Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
Ormur Sturluson selur Ara Jónssyni jörðina Hleinargarð í Eyjafirði fyrir lausafé, en Þorbjörg Þorleifsdóttir kona Orms átti jörðina, og fær hann henni Staðarfell á Fellsströnd, en lofar Ara forkaupsrétti á öllum þeim jörðum, er hann vilji selja.
Dómur klerka útnefndur af séra Pétri Pálssyni um kærur Solveigar Hrafnsdóttur abbadísar á Stað í Reynisnesi til Jóns Guðmundssonar fyrir kúgildahald, kirkjutíundir, rekatöku og vanrækslu á húss uppgerð.
Skipti Hóla í Fljótum fyrir Tjörn og Hraunkot í Aðalreykjadal.
Bréf Gauta Ívarssonar erkibiskups í Niðarósi til manna í Hólabiskupsdæmi, að allir þeir, er vörslur hafi á hálfkirkjum sé skyldir að gera biskupi reikningsskap af þeim, en Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup hafði kært málið fyrir erkibiskupi.
1) Dómur 26 klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um kæru biskups til Árna Höskuldssonar um kirkjuféin í Núpufelli í Eyjafirði og á Hnappstöðum í Fljótum. 7. júní 1479. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna af Núpufellsdómi. 14. júní 1480.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup tekur Ingibjörgu Þorláksdóttur til ævinlegrar próventu á Hólastað, en Kolli Magnússon bóndi hennar gefur í próventuna hálfa jörðina Skálá í Sléttuhlíð og þar til 22 hundruð í gangandi fé.
Vitnisburður séra Salómons Guðmundssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá.
Sjöttardómur, kvaddur af Tuma Þorgrímssyni sýslumanni, dæmir um framfæri barna Daða Steinþórssonar.
Sigurður Jónsson prestur og tilsjónarmaður religionis vegna í Hólabiskupsdæmi færir Víkurlönd á Skaga úr Hofskirkjusókn á Skagaströnd í Hvammskirkjusókn í Laxárdal fyrir bón eigenda og ábúanda.
Vitnisburður tólf manna um það, að Hólastaður eigi osttoll af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum.
Jón Arason Hólabiskup tekur reikningskap af séra Pétri Pálssyni, er þá var ráðsmaður Hóladómkirkju, um allar staðarins eignir heima og heiman, "eftir tölu séra Péturs", og átti dómkirkjan þá hafskip vel fært, er dró nær sjötigi lesta"; um lausafé það eftir Gottskálk Nikulásson Hólabiskup, er bræður hans skyldu erfa, hafði Jón biskup gert sama með ráði erkibiskups, og bréf sýndi hann fyrir því, að hann hefði goldið Ólafi Engilbrektssyni erkibiskupi það "Guðmundar silfur og gull, sem var á Hólum að biskupi Gottskálki frá föllnum, svo framt það væri guðs vilji",
1) Bréf Jóhanns Bocholts höfuðsmanns til Guðbrands Þorlákssonar Hólabiskups um að Jón Jónsson lögmaður hafi kært fyrir sér að biskup héldi fyrir honum jörðinni Barði í Fljótum og að það mál komi nú til dóms í héraði. 2. júlí 1573. 2) Vottfest uppskrift Hrólfs Bjarnasonar og Magnúsar Jónssonar lögréttumanna um að á þingi á Ökrum í Blönduhlíð, laugardaginn fyrstan í vetri 1573, þegar þingað var um Barð í Fljótum hafi þeir heyrt og séð ofanskrifað bréf Jóhanns Bocholts höfuðsmanns sem hann hafði skrifað Guðbrandi Þorlákssyni Hólabiskupi. Því hafi þeir dæmt biskup til að leggja fram skilríki dómkirkjunnar fyrir jörðunni og hafi talið sig mega gera það samkvæmt fyrrnefndu bréfi. 27. nóvember 1573.
