Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
Vitnisburðarbréf, að þrír prestar og einn leikmaður, sóru bókareið að því á prestastefnu 22. júní 1495, að Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup, góðrar minningar, hefði gefið og skipað heilagri Hólakirkju alla þá peninga, sem hann átti auk þeirrra, sem í hans testamentisbréfi standa.
Dómur átján presta, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, um kærur biskups til Hrafns Brandssonar, að hann vildi eigi gera biskupi reikning af hálfkirkjunni í Skriðu, og að hann hefði veitt sér mótblástur og mótikast, svo að hann hefði bannað öðrum í sínu lögdæmi að gera biskupi hálfkirknareikninga.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup selur Þórði Árnasyni jörðina Geitaberg á Hvalfjarðarströnd, en Þórður gefur á móti hálfa jörðina undir Fjalli í Sléttuhlíð með tilgreindum rekum í öðru lagi og þar að auki að lúka tólf kúgildi, sem greiðist á tveim árum.
Úrskurður Hrafns Guðmundssonar lögmanns um þrætu milli Þorleifs Marteinssonar og Þorleifs Árnasonar um það, hversu Guðný og Helgi börn Jóns Hákonarsonar hefði erft Víðidalstungu eftir hann.
Þorleifur Björnsson fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi til panta upp á þrjú ár í skuld sína jörðina Galtarnes í Víðidal með kúgildum, er þar með standa, en væri jörðin eigi leyst á þriggja ára fresti, þá skyldi hún eign biskups.
1) Jón Pálsson prestur lýsir því, að séra Þorkell Guðbjartsson hafi afhent sér stað og kirkju á Grenjaðarstöðum með öllum eignum, og að hann ætli að borga sjálfur það, sem á bresti hjá séra Þorkeli; sé þeir alsáttir nú fyrir guðs skuld og bænastað Goðsvins biskups, og heitir séra Jón séra Þorkeli vináttu og fylgi, 26. apríl 1440. 2) Tveir prestar og fjórir leikmenn transskríbera lýsing Jóns Pálssonar prests um sætt hans við séra Þorkel Guðbjartsson, 14. ágúst 1471.
Sveinn Hallvarðsson selur Árna Ólafssyni Skálholtsbiskupi, með samþykki Ástríðar Jörundardóttur konu sinnar, jarðirnar Borg og Írafell í Tungusveit, en Árni biskup selur honum á mót Ríp í Hegranesi og þar með 10 kúgildi (sbr. bréf 1 . júní 1417, nr. 315).
Jón Arason Hólabiskup selur séra Pétri Pálssyni alla jörðina Ytri-Laugar í Reykjadal fyrir jörðina Syðri-Ey á Skagaströnd.
Sveinn Sumarliðason bóndi afhendir Finnboga Jónssyni lögmanni þau 33 hundruð og 40 álnum betur, er hann eignaðist af Torfa Jónssyni í Klofa í jörðunni Hvassafelli í Eyjafirði, með fleira skilorði, er bréfið greinir.
Vitnisburður Sveinbjörns Þórðarsonar prests og Halls Árnasonar prests um vitnisburð Hákonar Kálfssonar viðvíkjandi Valþjófsstöðum í Núpasveit.
Marcellus Skálholtsbiskup vottar, að Ólafur Rögnvaldsson, prestur Skálholtsbiskupsdæmis, hafi fengið sér fyrir hönd Gottskálks Kenekssonar Hólabiskups og umboðsmanns Skálholtskirkju tíu nobila í ensku gulli eða fjögur mörk í dönskum peningum.
Dómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um fiskatolla, fjóðrung fiska af hverjum vermanni frá Másbúðum og til Fossár, til kirkjunnar á Hofi á Skagaströnd, og kallast tollar þeir Ólafstollar.
Stefán Einarsson selur Ara Jónssyni jörðina Dísastaði og 8 hundruð í jörðunni Fagradal í Breiðdal fyrir jörðina Vatnsleysu í Fnjóskadal og 12 hundruð í lausafé.
Ásgrímur Jónsson ábóti á Þingeyrum selur Gísla Filippussyni jörðina Bjargastaði í Austurárdal og fjögur hundruð í eyðikotinu Hnausum fyrir 10 hundruð í fullgildispeningum og sex hundruð, er Gísli skyldi taka til sín í þjónustulaun um tvö ár.
Vitnisburðarbréf, að Jón Sigmundsson hafi handabandað séra Sigmundi Steindórssyni föður sínum að veðsetja Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Flatatungu, en lausn skyldi heimil á jörðinni í þrjú ár.
Vitnisburður tveggja manna, að Hallsteinn Þorsteinsosn hafi gefið Þórði Jónssyni frænda sínum hálfa jörðina Hól í Siglufirði og þar til tíu hundruð í þarflegum peningum.
