Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 721 documents
(9 documents in progress, 0 done, 712 left)
Árni Einarsson og tveir menn aðrir votta, að Valgerður Erlendsdóttir handfesti séra Höskuldi Hákonarsyni fullan bókareið, að hún var hjá pláguárið, að Ingiríður Böðvarsdóttir gaf kirkjunni á Hólum í Hjaltadal jörðina Kelduland í Skagafirði.
Guðríður Ólafsdóttir vottar að Rannveig Eiríksdóttir hafi 13. ágúst 1407 gefið Oddi Oddssyni í fjórðungsgjöf hálfa jörðina Skóga í Axarfirði og þar til tíu hundruð; samþykkti Oddur Eiríksson bóndi hennar gjöfina og lagði mála konu sinnar upp í jörðina Ærlæk.
Þorvaldur Eiríksson vottar að hann heyrði Einar Þorbjarnarson lýsa því í Fornhaga í Hörgárdal pláguárið (1403) að Ingiríður Böðvarsdóttir gaf Hólakirkju í Hjaltadal jörðina Kelduland í Skagafirði.
Jón Broddason pretur kvittar Kolla Magnússon bóda fyrir að hafa goldið hálfa Skálá með tilgreindum hlunnindum í próventu Ingibjargar Þorláksdóttur húsfreyju sinnar.
Logi Stígsson prestur og fimm menn aðrir votta að þeir hafi séð sálugjafabréf Steinmóðar Þorsteinssonar prests og tilfæra úr því kafla.
Fjórir menn votta, að Höskuldur Runólfsson seldi Jóni Sighvatssyni 1404 jörðina að Hvoli í Vesturhópi fyrir Tungufell í Svarfaðardal.
1) Eilífur Ólafsson vottar að Valdís Helgadóttir hafi pláguveturinn gefið Þingeyrakirkju í sitt testamentum jörðina Ytriey á Skagaströnd, ef hún andaðist úr þeirri sótt er þá gekk yfir landið. 28. júlí 1403. 2) Guðmundur Indriðason transkríberar bréf Eilífs Ólafssonar frá 28. júlí 1403. 6. júní 1527
Reikningsskapur séra Þórðar Þórðarsonar og Valdísar Helgadóttur barnamóður hans.
1) Sálugjafarbréf (testamentisbréf) Margrétar Þorvaldsdóttur, 30. nóvember 1401. 2) Þrír prestar transrkíbera sálugjafarbréf (testamentisbréf) Margrétar Þorvaldsdóttur, 30. maí 1487.
Omur Snorrason gefur guði allsvaldanda, hans signuðu móður og öllum guðs heilögum mönnum þau 20 hundruð, er Óttar Bjarnarson hafði honum selt, og sem hann hafði átt að staðnum í Reynisnesi.
Óttar Bjarnarson handleggur Ormi Snorrasyni til fullrar eignar þau tuttugu hundruð, er hann átti að heimta þá um vorið af staðnum í Reyninesi, og verið skyldi hafa forgift Brigitar Óttarsdóttur, dóttur hans ef hún hefði þar inngengið og staðfests þar í hreinlífi.
Vitnisburður Marteins Ívarssonar um landamerki Molastaða.
1) Þórður Þórðarson og Steinmóður Þorsteinsson officiales skipa Þorsteini Hallssyni svart kirkjuhlutann í Knappsstöðum í Fljótum, 16. apríl 1399. 2) Þorsteinn Hallsson svartur kaupir hálfa jörðina Knappstaði í Fljótum, 16. apríl 1399. 3) Transscriptum þriggja presta af tveim bréfum um Knappstaði í Fljótum frá 16. apríl 1399, 13. júní 1479.
Halldór Loftsson prestur selur Böðvari Ögmundarsyni djákna Krossanes í Kræklingahlíð fyrir Skriðuland og Hallfríðarstaði með tilgreindum landamerkjum og ítökum.
Skrá yfir eignir Hólakirkju í Hjaltadal, þá er Pétur Nikulásson Hólabiskup bjóst til skips.
