Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
Jón Arason Hólabiskup ritar bréf til Alþingis um lögmanns kosning fyrir norðan og vestan á Íslandi.
Sveinn Sumarliðason fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til fullrar eignar jörðina Krossanes í Kræklingahlíð og þar til átta málnytu kúgildi fyrir þær sakir og hugmóð, er hann, faðir hans og afi hefðu gert biskupi og heilagri Hólakirkju, og þar með voru þeir Sveinn og biskup sáttir.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um kirkjureikning á Einarsstöðum og Svalbarði, er Sigurður Björnsson átti að svara.
1) Tveir prestar og tveir leikmenn transkríbera bréf um Helluland, Ásgrímsstaði og Skíðastaði frá 13. mars 1388. 5. febrúar 1451 2) Björn Brynjólfsson selur Gissuri Þorbjarnarsyni jarðirnar Helluland og Ásgrímsstaði í Hegranesi fyrir jörðina Skíðastaði í Laxárdal. 13. mars 1388 3) Gunnar Gíslason og Magnús Jónsson transkríbera transskript frá 5. febrúar 1451 af bréfi um Helluland, Ásgrímsstaði og Skíðastaði frá 13. mars 1388. 2. mars 1558
Elín Magnúsdóttir, Einar Sigurðsson og Jón Sigurðsson fá Einari Benediktssyni ábóta og klaustrinu á Munkaþverá til fullrar eignar þann part í jörðinni Illugastöðum, er þau hefði mátt hljóta að erfð eftir Stíg Einarssson, en ábóti kvittar Stíg um allt það, er hann hefði mátt vera klaustrinu skyldugur.
Grímur Pálsson bóndi lýkur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi 25 hundruð upp í jörðina Hvassafell í Eyjafirði í reikningsskap þann, er hann og Páll Brandsson faðir hans urðu skyldugir biskupinum.
Jón Sæmundsson selur Þorvarði Helgasyni príor á Skriðuklaustri 20 hundruð í jörðunni Borgarhöfn í Fellshverfi fyrir jarðirnar Vík og Sævarenda í Fáskrúðfirði og "þá sæmd og drengskap í peninga framlögum, er príorinn vildi gert hafa".
Vottorð tveggja manna um peninga þá, er Guðrún Sæmundardóttir erfði eftir Þórð Þórðarson prest.
Konventubræður á Munkaþverá samþykkja jarðakaup Einars Ísleifssonar ábóta við Bjarna Ólason, að klaustrið keypti Kasthvamm í Laxárdal fyrir Jódísarstaði og Höskuldsstaði.
Vitnisburður Björns Þórarinssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Þau systkin Ormur Eiríksson og Ragnhildur Eiríksdóttir selja Jóni Bjarnasyni þann part, sem þau áttu, í jörðinni Efstafelli í Ljósavatnsþingum, alls 26 hundruð, fyrir lausafé.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup samþykkir Vallholtsdóm frá 14. janúar 1465 (DI V, nr. 384).
Tylftardómur útnefndur af Jóni Einarssyni, er þá hafði kóngsins sýslu og umboð í Húnavatnsþingi, um atvist Ólafs Filippussonar að vígi Ásgríms Sigmundssonar, er varð í Víðidalstungu (1483).
Árni Ólafsson Skálholtsbiskup selur Sveini Hallvarðssyni jörðina Ríp í Hegranesi fyrir jarðirnar Borg og Írafell í Tungusveit, og geldur biskup Sveini upp í mismun tíu kúgildi.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru biskups til Þorsteins Ormssonar um dómrof.
Sigurður Þorláksson prestur fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju til ævinlegrar eignar jörðina Hól í Siglufirði "fyrir þær sektir, sem hann varð skyldugur biskupinum og kirkjunni uppá þau þrjú ár, sem hann var officialis og biskupinn var burt af landinu".
Dómur 24 klerka, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, um kæru biskups til séra Steins Þorvaldssonar um það, að hann hefði ekki viljað lesa forboðsbréf yfir Jóni Egd, að hann hefði farið orlofslaust burt úr biskupsdæminu og að hann hefði tekið guðs líkama í banni.
1) Hallvarður Hallkelsson og Valgerður Brandsdóttir kona hans selja Guðbjarti Eyjólfssyni presti jörðina Sævarland í Laxárdal með tilteknum hlunnindum. 16. apríl 1379. 2) Magnús Sigurðsson prestur og tveir menn aðrir transkríbera bréf um Sævarland frá 1379, 12, nóvember 1385.
Gilsbrikt Jónsson prestur selur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi jörðina Mánaskál í Laxárdal til panta fyrir 35 hundruðum, er biskup átti hjá honum, en lausn sé á jörðinni innan þriggja ára.
