Arkivverket
Den Arnamagnæanske Samling
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 721 documents
(9 documents in progress, 0 done, 712 left)
1) Úrskurður Brands Jónssonar lögmanns, að Hallvarður Ámundsson, er Skúla Árnason óforsynju í hel sló, sé ferjandi til Noregs og sæki landvist sína á konungs náð. 5. september 1468. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 9. september 1468.
Guðmundur Jónsson prestur selur Nikulási Þormóðssyni príor og klaustrinu á Möðruvöllum jörðina Böggustaði í Svarfaðardal fyrir jarðinar Bakka og Steindyr í sömu sveit með þeirri milligjöf, er bréfið hermir.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup skipar séra Jóni Helgasyni að taka saman osttoll þann, sem Hólakirkja á að hafa ævinlega af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum.
Jón Arason Hólabiskup fær Ara Jónssyni (syni sínum) til fullrar eignar jörðina Reyki á Reykjaströnd fyrir 40 hundraða jörð, er Ari eigi hjá Jóni Magnússyni bónda fyrir Vindehima í Hörgárdal.
Próventusamningur Magnúsar Jónssonar og Margrétar Finnbjarnardóttur við Einar Ísleifsson ábóta og klaustrið á Munkaþverá.
Tylftardómur útnefndur af Einari Oddssyni, kóngs umboðsmanni í Húnavatnsþingi, um arftöku Einars Ólafssonar eftir Solveigu Björnsdóttur móðurmóður sína.
Próventugerningur Jóns Sigfússonar og Arnþrúðar Árnadóttur við Jón ábóta og klaustrið á Munkaþverá.
Bréf Brostrup Geddes höfuðsmanns frá 17. júlí 1595 um veiði Stafholtskirkju i Nikuláskeri í Norðurá.
1) Dómur tólf manna, útnefndur af Jóni Þórðarsyni, kóngs umboðsmanni í Hegranessþingi, um vígsmál Hallvarðs Ámundssonar, er sló Skúla Árnason ófyrirsynju í hel. 22. júní 1468. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 24. júní 1468.
1) Solveig Þorleifsdóttir lýsir því, að hún hafi gengið í borgun fyrir séra Sigmund Steindórsson við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup, að ljúka honum tíutugi hundraða samkvæmt sáttabréfi þeirra, en skilur aftur undir sig og sína erfingja svo mikið í Flatatungu, sem hún lýkur eða lætur ljúka, en lýsir Jóni Sigmundsssyni óheimila veðsetning jarðarinnar. 15. apríl 1479. 2) Transskriftarbréf þriggja manna. 24. júní 1479.
Einar Hafliðason prestur, tveir prestar aðrir og þrír leikmenn votta, að Andrés Bergþórsson baggi og Ragnhildur Steingrímsdóttir kona hans hafi handlagt Jóni Eiríkssyni skalla Hólabiskupi "góðrar minningar" alla jörðina Úlfsstaði fyrir 50 hundruð vaðmála.
Jón Jónsson og Margrét Jónsdóttir kona hans selja Páli Þórólfssyni þann part í jörðunni Björgum í Kinn, sem Margrétu hafði til erfða fallið eftir Björn bróður sinn, fyrir þá peninga, er þau urðu ásátt um.
Erlingur Snorrason fær Pétri Nikulássyni Hólabiskupi jörðina Rófuhól [Róðuhól] fyrir 8 hundruð og þar með tvö kúgildi í sakeyri fyrir það, að hann tók tré, sem staðurinn á Hólum átti.
Dómur klerka útnefndur af Jóni Þorvaldssyni presti og Guðmundi Jónssyni officialibus Hólabiskupsdæmis, að Einar Benediktsson ábóti á Munkaþverá og klaustrið skuli hafa og halda jörðina Illugastaði í Fnjóskadal þar til réttur Hólabiskup gerir þar lagaskipan upp á.
1) Tveggja tylfta dómur, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi á prestastefnu, um kæru biskups til Halldórs Brandssonar, að hann hefði eigi haldið Viðvíkurdóm um kirkjugóssin á Barði í Fljótum frá 10. febrúar 1481 (DI VI, nr. 317; Barðsdómur hinn síðari). 9. júní 1488. 2) Transskrift af Barðsdómi. 2. ágúst 1488.
Valgarður Loftsson bóndi selur Brynjólfi Bjarnarsyni bónda jörðina Mánaskál í Húnavatnssýslu en Brynjólfur selur Valgarði jörðina Syðstu-Vallá á Kjalarnesi.
Sjöttardómur, kvaddur af Oddi Gottskálkssyni lögmanni, dæmir Margréti og Ingibjörgu Halldórsdætur, Brandssonar, og þeirra erfingjum, allan arf eftir föður sinn og móður, en séra Einari Magnússyni að sanna ættleiðing sína og eignast þá jarðir til jafns við eina dóttur Halldórs Brandssonar, föðurföður síns.
