Archive Arnamagnæana dev

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Reykjavík: 7451 documents
(1780 documents in progress, 3794 done, 40 left)
Pappírsuppskriftin er í mörgum liðum og tengist nokkrum apógröfum en yfirlit hennar er aftast í ap. 4706. 1) Teitur Fúsason lýsir þvi, að hann hafi gefið fult samþykki til þess, að Jón Pálsson gerði löglegt hjónaband við Ásdísi Fúsadóttur systur sína, og jafnframt, að Jón hafi fastnað Ásdísi. DI XII, nr. 71. 2) Vitnisburðarbréf, að Jón Pálsson hafi fastnað Ásdísi Fúsadóttur. DI XII, nr. 72. 3) Vitnisburðarbréf, að Jón Pálsson hafi fastnað Asdísi Vigfúsdóttur, en Jón og Ásdís eru nú (1562) bæði dáin. DI XII, nr. 73. 4) Vitnisburður um lýsing Jóns Pálssonar á því, að Vigfús (síðar sýslumaðr á Kalastöðum) væri skírgetinn sonur sinn. (ap 4655) DI XIII, nr. 264. 5) Vitnisburður um lýsing Jóns Pálssonar, að Vigfús, sonur sinn, væri réttur festarkonu son. (ap 4656) DI XIII, nr. 265. 6) Arfaskipti með börnum Jóns Pálssonar (ap 4706) DI XIII, nr. 546. 7) Páll hirðstjóri Stígsson staðfestir arfaskiptabréf barna Jóns Pálssonar (ap. 4706). DI XIII, nr. 558.
Snjólfur Hrafnsson selr í umboði Margrétar Eyjólfsdóttur Jóni Finnbogasyni jörðina Hól í Kinn fyrir 25 hundruð í lausafé, að tilgreindum eingjateig millum Garðshorns og Hóls.
Skrá um peninga þá er voru á Eyri í Seyðisfirði er jómfrú Solveig Björnsdóttir tók við, ásamt landamerkjum Eyrar og nokkurra annarra jarða.
Prófentdsamninse Þorvalds (bálands) Jónssonar við Ásgrím ábóta á Þingeyrum fyrir Gottskálk Þorvaldsson, son sinn.
Fjölþætt efni: Um skiptingu Spákonuarfs eftir registri Egils biskups. Saga Þingeyraklausturs
Vitnisburðr um fyrirfaranda vitnisburð Ólafs Þorvaldssonar.
Alþingisdómur um Arndísarstaði í Bárðardal. Málinu frestað til næsta alþingis og málsaðilar eða umboðsmenn þeirra skikkaðir til að mæta þangað með sín bréf og skilríki. Á Þingvelli, 30. júní 1571.
Þrír prestar og þrír leikmenn votta, að junkæri Þorleifur Björnsson hafi afhent Hrunastað, svo að Andrési Grænlendingabiskupi og umboðsmanni Skálholtskirkju vel ánægði, og kvittaði biskup Þorleif með öllu.
Kaupbréf. Erlendur bóndi selur með samþykki Guðríðar Þorvarðsdóttur konu sinnar Árna Einarssyni jörðina Bambsfell í Ytra-Djúpadals kirkjusókn fyrir þrjátigi hundraða.
Björn Brynjólfsson gerir jafnaðarskipti milli barna sinna Ólafs, Sigríðar og Málfríðar. Fylgiseðill með bréfinu er nr. ad V3 er prentaður í IO, nr. 88.
Dómur tólf manna útnefndur af Hrafni Guðmundssyni lögmanni og genginn við Vallalaug 20. apríl um kæru Einars Hallssonar í umboði barna sinna til Jóns Ásgeirssonar í umboði Ingibjargar Sæmundardóttur konu sinnar út af erfðamáli þeirra í milli um 40 hundruð í Silfrastöðum í Blönduhlíð.
Afrit af átta bréfum, m.a. konungsbréfum, erkibiskupabréfum og biskupsbréfum, um hjónaband Þorleifs Björnssonar og Ingveldar Helgadóttur.
Fjórir menn votta, að þeir hafi verið í Brautarholti 16. júlí 1434 og heyrt á viðræður þeirra hústrú Guðríðar (Ingimundardóttur) og Guðrúnar Sæmundardóttur um Brautarholt og Hof á Kjalarnesi, er Vigfús Ívarsson bóndi Guðríðar hafði haldið leigulausum en Guðrún hafði erft í plágunni miklu.