Manntalsþing á Svínavatni á Ásum. Kom til tals og yfirskoðunar það efni sem áhrærði kristfjárjörðu sem er fátækra eign, þ.e. jörðin Hamar liggjandi í Svínavatnskirkjusókn sem Guðmundur Hákonarson gaf til ellefu hreppa. Hreppstjórar Miðfjarðarhrepps kvarta yfir því að hafa ekki fengið neitt í sinn hlut.
Eiríkur Sumarliðason prestur gefur Guðnýju Þorleifsdóttur í tíundargjöf sína hálfa jörðina Kalmanstungu í Borgarfirði.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup samþykkir skipti þeirra Barböru abbadísar á Stað og Ólafs Grímssonar bónda á jörðunum Brúarlandi í Deildardal og Syðra-Vatni í Tungusveit.
Jón Einarsson bóndi fær Ólafi Ásbjarnarsyni jörðina Stærri-Ey á Skagaströnd til fullrar eignar, og kvittar hann um andvirði jarðarinnar, því að Ólafur hafði lagt út jörð sína Njarðvík syðra, "í þann tíð, sem oftskrifaður Jón bóndi var gripinn og fangaður af Ólafi Diðrikssyni, og var svo í ómildra manna höndum" (sbr. DI VIII, nr. 431).
Einar Hallsteinsson selur Þorvarði Helgasyni príor og klaustrinu á Skriðu jörðina Brekku í Fljótsdal fyrir 80 hundraða í lausafé.
Vitnisburður, að Teitur Þorleifsson hefði oftlega lýst því fyrir Sveinsstaðafund (1522), að hann gæfi Guði, sancte Önnu og sancte Jóhannesi baptista Glaumbæ í Skagafirði til ævinlegrar eignar að sér frá föllnum.
Goðsvin Comhaer Skálholtsbiskup skipar Reynistaðarklaustri í kost með systur Margréti Þorbergsdóttur árlega hundrað frá Skálholti, annað hundrað frá Hólum og þriðja hundrað frá Kirkjubæjarklaustri.
Próventusamningur Illuga Björgólfssonar og systur Þórunnar Ormsdóttur fyrir hönd klaustursins í Reyninesi.
Tveggja tylfta dómur, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi á prestastefnu, um kæru til Árna Höskuldssonar, að hann hefði eigi haldið Eyrarlandsdóm frá 7. júní 1479 (DI VI, nr. 202) um kirkjugóssin í Núpufelli og á Hnappstöðum.
Tylftardómur klerka, útnefndur á prestastefnu af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi, um ósvarlega meðferð Jóns Sæmundssonar á kirkjufjám á Reykjum í Tungusveit og þar til 209 ára gamlan reikningsskap kirkjunnar, og dæma þeir allan reikningsskapinn og þessa peninga fallna upp í jörðina á Reykjum, og biskupinn mega að sér taka jörðina þegar í stað.
Dómur tólf klerka útnefndur af Jóni Arasyni Hólabiskupi um kærur biskups til séra Jóns Finnbogasonar, að hann hefði eigi gert né goldið Laufáskirkju fullan reikningsskap af porcio og mortaliis í 36 ár, er séra Jón hafði haldið staðinn.
Dómur séra Jóns Pálssonar officialis heilagrar Hólakirkju um barneignir Margrétar Sigurðardóttur og Brynjólfs Egilssonar.
Kirkjureikningur Þingeyraklausturs. Gripir kirkjunnar taldir upp.
1) Guðmundur Skúlason prestur lýkur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi jörðina Syðra-Holt í Svarfaðardal fyrir þær skuldir og reikningsskap, er hann átti að svara upp á sinn part fyrir Skúla Loftsson föður sinn, sem hann var skyldugur biskupinum í tíundir og útlausnir upp á langa tíma, svo og fyrir þær skuldir, er séra Guðmudnur átti að gjalda biskupinum fyrir sjálfan sig. 1. mars 1481. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 27. amí 1491.
Séra Hannes Pálsson, Loftur Guttormsson og sex menn aðrir votta, að Adam Jakobsson hafi lesið fyrir kirkjudyrum í Saurbæ í Eyjafirði stefnubréf Mikaels Jónssonar prests til Ara Þorbjarnarsonar prests og Þorkels Guðbjartssonar prests að mæta á ársfresti fyrir erkibiskupinn í Niðarósi.
Jón Þórðarson prestur handleggur frú Oddbjörgu abbadís á Reynistað tíu hundruð í vaðmálum og öðrum flytjanda eyri og lofar að skila abbadísinni aftur sylgju þeirri er hústrú Geirdís gaf klaustrinu, en Oddbjörg abbadís gefur séra Jón kvittan um alla ráðsmennsku klaustursins.