Bréf, að Narfi Sigurðsson og Sigurður Narfason hafi fengið Finnboga Jónssyni lögmanni og Teiti Þorleifssyni til fullrar eignar jarðirnar Ásgeirsár í Víðidal og Krossnes, Mela, Norðfjörð og Seljanes á Ströndum fyrir þann mismun og féskakka, sem Árni Þorleifsson, Sigurður Þorleifsson og Teitur Þorleifsson höfðu fengið í arfaskipti við Orm Bjarnason eftir Soffíu Loftsdóttur.
Tylftardómur klerka útnefndur af Jóni Finnbogasyni presti og offcialis heilagrar Hólakirkju um kærur Jóns Arasonar prests dómkirkjunnar vegna til Helga Höskuldssonar ábóta um borgun á sakeyri, um hald á silfri fyrir dómkirkjunni og um samneyti við þá menn er í hel slógu Árna Bessason hetinn (á Sveinsstöðum).
Útlúkningarbréf Jóns Arasonar Hólabiskups til kirkjunnar á Mýrum í Dýrafirði.
Narfi Jónsson príor á Skriðu selur Vigfúsi Erlendssyni bónda jörða alla Ystaskála undir Eyjafjöllum fyrir jörðina Snotrunes í Borgarfirði austur og nokkurt lausafé.
Lögfesta Magnúsar Jónssonar fyrir Ingjaldshóli og Hraunskarði.
Kvittunarbréf til handa Einari Ísleifssyni ábóta á Munkaþverá um jarðirnar Ærlæk í Öxarfirði og Efri-Hóla í Núpasveit.
Vitnisburður Nikulásar Þormóðssonar príors á Möðruvöllum um, að Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup hafi tekið Salbjörgu Gunnarsdóttur, konu Ólafs Grímssonar bónda, til ævinlegrar próventu "heim til Hólakirkju", og að í próventuna var gefin jörðin Brúarland í Deildardal, en "copium" af próventubréfinu stendur í "biskups Ólafs bréfabók", og "stóð það þar, þá ég gaf þennna vitnisburð út."
Tylftardómur klerka, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi, um kæru biskups til Odds Arnórssonar, að Oddur hefði höggvið Skeggja Oddsson biskupssvein ófæran í vísitasíuferð, að hann hefði hlaupið burt úr þjónustu biskups, að hann hefði hlaupið í kirkjudyrnar á Munkaþverá með spent armbrysti (lásboga) og pílu, að hann vildi höggva menn biskups í sömu vísitasíu á Bægisá og sló mat og öl á klæði biskups, að hann hefði gripið hengi sitt og kirkjunnar og ekki skilað aftur, að hann hefði bölvað biskupinum svo óheyrilega, að hann bað fjandann að eiga biskup og alla hans presta og enn fleira.
Viðvíkurdómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um Hólateig í Fljótum.
Þorleifur Björnsson fær velbornum manni Magnúsi Jónssyni jörðina Böðvarshóla í Vesturhópi til fullrar eignar, en Magnús skyldi selja Þorleifi jörðina aftur þá Þorleif lysti að kaupa.
Finnbogi Einarsson prestur og officialis boðar, í umboði Ögmundar Pálssonar Skálholtsbiskups og administrators Hólabiskupsdæmis, klerka á milli Öxnadalsheiðar og Helkunduheiðar til prestastefnu á Víðivöllum í Blönduhlíð mánudaginn 13. júní 1524.
Teitur Þorleifsson gefur í vald Gottskálks Nikulássonar Hólabiskups "allan þann hugmóð og svívirðing, sem hann hafði á sér fengið og sínum garði og mönnum, að frá skildu því sama vígi, sem þar var unnið af hans mönnum í hans eigin garði", en biskup lofar Teiti "svo mikilli sæmd sem honum best lynti og líkaði af sér sjálfum þessa sæmd að taka."
