Den Arnamagnæanske Samling
Nasjonalarkivet
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
1) Dómur tólf manna, útnefndur af Jóni Þórðarsyni, kóngs umboðsmanni í Hegranessþingi, um vígsmál Hallvarðs Ámundssonar, er sló Skúla Árnason ófyrirsynju í hel. 22. júní 1468. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 24. júní 1468.
1) Solveig Þorleifsdóttir lýsir því, að hún hafi gengið í borgun fyrir séra Sigmund Steindórsson við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup, að ljúka honum tíutugi hundraða samkvæmt sáttabréfi þeirra, en skilur aftur undir sig og sína erfingja svo mikið í Flatatungu, sem hún lýkur eða lætur ljúka, en lýsir Jóni Sigmundsssyni óheimila veðsetning jarðarinnar. 15. apríl 1479. 2) Transskriftarbréf þriggja manna. 24. júní 1479.
Vitnisburður um landamerki Þórðarstaða í Fnjóskadal.
Sveinn Sumarliðason lofar Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi fylgi sínu og styrk, meðan þeir lifi báðir, gegn hverjum manni, nema ef biskup ágreindi við Finnboga Jónsson lögmann, mág Sveins, eða Pál Brandsson, þá skyldi Sveinn hvorugum veita.
Sveinn Jónsson prestur selur í umboði klaustursins í Kirkjubæ Bárði Auðunarsyni ábóta í Þykkvabæ hálfa jörðina Eystri-Ása í Skaftártungu fyrir allan þann skóg, er síðastnefnt klaustur átti í Brandalandi, og eru ummerki hans tilgreind.
Valgarður Loftsson bóndi selur Brynjólfi Bjarnarsyni bónda jörðina Mánaskál í Húnavatnssýslu en Brynjólfur selur Valgarði jörðina Syðstu-Vallá á Kjalarnesi.
Sjöttardómur, kvaddur af Oddi Gottskálkssyni lögmanni, dæmir Margréti og Ingibjörgu Halldórsdætur, Brandssonar, og þeirra erfingjum, allan arf eftir föður sinn og móður, en séra Einari Magnússyni að sanna ættleiðing sína og eignast þá jarðir til jafns við eina dóttur Halldórs Brandssonar, föðurföður síns.
Þorkell Blængsson handfestir Einari ábóta á Munkaþverá vitnisburð um landamerki Stóra-Hamars í Eyjafirði, sem bréfið inniheldur.
Dómur klerka útnefndur af Jóni Þorvaldssyni presti og Guðmundi Jónssyni officialibus Hólabiskupsdæmis, að Einar Benediktsson ábóti á Munkaþverá og klaustrið skuli hafa og halda jörðina Illugastaði í Fnjóskadal þar til réttur Hólabiskup gerir þar lagaskipan upp á.
Erlingur Snorrason fær Pétri Nikulássyni Hólabiskupi jörðina Rófuhól [Róðuhól] fyrir 8 hundruð og þar með tvö kúgildi í sakeyri fyrir það, að hann tók tré, sem staðurinn á Hólum átti.
Jón Jónsson og Margrét Jónsdóttir kona hans selja Páli Þórólfssyni þann part í jörðunni Björgum í Kinn, sem Margrétu hafði til erfða fallið eftir Björn bróður sinn, fyrir þá peninga, er þau urðu ásátt um.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup skipar heilagri Hólakirkju og staðnum til ævinlegrar og óbrigðilegrar eignar jarðirnar Valþjófsstaði og Arnarstaði í Núpasveit upp í þá peninga, er Jón Pálsson prestur varð brotlegur biskupinum og Hólastað í málaferlum sínum, en jarðir þessar hafði Jón Bjarnason prestur afhent Jóni Pálssyni presti Hólakirkju til handa, þegar hann varð ráðsmaður, en Jón Þorfinnsson ábóti galt þær séra Jóni Pálssyni í ráðsmannskaup, og ógildir biskup það, af því að kirkjueignir eigi ekki að látast burt gegn öðru en fastaeign.
Elín Magnúsdóttir, Einar Sigurðsson og Jón Sigurðsson fá Einari Benediktssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá til fullrar eignar þann part í jörðinni Illugastöðum, er þau hefði mátt hljóta að erfð eftir Stíg Einarssson, en ábóti kvittar Stíg um allt það, er hann hefði mátt vera klaustrinu skyldugur.
