II, nr. 34). 23. desember 1499.
Fimm menn votta að Benedikt Kolbeinsson og Kolbeinn Benediktsson sonur hans seldu Reynisness stað jafnmikla reka sem Þorsteinn Kolbeinsson seldi Agli Eyjólfssyni Hólabiskupi.
Vitnisburðarbréf, að Þorbjörg Þorleifsdóttir upplagði Þorsteini Jónssyni að selja sinn eignarhluta í jörðinni Brúnastöðum, og slíkt hið sama gerði Hallbera Þorleifsdóttir systir hennar.
Halldóra abbadís og konventusystur í Kirkjubæjarklaustri lýsa því, að þeim hafi, úr því Goðsvin Comhaer Skálholtsbiskup hafi lagt frjálsa kosning í þeirra skaut, komið saman um að leggja heldur frá klaustrinu árlega eitt hundrað til Reynistaðarklausturs í kost systur Margétar Þorbergsdóttur, en að taka hana til Kirkjubæjar og fá lagt árlega hundrað frá Reynistaðarklaustri.
Bréf Brostrup Geddes höfuðsmanns frá 17. júlí 1595 um veiði Stafholtskirkju i Nikuláskeri í Norðurá.
Ingibjörg Loftsdóttir gefur Magnús Jónsson öldungis kvittan um það umboð, er hann hefur haft yfir hennar peningum, nema þeim peningum, er hún á í Holti í Fljótum.
Page 1 of 15





