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup vottar, að hann hafi tekið Svein Haraldsson til próventu heim á Hólastað upp í það, sem jörðin Ríp í Skagafirði er dýrari en kirkjureikningur nemur, en af því að biskupi þótti of lítið fé, lofaði Sveinn honum tíu ára þjónustu. En fyrst Sveinn hefur þjónað biskupi og staðnum út þessi tíu ár, þá kvittar biskup hann með öllu um próventuna.
Hákon Jónsson og Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup komast að samkomulagi um að Hákon gefi og geri Hóladómkirkju og formenn hennar ákærulausa fyrir sér og sínum erfingjum um það ákall sem hann þóttist eiga til 20 hndr. í Eyvindarstöðum í Blöndudal. Á móti gaf biskup Hákoni 16 hndr. í málnytukúgildum ásamt því að hann skyldi fá að búa á kirkjujörð sinni [Ytra Vallholti í Staðarhreppi] eða annarri jafngóðri leigufrítt með 6 kúgildum næstu fjögur ár.
Páll Brandsson handabandar í umboði séra Jóns Pálssonar og Finnboga Jónssonar Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi til fullrar eignar alla þá ákæru, er þeir þóttust eiga til jarðarinnar Valþjófsstaða í Núpasveit eða andvirðis hennar; ennfremur lofaði Páll biskupi fjórum tigum hundraða og að gera honum veislu og gefa sæmilegt þing; skyldi þetta allt fram komið að öðru hausti og séra Jón og Finnbogi þá kvittir við biskup.
Solveig Þorleifsdóttir lýsir því, að hún hafi gengið í borgan fyrir séra Sigmund Steindórsson við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup, að lúka honum tíutigi hundraða samkvæmt sættarbréfi þeirra, en skilur aftur undir sig og sína erfingja svo mikið í Flatatungu, sem hún lýkur eða lætur lúka, en lýsir Jóni Sigmundssyn óheimila veðsetning jarðarinnar.
Þorsteinn Jónsson prestur lofar að lúka Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju 60 hundraða fyrir þann reikningsskap, er hann átti honum að standa og Hólakirkju í ráðsmannsstarfi síðan Gottskálk Keniksson Hólabiskup deyði, og leggur séra Þorsteinn þá þegar tvær jarðir í skuldina, en allt sé lukt á þremur árum, og gefur þó biskup tíu hundruð kvitt fyrir bón abbadísarinnar á Reynistað og hústrú Margrétar Vigfúsdóttur á Möðruvöllum.
Gjafabréf og stofnskrá jarðarinnar Ytra-Vallholts í Skagafirði sem kristfjárjarðar.
Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Skúla Loftssonar á jörðunni Syðra-Vallholti í Skagafirði, er biskup taldi eign Hólakirkju í Hjaltadal.
Tveggja tylfta dómur klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi á prestastefnu um óhlýðni séra Guðmundar Skúlasonar við biskup.
Goðsvin Comhaer Skálholtsbiskup samþykkir kaup þeirra Barböru abbadísar á Reynistað við Guðmund Björgólfsson á jörðunni Skíðastöðum fyrir Skarð á Reykjaströnd (sjá bréf frá 24. júlí 1443).
Halldór Arngeirsson bóndi kaupir hálfa jörðina Marbæli af Þuríði Jónsdóttur.
Tylftardómur klerka útnefndur af séra Jóni Arasyni, svaramanni og umboðsmanni Hóladómkirkju, um kærur hans til Teits Þorleifssonar, að Teitur héldi peninga Einars Jónssonar (Sigmundssonar), sem væri dæmd eign Hóladómkirkju, að hann hefði ekki lukt fyrir skóla og uppfæði Egils Hallssonar frænda síns, að hann hefði vísvitandi keypt kirkjunnar fastaeign Galtarnes í Húnavatnsþingi, og að hann hefði látið í hel slá sinn og dómkirkjunnar þjónustumann, að Jóni presti nærverandi og ásjáandi, og að hann hefði sjálfur slegið og ófæra gera látið marga sína og kirkjunnar þjónustumenn.
Tólf klerkar nyrðra samþykkja séra Jón Arason ráðsmann og umboðsmann heilagrar Hólakirkju í öllum efnum milli Ábæjar og Úlfsdalsfjalla.