Fimm prestar transskríbera transskript frá 18. Febrúar 1443 af tveim bréfum frá 14. öld og einu frá 15. öld.
Samningur um verslun, vigt og mæli mill Hamborgarríkis og enskra kaupmanna af einni hálfu og Alþingis fyrir hönd Íslendinga. Fyrir neðan bréfið er klausa með sömu hendi um hvað kaupmennirnir vilji ef þeim tekst ekki að fá sína frakt. Bréfið var prentað í Alþingistíðindum B Nr. 522, bl. 811-814, Reykjavík 1909
Benedikt hirðstjóri Histen kvittar Vigfús Erlendsson um það tilræði, er hann veitti Þórði Brynjólfssyni í kirkjudyrunum eða kirkjugarðinum á Krossi í Landeyjum (DI VII:609).
Óvidmeruð transskrift um eignir Guðmundar Arasonar. 1. DI V, nr. 323: Kristján hinn fyrsti Danakonungr selr Birni Þorleifssyni umboðsmanni sínum "upp á Ísland", eignir þær, er Guðmundr Arason (á Reykhólum) hafði "forbrotið", og kallar aptr bréf Kristophers konungs af Baiern um þessar eignir. 2. DI V, nr. 337: Henrik Kepken, umboðsmaðr Kristjáns konungs hins fyrsta, kvittar Björn Þorleifsson hirðstjóra sunnan og austan á Íslandi fyrir hálfu öðru hundraði nóbila og þrettán betr, er Björn geldr sem fyrsta sal upp í eignir Guðmundar Arasonar. 3. DI V, nr. 393 og 377. 4. DI V, nr. 416: Kristján Danakonungr hinn fyrsti lýsir því, að Björn Þorleifsson, „vor elskulegr þénari“, hafi goldið sér fjögur hundruð nóbila fyrir eignir Guðmundar Arasonar, er Björn hafði keypt, og kvittar konungr Björn með öllu fyrir endrgjaldi þessara eigna. 5. DI VI, nr. 360: Dómr og úrskurðr hins norska ríkisráðs, að Þorleifr Björnsson skuli halda eignum þeim undir lög og dóm, er Bjarni Þórarinsson og hans fylgiarar höfðu gripið, en fyrrum hafði att Guðmundr Arason.
Kaupbréf fyrir Veigastöðum.
Festingabréf Sumarliða Eiríkssonar og Guðrúnar Árnadóttur
Bréf frá átján kaupmönnum í Hafnarfirði til þeirra Odds biskups Einarssonar og lögmannanna Þórðar Guðmundssonar og Jóns Jónssonar, upp á kvörtunarbréf þeirra til kaupmanna yfir versluninni; lofa kaupmenn þeim svari þegar er þeir geti haldið samkomu sín á milli.
Transskript á skiptabréf milli Guðrúnar Björnsdóttur og Solveigar Bjarnadóttur, dóttur hennar, á peningum þeim sem Solveigu höfðu til erfða fallið eftir Bjarna Andrésson föður sinn, sbr. AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,21. Fyrir framan bréfið votta Jón Jónsson og Ólafur Sigurðsson að hafa lesið yfir frumbréfið með innsiglum.
Vitnisburður Jóns Þorsteinssonar og þriggja annarra manna um að aldrei hafi verið goldinn tollur til Vatnsfjarðar nema af Meiri-Hlíð. Afrit af bréfi sem dagsett er 2. september 1470.
Lýsing Jóns Gamlasonar um greiðslur Björns Þorleifssonar til Guðna Jónssönar í „hugmót" og sakeyri fyrir það, að Björn var með Eiríki Haldórssyni í flokk og fylgi, þá er Páll heitinn Jónsson var ófyrirsynju í hel sleginn.
Samningur milli Þorleifs Björnssonar og Stepháns Jónssonar, þar sem Stephán handlagði Þorleifi alla peninga eptir Jón Jónsson bróður sinn prest í Hruna, er þó að vísu voru brotnir við heilaga kirkju; skilur Stephán sér æfinlegt framfæri hjá Þorleifi, og að Þorleifr útvegi hjá réttlegum Skálholtsbiskupi, þegar hann komi, prestakall handa Þorleifi syni sínum.
Örnólfur bóndi Jónsson kvittar Guttorm son sinn fyrir andvirði hálfs Staðarfells, er hann hafði selt honum 1383 og fyrir hálfa selveiði fyrir Hellu.
Tvö transskipt á pappír.
Um landamerki nokkurra jarða Vatnsfjarðarkirkju.