Þorkell Blængsson handfestir Einari ábóta á Munkaþverá vitnisburð um landamerki Stóra-Hamars í Eyjafirði, sem bréfið inniheldur.
Tylftardómur presta útnefndur af séra Sigurði Þorlákssyni, officialis fyrir vestan Öxnadalsheiði, um ákæru Hrafns Halldórssonar, í umboði nefnds séra Sigurðar til Böðvars Finnssonar, að hann hefði selt selland kirkjunnar á Barði í Fljótum, er heitir Blákápusel.
Tveir menn votta, að Þorsteinn Þorgrímsson hafi samþykkt sölu Þorgríms föður síns á jörðunni Neðstabæ í Norðuárdal til Helga Þormóðssonar, og að hann kvitti Helga um greinda jörð.
Kaupbréf fyrir Lundi í Fljótum.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup skipar heilagri Hólakirkju og staðnum til ævinlegrar og óbrigðilegrar eignar jarðirnar Valþjófsstaði og Arnarstaði í Núpasveit upp í þá peninga, er Jón Pálsson prestur varð brotlegur biskupinum og Hólastað í málaferlum sínum, en jarðir þessar hafði Jón Bjarnason prestur afhent Jóni Pálssyni presti Hólakirkju til handa, þegar hann varð ráðsmaður, en Jón Þorfinnsson ábóti galt þær séra Jóni Pálssyni í ráðsmannskaup, og ógildir biskup það, af því að kirkjueignir eigi ekki að látast burt gegn öðru en fastaeign.
Jón Henriksson (Tófason) Hólabiskup kvittar Steindór Andrésson um hálfa jörðina Brúarland í Óslandshlíð.
Jón Pálsson prestur selur Þorvaldi Jónssyni jörðina Reyki í Ólafsfirði með tilgreindum landamerkjum fyrir jörðina Skóga í Fnjóskadal, einnig með tilgreindum landamerkjum.
Tylftardómur útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um ákærur biskups til Höskuldar Runólfssonar.
Ásgrímur Jónsson selur með samþykki Guðrúnar Magnúsdóttur konu sinnar Þorkeli Guðbjartssyni presti jarðirnar Þverá í Laxárdal og Höskuldsstaði og Hól i Reykjadal fyrir jörðina á Breiðamýri í Reykjadal; en ef riftingar koma á Þverá fær Þorkell prestur aftur 20 hundruð í Mýri eða 30 kúgilda.
Vitnisburður séra Salómons Guðmundssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Sáttargerð þeirra séra Jóns Pálssonar og séra Þorkels Guðbjartssonar í viðurvist og að tilhlutun Goðsvins Comhaer Skálholtsbiskups og margra annarra klerkmanna og leikmanna; sættast þeir alsáttum á allan reikningsskap og óvinskap, er þeim hafði farið á milli, og heitir séra Þorkell séra Jóni fullri vináttu og fylgi og kyssast þeir að lyktum "fyrir munninn trúlega".
Vitnisburðarbréf um landamerki milli Geldingaholts og Glaumbæjar í Skagafirði.
Skiptabréf um jarðir Bjarna Ólasonar, er þeir gerðu Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup vegna heilagrar Hólakirkju og Ambrósíus Illeqvath hirðstjóri vegna Noregs konungs.
1) Sýslubréf Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups fyrir Skagafjarðarsýslu um tíu ár, útgefið af Kristjáni Danakonungi hinum fyrsta. 29. nóvember 1459. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 12. október 1460.
Kristín Jörundardóttir lýkur og afhendir Jóni Jónssyni í fjórðungsgjöf sína alla jörðina Skeggjastaði "á Strönd" með þeim atriðisorðum, er bréfið greinir.
Sendibréf Ögmundar Pálssonar Skálholtsbiskups til Jóns Arasonar Hólabiskups um, að hann sjái til, að Björn Þorleifsson bóndi fái lög og rétt af Einari Ólafssyni um fjárgreiðslur nokkrar af erfð eftir Einar Björnsson heitinn fyrir það, er Einar Björnsson hafði goldið í misferli sín af erfðafé Björns eftir Þorleif Björnsson föður sinn, en Einar Ólafsson var dæmdur erfingi Einars Björnssonar.
Sumaliði Eiríksson bóndi handsalar Einari Ísleifssyni ábóta á Munkaþverá til fullrar eignar jörðina Teig í Hrafnagilsþingum.
Vottorð séra Þorkels Guðbjartssonar og séra Sigurðar Jónssonar um bókareið Ólafs Eyjólfssonar, að síðan pláguveturinn hefði enginn búið á Sjávarborg þangað til Benedikt (Brynjólfsson) dó, nema þeir sem leyfi hefði fengið af honum.