Kaupmálabréf Ólafs Filippussonar og Vigdísar Jónsdóttur.
Vitnisburður, að Árni Höskuldsson gerði testament sitt sjúkur á líkama, en heill að viti, og lukti kirkjunni í Núpufelli í reikning sinn hálfa jörðina Gilsá í Eyjafirði, en hálfa gaf hann Indriða Árnasyni syni sínum, og skyldi Höskuldur Árnason þá eiga lausn á allri jörðinni.
Kvittun Torfa Þorsteinssonar til Ólafs Hjaltasonar Hólabiskups fyrir skilum föðurarfs.
Dómur tólf klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um sakir þær, er biskupinn kærði til Höskuldar Runólfssonar.
Sigurður Sigurðsson prófastur tekur út kirkjuna á Ingjaldshóli að bón Þórðar Þorlákssonar Skálholtsbiskups.
Snorri Bjarnason selur Einari Ísleifssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá jörðina Hróastaði í Fnjóskadal með þeim gögnum og gæðum, er hann og Rannveig Björnsdóttir kona hans varð eigandi að, en ábóti leggur í mót Kross í Ljósavatnsþingum.
Sigurður Jónsson príor á Möðruvöllum lýsir því, að hann hafi tekið bókareið af Þorkeli Blængssyni um landamerki Stóra-Hamars í Eyjafirði, svo sem bréifð vottar.
1) Fjórir menn votta, að Þorleifur Björnsson hafi 2. janúar 1477 selt Sveini Guðmundssyni alla jörðina á Kryddhóli í Skagafirði fyrir Ásgrímsstaði í Hegranesi og þar til lausafé. 9. janúar 1477. 2) Transskriftarbréf tveggja manna. 7. maí 1490.
Bréf Einars Ísleifssonar ábóta á Munkaþverá um gjafir hans til Stígs Einarssonar frænda síns.
Vitnisburður séra Jóns Gottskálkssonar og Ólafs Tómassonar um að hafa séð og heyrt á orð og handaband Jóns Jónssonar og Guðrúnar Árnadóttur á Víðimýri í Skagafirði þar sem Guðrún samþykkti allan þann gerning og kaupskap sem bóndi hennar séra Nikulás Þórðarson hafði haft við Jón Jónsson um jarðirnar hálfa Brúnastaði í Tungusveit og Krakavelli í Flókadal.
Dómur Þorkels Guðbjartssonar prests, fimm presta annarra, tveggja messudjákna og fjögurra leikmanna, útnefndur af Jóni Vilhjálmssyni Craxton Hólabiskupi, um sættargerð þeirra Brands Jónssonar og Magnúsar Benediktssonar í umboði Margrétar Eiríksdóttur móður sinnar um kirkjufén að Hofi á Höfðaströnd.
Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um séra Jón Pétursson fyrir það, að hann hafði þjónustað Finnboga Jónsson og hans fólk og messað yfir þeim í biskupsins forboði.
Álitsgerð Jóns Arasonar Hólabiskups um rekaítak Laufáskirkju í Látrarekum.
a) Fjörumörk Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð. Um 1363. b) Holtsmáldagi undir Eyjafjöllum. Um 1332. c) Afhending Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð, þegar séra Sigurður Einarsson tók við. 1591.
Atli Önundarson, Kári Önundarson og Eyjólfur Önundarson selja Einari Ísleifssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá allan skóginn í Vaglajörðu milli Merkilækjar við Valavörðu og Kiðsár, að fráteknum ánefndum parti, fyrir alls 15 hundruð, með fleira skilorði, er bréfið greinir.
Guðmundur Ólafsson ráðsmaður í Björgvin selur Gottskálki Kænekssyni Hólabiskupi jörð sína Skriðuland (nú kallað Efstaland) í Öxnadal norðan á Íslandi og kvittar fyrir andvirðið.
Samningur þeirra Ögmundar Pálssonar Skálholtsbiskups og Jóns Arasonar Hólabiskups um útlúkningar Jóns til Mýrakirkju í Dýrafirði, kennimannahald þar og fleira.
Vitnisburður Eiríks Einarssonar prests um gjöf Salbjargar Gunnarsdóttur á Brúarlandi í Deildardal til Hóladómkirkju í próventu sína.
Sigurður Jónsson prestur og tilsjónarmaður Hólabiskupsdæmis setur og fær séra Birni Tómassyni Hólakirkjuumboð og ráðsmannsstarf yfir öllum eignum Hólastóls í Svarfaðardal inn yfir Hillur.
Narfi Jónsson príor á Skriðu selur Einari Benediktssyni ábóta á Munkaþverá og klaustrinu þar jarðirnar Lækjardal og Flautafell í Þingeyjarþingi og nokkurt lausafé fyrir þau 15 hundruð, er Narfi príor hafði upp borið af peningum Guðrúnar Bárðardóttur vegna Einars ábóta.