Grímur Pálsson bóndi lýkur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi 25 hundruð upp í jörðina Hvassafell í Eyjafirði í reikningsskap þann, er hann og Páll Brandsson faðir hans urðu skyldugir biskupinum.
Kaupbréf fyrir Lundi í Fljótum.
Tylftardómur presta útnefndur af séra Sigurði Þorlákssyni, officialis fyrir vestan Öxnadalsheiði, um ákæru Hrafns Halldórssonar, í umboði nefnds séra Sigurðar til Böðvars Finnssonar, að hann hefði selt selland kirkjunnar á Barði í Fljótum, er heitir Blákápusel.
Ketill Teitsson kvittar Einar Ísleifsson ábóta á Munkaþverá fyrir níu hundruðum, sem er andvirði fyrir tiltölu þá, er Ketill átti til Skóga í Axarfirði.
Auðunn Þorbergsson Hólabiskup staðfestir stofnunarskrá Jörundar Þorsteinssonar Hólabiskups fyrir klaustrinu á Stað í Reyninesi frá 1295 (DI II, nr. 159).
Vitnisburður séra Salómons Guðmundssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Brandur Ormsson selur Ólafi Kolbeinssyni tólffeðmings torfskurð í jörðina Bakka í Öxnadal fyrir þá peninga er hann lét sér vel nægja.
Próventubréf Árna Bergssonar við klaustrið á Munkaþverá.
Vitnisburður séra Þorsteins Gunnasonar, 81 ára að aldri, um að hafa heyrt fyrir meira en 60 árum og jafnan síðan að þeir Brandur Helgason, sem átti Tungu í Fljótum, og Þorlákur Helgason, faðir Eiríks Þorlákssonar, hafi verið haldnir bræður samfeðra. Hann hafði heyrt frá kunnugum mönnum að þegar faðir þeirra hafi dáið þá hafi Þorlákur verið á framfæri Brands.
Testamentisbréf ónafngreinds manns, er gefur ýmsar gjafir einkum klaustrinu á Reynistað og systrunum þar, en bóla gengur um land.
Þórður Brynjólfsson selur, vegna Solveigar Jónsdóttur konu sinnar, Magnúsi Jónssyni til fullrar eignar jörðina Garð í Þistilfirði með reka fyrir tíu hundruð í lausafé.
Skrá um eignir dómkirkjunnar á Hólum í Hjaltadal í lausu fé kviku og dauðu er Gunnsteinn ábóti á Þingeyrum lét gera.
Guðmundur Björgólfsson og Ragnheiður Þorvarðsdóttir kona hans selja klaustrinu á Reynistað jörðina á Skíðastöðum í Laxárdal fyrir jörðina Skarð á Reykjaströnd, og tilskildu það, að Barbara abbadís á Stað ætti að láta kenna syni þeirra til prests, og fór kaupið fram tíu dögum áður en það væri bréfað (sbr. DI IV, nr. 684).
Vitnisburður um eignarheimild að Garði í Ólafsfirði og Garðshorni í Svarfaðardal og um tilkall Jóns Finnbogasonar til nokkurra jarða í Fljótum.
Arngrímur Þórðarson selur séra Þorsteini Jónssyni jörðina Presthvamm í Grenjaðarstaðarþingum með kristfjárómaga, fyrir 20 hundruð í fríðum peningum.
Runólfur Guðmundsson selur Símoni Pálssyni jörðina Skinnþúfu fyrir 20 hundruð í lausafé.
Jón Árnason gefur Halldóri Loftssyni presti hálfa jörðina Krisnes í Eyjafirði.
Kaupbréf þeirra Hauks Gunnarssonar og Órækju Sturlusonar, að Órækja kaupir af Hauki land að Ingjaldshvoli undir Jökli með öllum gögnum og gæðum, en geldur Hauki hálfa jörðina Kálfárvöllu á Snæfellsnesi með öllum gögnum og gæðum.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru séra Jóns Þorvaldssonar til Sveins Oddssonar um ásetu á jörðinni Efra-Ási ótekinni.