Enevold Christiansson Kruse lénsmaður klagar séra Jón Kráksson á Görðum á Álftanesi fyrir að hafa ekki haldið bréf Jóhanns Bocholts sem bannaði honum að nytja reka á svæði sem þeir séra Ormur Egilsson á Kálfatjörn greindi á um fyrr en hann hefði unnið rekann með lögum og skila því sem hann hefði tekið af umræddu svæði. Sömuleiðs krafðist hann þess að séra Jón framvísaði dómi sem hann hafði fyrir tveimur jörðum sem hann hafði náð undan kónginum árið 1584. Dómsmenn dæma málið fyrir Odd Einarsson biskup og prestastefnu. Séra Jón Kráksson lofar að afhenda Enevold Kruse afrit af dóminum fyrir alþingi eða í seinasta lagi á alþingi.
Tylftardómur klerka útnefndur af séra Sveinbirni Þórðarsyni, officialis fyrir norðan Öxnadalsheiði, um ákæru séra Ketils Grímólfssonar til Magnúsar Þorkelssonar, "er umboðsmann var barna sinna, er erft höfðu séra Þorkel Guðbjartsson að þriðjungi", um fyrnd á stað og kirkju í Laufási upp á hálfan fjórða tug vetra, er séra Þorkell, faðir Magnúisar, hafði haldið staðinn.
Ólafur Ingimundarson prestur vottar, að hann hafi í sumar lesið í lögréttu fyrir Brandi Jónssyni lögmanni og öllum ríkismönnum og almúganum dóm frá 29. apríl 1474 (DI V, nr. 654) um Hólateig í Fljótum, og lét Brandur lögmaður samþykkja prófaleiðslur biskups löglegar.
Vitnisburður Eiríks Einarssonar prests um gjöf Salbjargar Gunnarsdóttur á Brúarlandi í Deildardal til Hóladómkirkju í próventu sína.
Narfi Jónsson príor á Skriðu selur Einari Benediktssyni ábóta á Munkaþverá og klaustrinu þar jarðirnar Lækjardal og Flautafell í Þingeyjarþingi og nokkurt lausafé fyrir þau 15 hundruð, er Narfi príor hafði upp borið af peningum Guðrúnar Bárðardóttur vegna Einars ábóta.
Guðmundur Ólafsson ráðsmaður í Björgvin selur Gottskálki Kænekssyni Hólabiskupi jörð sína Skriðuland (nú kallað Efstaland) í Öxnadal norðan á Íslandi og kvittar fyrir andvirðið.
Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup selur Jóni Illugasyni Hólakirkjujörðina Neðra-Fell í Kinn í Staðarkirkjusókn fyrir 20 hndr. en undanskilur deilureit fyrir austan ána sem Fell og Guðmundarstaðir í Ljósavatnshreppi höfðu haft uppi ágreining um. Sá reitur skyldi fylgja Guðmundarstöðum. Á móti lét Jón Illugason af hendi Hóla í Fljótum í Holtskirkjusókn með öllum þeim skilmála sem áður hafði farið fram á milli Ólafs Hjaltasonar Hólabiskups og séra Illuga Guðmundssonar þá þeir skiptust á Hólum og Tjörn í Aðaldal.
Vitnisburður Sveins Magnússonar prests og ráðsmanns á Möðruvöllum, að hann hafi tekið af Árna Einarssyni 7 hundruð vaðmála og 2 hundruð í slátrum fyrir það 10 hundraða ílag, er staðurinn átti í jörðina Ásláksstaði í Kræklingahlíð.
Jón Arason prestur fær klaustrinu á Munkaþverá jörðina Miðhús í Höfðahverfi, sex málnytukúgildi og sex hundruð að næstum fardögum, en Einar Benediktsson ábóti lofar með samþykki Gottskálks Nikulássonar Hólabiskups og konventubræðra Elínu Magnúsdóttur, móður Jóns prests, ævinlegri próventu og frjálsmannlegu framfæri á klaustrinu, með fleirum greinum, sem bréfið hermir.
Dómur sex presta, kvaddra af Ólafi Hjaltasyni Hólabiskupi, um framfæri uppgefinna presta, þeirra er eiga sjálfir fé fyrir sig að leggja.
Bréf Henriks Krags höfuðsmanns frá 14. júlí 1593 um veiði Stafholtskirkju í Nikuláskeri í Laxfossi í Norðurá.
Vitnisburðarbréf, að Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup hafi látið marga skilvísa presta sverja bókareið að öllum skildaga hans og Runólfs Höskuldssonar frá 23. janúar 1471. (DI V, nr. 543).
Nikulás Vilhjálmsson prestur selur í umboði Gróu Guðmundsdóttur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi hálfa jörðina Skörð í Reykjahverfi fyrir jörðina Finnastaði í Höfðahverfi.
Tylftardómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um reka Reynistaðarklausturs milli Gaukstaðaár og Fossár og í Litlabási fyrir utan Gaukstaðaá.
Dómur fimm manna útnefndur af Ara Þorbjarnarsyni officiali heilagrar Hólakirkju um hald Stefáns Hallssonar á prests- og kirkjutíundum af Uppsölum fyrir Munkaþverárklaustri.
Page 14 of 15