Skoðunargerð sex manna á jörðunum Læk og Bakka og Syðri-Brekkum og Ytri-Brekkum og landamerkjasetning á milli þeirra.
Pétur Nikulásson Hólabiskup kaupir jarðirnar Bakka og Læk undir Hólakirkju af Halldóri Arngeirssyni bónda fyrir jarðirnar Syðri-Brekkur og Ytri Brekkur.
Pétur Nikulásson Hólabiskup kvittar Árna Einarsson um 10 hundraða ílag í jörðina Ásláksstaði í Kræklingahlíð.
Sumarliði Þorsteinsson kvittar Benedikt Brynjólfsson fyrir verði jarðarinnar Sauðár.
Halldór Arngeirsson bóndi kaupir hálfa jörðina Marbæli af Þuríði Jónsdóttur.
Vitnisburður Sveins Magnússonar prests og ráðsmanns á Möðruvöllum, að hann hafi tekið af Árna Einarssyni 7 hundruð vaðmála og 2 hundruð í slátrum fyrir það 10 hundraða ílag, er staðurinn átti í jörðina Ásláksstaði í Kræklingahlíð.
Erlingur Snorrason fær Pétri Nikulássyni Hólabiskupi jörðina Rófuhól [Róðuhól] fyrir 8 hundruð og þar með tvö kúgildi í sakeyri fyrir það, að hann tók tré, sem staðurinn á Hólum átti.
Einar Hafliðason prestur, tveir prestar aðrir og þrír leikmenn votta, að Andrés Bergþórsson baggi og Ragnhildur Steingrímsdóttir kona hans hafi handlagt Jóni Eiríkssyni skalla Hólabiskupi "góðrar minningar" alla jörðina Úlfsstaði fyrir 50 hundruð vaðmála.
Arnfinnur Þorsteinsson kaupir fimm hundruð í jörðinni Hálsi í Svarfaðardal af Kristínu Oddsdóttur, er hún hafði erft eftir Odd föður sinn.
Samningur um landamerki á milli Harrastaða og Finnsstaða á Skagaströnd.
Helgi Oddsson selur Arnfinni Þorsteinssyni þann hluta í jörðinni Hálsi í Svarfaðardal, er Helgi erfði eftir Odd föður sinn.
Brandur Ormsson selur Ólafi Kolbeinssyni tólffeðmings torfskurð í jörðina Bakka í Öxnadal fyrir þá peninga er hann lét sér vel nægja.
1) Tveir prestar og tveir leikmenn transkríbera bréf um Helluland, Ásgrímsstaði og Skíðastaði frá 13. mars 1388. 5. febrúar 1451 2) Björn Brynjólfsson selur Gissuri Þorbjarnarsyni jarðirnar Helluland og Ásgrímsstaði í Hegranesi fyrir jörðina Skíðastaði í Laxárdal. 13. mars 1388 3) Gunnar Gíslason og Magnús Jónsson transkríbera transskript frá 5. febrúar 1451 af bréfi um Helluland, Ásgrímsstaði og Skíðastaði frá 13. mars 1388. 2. mars 1558
1) Björn Brynjólfsson selur Gissuri Þorbjarnarsyni jarðirnar Helluland og Ásgrímsstaði í Hegranesi fyrir jörðina Skíðastaði í Laxárdal, 13. mars 1388. 2) Tveir menn og tveir prestar transrkíbera bréf um Helluland, Ásgrímsstaði og Skíðastaði frá 13. mars 1388, 5. febrúar 1451,
Testamentisbréf Þorsteins Eyjólfssonar lögmanns.
Guðmundur Hjaltason bóndi fær Solveigu Guðmundsdóttur dóttur sinni hálfa jörðina Fell í Kinn upp í skuld.
Þorsteinn Eyjólfsson lögmaður gefur Arnfinni Þorsteinssyni syni sínum þann hluta, sem hann átti í jörðunni Hálsi í Svarfaðardal.