Reikningur Miklagarðsumboðs eftir Ólaf Hjaltason Hólabiskup fráfallinn.
Jón Pálsson prestur selur Birni Jónssyni jörðina að Sólheimum á Ásum í Svínavatnsþingum, en Björn gaf við jarðirnar Böggustaði og Brimnes í Svarfaðardal.
Dómur útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru séra Jóns Broddasonar, ráðsmanns Hólastaðar, til Þórarins Þorsteinssonar, að hann hefði ekki goldið leigur af sex kúgildum Hólastaðar og tvö ásauðar kúgildi.
Dómur átta presta og fjögurra leikmanna útnefndur af Jóni Vilhjálmssyni Craxton Hólabiskupi, þar sem jörðin Kelduland í Skagafirði er dæmd óbrigðileg eign heilagrar Hólakirkju í Hjaltadal.
Fimm menn votta, að Magnús Jónsson seldi Ólafi Eyjólfssyni í fardagaviku fyrir þremur árum jörðina Kálfskinn í Árskógsþingum fyrir Bakka í Svarfaðardal og nokkurt lausafé.
Grímur Pálsson bóndi geldur og lýkur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi 20 hundruð í jörðunni Hreiðarstöðum í Svarfaðardal fyrir 21 hundrað, er hann varð biskupi skyldugur í útlausnir.
Vitnisburður Gissurar Þorlákssonar um Dyrhólaey í Mýrdal.
Húsaúttekt á Ingjaldshóli þá Þórður Steindórsson viðskildi en herra lögmaðurinn Magnús Jónsson viðtók.
Ólöf Loftsdóttir og Þorleifur Björnsson selja Magnúsi Jónssyni jarðirnar Kross í Landeyjum og Núp í Eystrahrepp, er Björn Þorleifsson heitinn hafði keypt af Teiti Helgasyni; ennfremur meðkenna þau, að þau hafi selt Magnúsi jörðina Böðvarshóla og Galtarnes í Víðidal.
Ásgrímur Þorkelsson selur Gottskálki Kenekssyni Hólabiskupi á staðarins vegna á Hólum jörðina Steinnýjarstaði fyrir jörðina í Haganesi við Mývatn.
1) Sáttargerð þeirra séra Jóns Pálssonar og séra Þorkels Guðbjartssonar í viðurvist og að tilhlutun Goðsvins Comhaer Skálholtsbiskups og margra annarra klerkmanna og leikmanna; sættast þeir alsáttum á allan reikningsskap og óvinskap, er þeim hafði farið á milli, og heitir séra Þorkell séra Jóni fullri vináttu og fylgi, og kyssast þeir að lyktum "fyrir munninn trúlega". 22. apríl 1440. 2) Tveir prestar og fjórir leikmenn transkríbera sáttargerðarbréf séra Jóns Pálssonar og séra Þorkels Guðbjartssonar. 14. ágúst 1471.
Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup úrskurðar samkvæmt dómi háðum í sama stað og dag Höskuldi Runólfssyni að lúka árlega fjögur hundruð fríðvirð síðan Björn Eyjólfsson tók fyrst að sér jörðina Kelduland og svo síðan Höskuldur tók við henni og Höskuldi þess utan mörk í stefnufall.
Tveggja tylfta dómur, útnefndur á Öxarárþingi af lögmönnum báðum, Erlendi Þorvarðssyni og Ara Jónssyni, með ráði og samþykki beggja biskupanna og fógetans Diðriks van Mynden af Brjámsstöðum (Bramstad), um að rétt Noregs lög og svarinn sáttmáli haldist kóngs vegna og kirkju, um að Píningsdómur (1490) haldist, um að sáttmáli Norðmanna konungs og Englakonungs frá fyrra ári um verslun á Íslandi haldist, um þá er fara út af landinu með buldur og óróa, um duggara sigling, um að heilög trú og guðs lög haldist og um hafnargjald til konungs.