Archive Arnamagnæana dev

Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 718 documents
(9 documents in progress, 2 done, 707 left)
1) Tveggja tylfta dómur, útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi á prestastefnu, um kæru biskups til Halldórs Brandssonar, að hann hefði eigi haldið Viðvíkurdóm um kirkjugóssin á Barði í Fljótum frá 10. febrúar 1481 (DI VI, nr. 317; Barðsdómur hinn síðari). 9. júní 1488. 2) Transskrift af Barðsdómi. 2. ágúst 1488.
Vottorð séra Þorkels Guðbjartssonar og séra Sigurðar Jónssonar um bókareið Ólafs Eyjólfssonar, að síðan pláguveturinn hefði enginn búið á Sjávarborg þangað til Benedikt (Brynjólfsson) dó, nema þeir sem leyfi hefði fengið af honum.
Hallsteinn Þorsteinsson lýsir því, að hann og Cecelia Þorsteinsdóttir (Sesselja Þorsteinsdóttir) kona hans hafi gefið "fyrst að upphafi guði almáttugum, jungfrú Marie og helga blóð" jörðina Skriðu í Fljótsdal með rekum og ítökum til ævinlegs klausturs.
Jón Sæmundsson selur, í umboði Teits Þorleifssonar bónda, Þorvarði Helgasyni príor á Skriðu 20 hundruð í jörðunni Borgarhöfn í Fellshverfi klaustrinu til fullrar eignar fyrir 40 hundruð í lausafjám, með öðrum greinum, er bréfið hermir.
Þrír prestar votta, að Bjarni Ólason hafi í návist Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups játað það, að hann hafi legið átta sinnum eða oftar með Randíði Bjarnadóttur dóttur sinni, þá er hún var 15 vetra, og að hann beiddist enn að nýju náðar og miskunnar af Ólafi biskupi.
Vitnisburður, að þeir bræður Halldór Brandsson, Hrafn Brandsson og Snjólfur Brandsson gengu í borgan við Rögnu Hrafnsdóttur móður sína að svara kirkjugóssum á Barði vegna Brands Halldórssonar föður þeirra, eftir því sem á hvers þeirra hlut kæmi á móts við systur sínar.
Vitnisburður Jóns Þorvaldssonar ábóta á Þingeyrum um reka og rekamáldaga klaustursins á Stað í Reyninesi.
Vitnisburðarbréf, að Magnús Þorgrímsson djákni og Una Þorgrímsdóttir systir hans hafi samþykkt allan skilmála Magnúsar Jónssonar og Margrétar Finnbjarnardóttur móður þeirra um jörðina Skóga í Öxarfirði.
Vitnisburður þriggja manna um samning þeirra Magnúsar Þorkelssonar, vegna Kristínar Eyjólfsdóttur, konu sinnar, og Guðrúnar Gunnlaugsdóttur um arf eftir Eyjólf Arnfinnsson heitinn.
Dómur presta dæmir gild öll kaup og skipti, er Jón Arason Hólabiskup hafði haft, hvort heldur vegna Hólakirkju eða sín.
Guðmundur Skúlason prestur selur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju jörðina Býjasker á Rosmhvalanesi fyrir fjóra tugi hundraða í lausafé.
1) Guðmundur Skúlason prestur selur Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju jörðina Býjasker á Rosmhvalanesi fyrir fjóra tugi hundraða í lausafé. 22. ágúst 1488. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 6. ágúst 1489.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup selur Þorsteini Bessasyni jörðina Steinnýjarstaði á Skagaströnd fyrir Laugaland í Fljótum.
Finnbogi Jónsson lögmaður heimilar Guðmundi Jónssyni jörðina Þorbjargarstaði til fullrar eignar, og kvittar hann um andvirði hennar.
Máldagi Maríukirkju að Miðbæli undir Eyjafjöllum er Jón Halldórsson Skálholtsbiskup setti.