Jón Þórðarson prestur handleggur frú Oddbjörgu abbadís á Reynistað tíu hundruð í vaðmálum og öðrum flytjanda eyri og lofar að skila abbadísinni aftur sylgju þeirri er hústrú Geirdís gaf klaustrinu, en Oddbjörg abbadís gefur séra Jón kvittan um alla ráðsmennsku klaustursins.
Jón Árnason gefur Halldóri Loftssyni presti hálfa jörðina Krisnes í Eyjafirði.
Jón Eiríksson skalli Hólabiskup samþykkir próventugjörning Jóns Bjarnarsonar prests og Oddbjargar abbadísar á Reynistað.
Próventusamningur Jóns Bjarnasonar prests fyrir sig og Guðrúnu systur sína við Oddbjörgu abbadís á Reynistað.
1) Hallvarður Hallkelsson og Valgerður Brandsdóttir kona hans selja Guðbjarti Eyjólfssyni presti jörðina Sævarland í Laxárdal með tilteknum hlunnindum. 16. apríl 1379. 2) Magnús Sigurðsson prestur og tveir menn aðrir transkríbera bréf um Sævarland frá 1379, 12, nóvember 1385.
Oddbjörg abbadís á Reynistað felst á, með samþykki allra konventusystra og klausturráðsmanns, að Narfi Sveinsson ljúki klaustrinu á Stað 30 hundraða, sem eftir stóðu af þeim 40 hundruðum er Örnólfur bóndi lagði með Ingibjörgu dóttur sinni til klaustursins.
Valgarður Loftsson bóndi selur Brynjólfi Bjarnarsyni bónda jörðina Mánaskál í Húnavatnssýslu en Brynjólfur selur Valgarði jörðina Syðstu-Vallá á Kjalarnesi.
Jón Eiríksson Hólabiskup selur Gísl Gíslasyni/Gils Gíslasyni jörðina að Höfða en Gísl leggur í mót jarðirnar Lambanes og Reyki.
Árni ábóti á Munkaþverá selur Guðmundi Sigurðarsyni hálfa jörðina Skriðuland í Öxnadal.
Bræður á Munkaþverá samþykkja, að Árni ábóti selji Guðmundi Sigurðarsyni bónda nokkurn hluta úr jörðunni Skriðulandi í Öxnadal.
Skrá um eignir dómkirkjunnar á Hólum í Hjaltadal í lausu fé kviku og dauðu er Gunnsteinn ábóti á Þingeyrum lét gera.
Skrá um reka þá sem Hólakirkja í Hjaltadal á í Ólafsfirði. 1374 Vottfest afskrift séra Illuga Guðmundssonar og séra Jóns Krákssonar af rekaskránni, 12. mars 1556
Vitnisburður fjögurra manna um að Benedikt Kolbeinsson hafi gefið Reynisstaðarklaustri reka þá sem Ólöfarpartar heita.
Jón Eiríksson skalli Hólabiskup úrskurðar Risamýri í Blönduhlíð stöðuga eign Hólakirkju í Hjaltadal.
Vitnisburður tveggja presta um það, að páfatíund hafi verið greidd til Noregs úr Hólabiskupsdæmi á dögum þeirra Hólabiskupanna Auðunns Þorbergssonar rauða, Lárentíusar Kálfssonar og Egils Eyjólfssonar.
Vitnisburður sex manna um upplestur bréfa á alþingi.
Heit Jóns Eiríkssonar skalla Hólabiskups og Norðlendinga til guðs signuðu móður jómfrú sánkta Maríá, hins heilaga Jóns og hins góða Guðmundar Hólabiskupa og allra guðs heilagra manna um linun á snjóþyngslum og vetrarhörkum, og lofa þeir að halda heilaga getnaðartíð Máríu á jólaföstu (8. desember).
Böðvar Þorsteinsson prestur selur þeim bræðrum Hjalta og Katli Guðmundssonum jörðina að Efstafelli með öllum hlutum og hlunnindum.