Vitnisburður um reka Þingeyraklausturs í Sigluvík fyrir norðan Geirhólm og að klaustrið eigi jörðina Kirkjuból og er tilgreint hvernig rekinn og jörðin sé undir klaustrið komið.
Gottskálk Keneksson Hólabiskup leyfir að Einar ábóti á Munkaþverá selji Sigurði príor og klaustrinu á Möðruvöllum jörðina Gásir í Glæsibæjarþingum og þar til tíu kúgildi fyrir jarðirnar Gil og Vaglir í Hrafnagilsþingum.
1) Björn Brynjólfsson selur Gissuri Þorbjarnarsyni jarðirnar Helluland og Ásgrímsstaði í Hegranesi fyrir jörðina Skíðastaði í Laxárdal, 13. mars 1388. 2) Tveir menn og tveir prestar transrkíbera bréf um Helluland, Ásgrímsstaði og Skíðastaði frá 13. mars 1388, 5. febrúar 1451,
Ríkisráð Norðmanna samþykkir og staðfestir Alþingisdóm frá 30. júní 1533, 8DI IX, nr. 550), er Ögmundur Pálsson Skálholtsbiskup bar fram.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup setur Jón Snorrason af kjól og kalli fyrir manndrápsáburð, áverka við prest, rán og gripdeildir, óhlýðni, ill orð og verk, og hótar að bannfæra hann.
Hjalti Þorsteinsson selur séra Þorsteini Jónssyni hálfa jörðina á Steinýjarstöðum á Skagaströnd, 10 hundruð að dýrleika fyrir lausafé.
Jarðaskiptabréf á Hrólfsvöllum í Fljótum fyrir Bárðartjörn í Höfðahverfi.
Vitnisburður Þorkels Magnússonar, að Steinn Snorrason og Jón Snorrason bróðir hans hefði lagt 40 marka, er Steinn var skyldugur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og Hólakirkju, upp í jörðina Dæli í Svarfðaradal.
Vitnisburður um landamerki Efri-Hóla í Núpasveit.
parchment and paper
-
Vitnisburður séra Kolbeins Auðunarsonar um að hann og séra Illugi Guðmundsson hafi farið að Nesi í Aðaldal þegar séra Jón Ólafsson heitinn lá banaleguna en erindið var að taka reikningsskap af honum (presttíund og kirkjupeninga). Þá var séra Jón með fullri skynsemi og greindi frá skuldum sínum og hvað aðrir skulduðu honum og skrifaði séra Kolbeinn það allt niður. Hann minntist hins vegar aldrei á jörðina Tjörn í Aðaldal. Vorið 1551 riðu þeir séra Kolbeinn, séra Illugi og séra Jón til Hóla á prestastefnu en þá var búið að reikna saman jarðir dómkirkjunnar en þann reikningsskap átti að senda konungi. Þar kom Tjörn í Aðaldal fyrir en séra Kolbeinn heyrði aldrei séra Jón átelja þá jörð og vildu þó margir á þeim tíma klaga uppá Jón Arason biskup.
1) Sálugjafarbréf (testamentisbréf) Margrétar Þorvaldsdóttur, 30. nóvember 1401. 2) Þrír prestar transrkíbera sálugjafarbréf (testamentisbréf) Margrétar Þorvaldsdóttur, 30. maí 1487.
1) Sveinn Guðmundsson gefur heilagri Hólakirkju til ævinlegrar eignar jörðina Kryddhól í Víðimýrarkirkjusókn með þeim atriðisorðum, er bréfið greinir. 18. janúar 1492. 2) Transskriftabréf tveggja manna. 21. október 1493.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lýsir því, að Eiríkur Einarsson prestur kæmi til sín um vorið 1487 og kvæði bræður á Munkaþverá hafa kosið sig til ábóta, en biskup kvað hann ekki hafa "klausturkjöt", og setti hann þó til reynslu um tólf mánuði fyrir klaustrið; en að jólum kom prestur og beiddist þá í senn ábótavígslu og lausnar fyrir barneign, og þykir biskupi það ekki mega fara saman.
Sex manna dómur, genginn að Dyrhólum 8. október 1448, útnefndur af Jóni Jónssyni officialis, þar sem Þykkvabæjarklaustri í Veri er dæmd til ævinlegrar eignar hálf Dyrhólaey í Mýrdal (Dyrhóladómur).
Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Skúla Loftssonar á jörðunni Syðra-Vallholti í Skagafirði, er biskup taldi eign Hólakirkju í Hjaltadal.