Alþingisdómur útnefndur af Finnboga Jónssyni lögmanni um skilríki hans fyrir Ásgeirsám, Lækjamóti og Strandajörðum (þ.e. Krossnes, Melar, Norðfjörður og Seljanes).
1) Reikningur um nokkrar fjárheimtur Skálholtsstaðar, að mestu um Rangárvöllu. 1497 2) Skrá um nokkrar fjárheimtur Skálholtsstaðar um Rangárvöllu. 1497 3) Skrá um nokkurn útlendan varnað er séra Einar Snorrason afhenti Stefáni Jónssyni biskupi. 1497 4) Bréf Stefáns Jónssonar biskups til ónafngreinds frænda Lénarðs fógeta um gjöld og aflausn og kirkjuleg fyrir soddan síbrotamann sem Lénarður var. 1502
Tylftardómur klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um alla þá, er gera hjúskap í meinbugum.
Skrá um reka þá sem Hólakirkja í Hjaltadal á í Ólafsfirði. 1374 Vottfest afskrift séra Illuga Guðmundssonar og séra Jóns Krákssonar af rekaskránni, 12. mars 1556
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup staðfestir Mjóvadalsdóm, sbr. dóm frá 4. september 1472 (DI V, nr. 602).
Vitnisburður Gottskálks Nikulássonar prests, að hann hafi útvegað landvistarbréf fyrir Jón Ásgeirsson 1492 um víg Guðmundar Þorsteinssonar, þó að hann gæti ekki náð því fyrir forfalla sakir.
Próventusamningur Magnúsar Jónssonar og Margrétar Finnbjarnardóttur við Einar Ísleifsson ábóta og klaustrið á Munkaþverá.
1) Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Þórunnar Finnbogadóttur á jörðunni Valþjófsstöðum í Núpasveit, er biskupinn reiknaði eign Hólakirkju í Hjaltadal. 13. júlí 1464. 2) Transskriftarbréf fjögurra manna. 4. mars 1466.
Ögmundur Pálsson Skálholtsbiskup og administrator heilagrar Hóladómkirkju fær Pétri Pálssyni presti jörðina Syðri-Ey á Skagaströnd til fullrar eignar og kvittar hann um andvirðið.
Jörundur Þorsteinsson Hólabiskup setur systraklaustur að Stað í Reyninesi og skipar ýmsar jarðir til klaustursins.
Vottorð tveggja manna, að Semingur Magnússon prestur lýsti því, að hústrú Margrét Vigfúsdóttir hafi gefið sér jörðina Þóroddsstaði í Kaupangssveit, en hann hafi aftur gefið hana Þorláki Semingssyni "frænda sínum" til kvonarmundar.
Próventusamningur Gunnlaugs Helgasonar fyrir hönd Ingileifar Kolladóttur, konu sinnar, við Gottskálk Nikulásson Hólabiskup.
Vilkinsmáldagi, Garða- og Bessastaðakirkjur 1397. Pappírsafskrift gerð eftir Vilkinsmáldaga 1591 í Skálholti.
Tylftardómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um hjónaband Ingilbrikt Jónssonar og Höllu Vilhjálmsdóttur.
Jón ábóti á Munkaþverá krefur af Stígi Einarssyni alla þá peninga, sem hann hefur burtu haft frá klaustrinu eftir sálugan Einar Ísleifsson ábóta, og lýsir Illugastaði í Fnjóskadal ævinlega eign klaustursins.
Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Skúla Loftssonar á jörðunni Syðra-Vallholti í Skagafirði, er biskup taldi eign Hólakirkju í Hjaltadal.
1) Jón Arason Hólabiskup gefur og geldur Helgu Jónsdóttur (Sigmundssonar), vegna Einars Jónssonar bróður hennar, 20 hundruð í jörðinni Þóreyjarnúpi, en selur Kráki Hallvarðssyni bónda Helgu tólf hundruð í jörðinni fyrir Kvennahól á Skarðsströnd og átta hundruð í smíðum eða öðru, er þeim semdi biskupi og Kráki. 6. maí 1532 2) Transskrift tveggja manna. 28. apríl 1578
Ingibjörg Loftsdóttir gefur Magnús Jónsson öldungis kvittan um það umboð, er hann hefur haft yfir hennar peningum, nema þeim peningum, er hún á í Holti í Fljótum.