Vitnisburður að Torfi Jónsson heitinn í Klofa, sem þá (1504) hafði kóngs umboð á Rangárvöllum, tók þann eið af Þorsteini Magnússyni, að Einar Björnsson heitinn hefði fengið Halldóru Guðmundsdóttur jörðina Þorkelshvol til ævinlegrar eignar.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru biskups til séra Einars Benediktssonar, að hann hefði ekki haldið sína lofan og hlýðni eftir því sem hans bréf þar um gert útvísar, þá er biskupinn unnti honum Grenjaðarstað (sjá DI V, nr. 549).
Ormur Ásláksson Hólabiskup kaupir af Stefáni ábóta á Munkaþverá hálfa jörðina Miklagarð í Eyjafirði með öllum hlunnindum og votta það fjórir prestar.
1) Dómur sex manna útnefndur á Öxarárþingi af Teiti Þorleifssyni lögmanni um gjörning þann, er þau Þorbjörg Þorláksdóttir og Þorbjörn Gunnarsson gerðu um jörðina Harastaði í Vesturhópi. 3. júlí 1523. 2) Teitur Þorleifsson lögmaður tekur bókareið af tveimur mönnum um Harastaðagjörning. 3. júlí 1523. 3) Vottfest uppskrift þriggja manna. 13. mars 1535.
Jón Arason Hólabiskup skipar Ólaf Hjaltason prest prófast og almennilegan dómara á milli Vantsdalsár, Vatnsskarðs og Hrauns á Skaga.
Halldór Steinþórsson selur Jóni Gamlasyni presti, ráðsmanni og umboðsmanni heilagrar Hólakirkju, og staðnum á Hólum jörðina Nýlendi á Höfðaströnd fyrir lausafé.
Pálmi Sæmundsson kvittar fyrir andvirði Lundar í Fljótum.
Próf og úrskurður Egils Eyjólfssonar Hólabiskups um landamerki milli Þverár í Skagafirði, Eyvindarholts, Brekkna og Selshaga og gerir hann Rafni Jónssyni fjárútlát til Hólakirkju fyrir ólöglegan ágang á staðarins jarðir.
Sex menn votta, að Sigurður príor á Möðruvöllum hafi selt Einari ábóta á Munkaþverá Gil og Vagli í Hrafnagilsþingum fyrir jörðina Gásir í Glæsibæjarþingum og þar til tíu kúgildi.
Vitnisburður að séra Loðvík Hallsson sór fyrir Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, að Skúli Loftsson hélt og reiknaði sína eign jörðina Syðra-Vallholt í Skagafirði.
Sumarliði Þorsteinsson kvittar Benedikt Brynjólfsson fyrir verði jarðarinnar Sauðár.
Agnes priorissa á Stað í Reyninesi og allar konventusystur á Stað lofa Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi hlýðni og fullum trúskap sem þeirra formanni, og lýsa því, að Þorleifur Árnason hafi hvorki fengið umboð á þeirra né klaustursins peningum, 19. apríl 1461.
1) Tveggja tylfta dómur, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi á prestastefnu, um kæru biskups til Halldórs Brandssonar, að hann hefði eigi haldið Víkurdóm um kirkjugóssin á Barði í Fljótum frá 10. febrúar 1481. (DI VI, nr. 317; Barðsdómur hinn síðari). 9. júní 1488 2) Transskrift fjögurra manna. 16. júní 1488
Steindór Andrésson selur Steini Eyjólfssyni hálfa jörðina Brúarland í Deildardal fyrir 50 hundruð í lausafé.
Einar Árnason sýslumaður í Þingeyjarþingi vottar, að Þorsteinn Oddsson hafi fyrir tveim árum svarið fyrir sér fullan bókareið, að hann hafi verið í Reykjahlíð fyrir tíu vetrum (1444), að Þorsteinn Einarsson festi Björgu Guðmundsdóttur sér til eiginkonu eftir guðs lögum.
Summa uppá gamla og nýja máldaga og eignir kirkjunnar í Stafholti í Stafholtstungum staðfest af biskupunum síðan sá fyrsti var settur.
Tylftardómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi á prestastefnu um lambatoll Reynistaðarklausturs fyrir vestan Vötn í Skagafirði.
Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Skúla Loftssonar á jörðunni Syðra-Vallholti í Skagafirði, er biskup taldi eign Hólakirkju í Hjaltadal.
Page 2 of 15






