Tylftardómur, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, um kæru biskups til Þórðar Sveinbjarnarsonar út af kaupi biskups á Hólum í Laxárdal og Nesi í Fnjóskadal.
Björn Sæmundsson handleggur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi í reikning kirkjunnar á Einarsstöðum jarðirnar Dattstaði og Hóla í Einarsstaðaþingum fyrir 50 hundraða.
Fjórir prestar vitna um prestskyldu á Grund í Eyjafirði eftir máldögum Hólakirkju.
Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup selur Jóni Illugasyni Hólakirkjujörðina Neðra-Fell í Kinn í Staðarkirkjusókn fyrir 20 hndr. en undanskilur deilureit fyrir austan ána sem Fell og Guðmundarstaðir í Ljósavatnshreppi höfðu haft uppi ágreining um. Sá reitur skyldi fylgja Guðmundarstöðum. Á móti lét Jón Illugason af hendi Hóla í Fljótum í Holtskirkjusókn með öllum þeim skilmála sem áður hafði farið fram á milli Ólafs Hjaltasonar Hólabiskups og séra Illuga Guðmundssonar þá þeir skiptust á Hólum og Tjörn í Aðaldal.
1) Vígslumáldagi Maríukirkju á Kirkjubóli í Skutulsfirði, er Jón Halldórsson Skálholtsbiskup setti. 1333 2) Máldagi kirkjunnar á Eyri í Skutulsfirði, er Jón Halldórsson Skálholtsbiskup setti. 1. september 1333 3) Þórarinn Sigurðsson Skálholtsbiskup staðfestir máldaga kirkjunnar á Kirkjubóli þann er Jón Halldórsson Skálholtsbiskup hafði skipað 1333. 17. ágúst 1363 4) Gottskálk Keneksson Hólabiskup og administrator heilagrar Skálholtskirkju samþykkir ofangreinda máldaga og veitir aflát þeim er sæki með góðfýsi Kirkjubólskirkju í Skutulsfirði. 31. ágúst 1452 5) Oddur Einarsson Skálholtsbiskup vottar og samþykkir að allt skuli haldast sem í ofangreindum máldögum Kirkjubólskirkju stendur eftir þennan dag svo lengi sem það stríði ekki gegn guðs heilaga orði né landslögum. 1590.
Dómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi, þar sem þeir dæma jörðina Skeggjastaði á Ströndum fullkomlega eign Hóladómkirkju, síðan Jón Jónsson djákni príorsbróðir galt biskupinum hana í sektir, skuldir og reikningsskap.
Vitnisburður Sveins Magnússonar prests og ráðsmanns á Möðruvöllum, að hann hafi tekið af Árna Einarssyni 7 hundruð vaðmála og 2 hundruð í slátrum fyrir það 10 hundraða ílag, er staðurinn átti í jörðina Ásláksstaði í Kræklingahlíð.
Þorkell Guðbjartsson prestur selur Einari Ísleifssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá jarðirnar Reyki í Fnjóskadal og Efri-Hóla í Núpasveit, en ábóti leggur í móti Skóga í Fnjóskadal og Helluvað við Mývatn og Fagranes, og þar til hálft áttunda hundrað í jarðamismun.
Séra Einar Benediktsson selur Finnboga Einarssyni, syni sínum, jörðina Grindur á Höfðaströnd fyrir Skáldalæk í Svarfaðardal og lausafé að auki.
Þórarna húsfreyja Arnórs frosta samþykkir sölu bónda síns á Frostastöðum til Egils Eyjólfsosnar Hólabiskups.
Dómur tólf klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um kærur biskups til séra Hallkels Guðmundssonar um afmörkun á einni á, sauðatöku og próventurof.
1) Vilkismáldagi, Oddi. 1397 2) Dómur sex presta útnefndur af Jóni Krabba Skálholtsbiskupi um að Árni Pétursson bóndi í Hjálmholti sé skyldur að greiða Skálholtsráðsmanni þá ískyldarsauði er eigi hefði verið luktir í níu eða tíu ár af jörðunni Hjálmholti. 21. júlí 1464 3) Transskriftarbréf tveggja manna. 5. febrúar 1548
Árni Ólafsson Skálholtsbiskup, visitator og hirðstjóri yfir allt Ísland, kvittar Pál Runólfsson fyrir víseyri og landskuldum, sem hann hafi sýslu haft og umboð milli Jökulsár og Norðfjarðarnípu.
1) Dómur tólf presta, útnefndur af Jóni Arasyni Hólabiskupi, um gjöf þá, er Teitur Þorleifsson heitinn gaf guði og sankti Jóhannesi í sitt testamentum jörðina Glaumbæ í Skagafirði að sér fráföllnum. 24. nóvember 1540. 2) Vottfest uppskrift fjögurra manna. 20. janúar 1579.