Vitnisburður Guðmundar Salómonssonar um veiði í Nikulásarkeri í Norðurá. Pálmasunnudag [11. apríl] 1582.
Dómur átta presta og fjögurra leikmanna útnefndur af Jóni Vilhjálmssyni Craxton Hólabiskupi, þar sem jörðin Kelduland í Skagafirði er dæmd óbrigðileg eign heilagrar Hólakirkju í Hjaltadal.
Logi Stígsson prestur og fimm menn aðrir votta að þeir hafi séð sálugjafabréf Steinmóðar Þorsteinssonar prests og tilfæra úr því kafla.
Grímur Pálsson bóndi lýkur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi 25 hundruð upp í jörðina Hvassafell í Eyjafirði í reikningsskap þann, er hann og Páll Brandsson faðir hans urðu skyldugir biskupinum.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lýsir því, að hann haldi jarðirnar Núpufell og Hnappstaði með öllu því góssi, er þar fylgi, fallnar undir heilaga kirkju og hennar formenn samkvæmt Eyrarlandsdómi 7. júní 1479 (DI VI, nr. 202), er Árni Höskuldsson hafi rofið, og fyrirbýður hverjum manni hald á þessum jörðum, nema með sínu leyfi.
Ari Jónsson selur Teiti Magnússyni jörðina Rafnsstaði í Kræklingahlíð fyrir Róðugrund í Skagafirði.
Vitnisburður Arnodds Þórðarsonar, Péturs Sæmundssonar, Eyjólfs Jónssonar, Ásgeirs Albertssonar og Hemings Jónssonar, auk Hálfdanar Hálfdanarsonar sem séra Magnús Jónsson á Breiðabólsstað krafðist af þeim um landamerki á milli Lambeyjar og Teigs í Fljótshlíð. Þeir segjast ennfremur aldrei hafa heyrt Kirkjulæk eignað yfir Fljótsveg eða farveg þar.
Jón Þórðarson prestur fær Halldóri Loftssyni presti jörðina Grísará og hálft Nýlendi til fullrar eignar, 7. september 1400. Þorkell Þorkelsson og Ólafur Ófeigsson sáu og lásu ofangreint bréf sem þeir eigna Árna Einarssyni, 7. júlí 1461
Páll Brandsson bóndi fær Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi hálfa jörðina Hól í Laxárdal í Þingeyjarþingi í þann reikningsskap, er þá fór í millum þeirra.
Þorgrímur Sölvason kvittar Ólaf Ormsson fyrir 20 hundruðum, er han átti hjá honum upp í jörðina á neðri Mýrum í Höskuldsstaðaþingum.
Narfi Benediktsson selur séra Einari Benediktssyni hálfa jörðina Grindur á Höfðaströnd gegn kennslu og uppfæðslu á Benedikt Narfasyni syni hans, með fleira skilorði, er bréfið greinir.
Þorleifur Pálsson lögmaður staðfestir Vatnsfjarðardóm frá 3. maí 154, sbr. DI XI, nr. 265, sbr. nr. 268).
Fjórir menn votta um samræður Vigfúsar Ívarssonar við Guðríði Ingimundardóttur konu sína 9. ágúst 1429 um peninga þá, er Guðrún Sæmundardóttir ætti í hans garð.
Vitnisburður Kolla Magnússonar um teiginn milli Hóla og Reykjarhóls í Fljótum, að hann hafi fylgt Hólum meir en upp á 20 ár.
Þórður Jónsson selur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi jörðina Borðatjörn í Höfðahverfi fyrir jörðina Garðshorn hið syðra í Svarfaðardal.