Arkivverket
Den Arnamagnæanske Samling
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands, Reykjavík: 721 documents
(9 documents in progress, 0 done, 712 left)
Dómur sautján klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákærur biskups til Þorsteins Þorleifssonar um töku á Húsavíkurstað og fleirum kirkjunnar eignum.
Solveig Þorleifsdóttir lýsir því, að hún hafi gengið í borgan fyrir séra Sigmund Steindórsson við Ólaf Rögnvaldsson Hólabiskup, að lúka honum tíutigi hundraða samkvæmt sættarbréfi þeirra, en skilur aftur undir sig og sína erfingja svo mikið í Flatatungu, sem hún lýkur eða lætur lúka, en lýsir Jóni Sigmundssyn óheimila veðsetning jarðarinnar.
Ögmundur Pálsson Skálholtsbiskup lýsir því, að hann hafi hinn 22. maí 1529 í kirkjunni á Hvanneyri í Andakíl vígt Magnús Jónsson til prestskapar í Hólabiskupsdæmi, enda hafi hann fengið löglega og fulla aflausn af páfagarði og Jón Arason Hólabiskup hafi vígt hann hinum lægri vígslum.
Þorsteinn Jónsson prestur lofar að lúka Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi og heilagri Hólakirkju 60 hundraða fyrir þann reikningsskap, er hann átti honum að standa og Hólakirkju í ráðsmannsstarfi síðan Gottskálk Keniksson Hólabiskup deyði, og leggur séra Þorsteinn þá þegar tvær jarðir í skuldina, en allt sé lukt á þremur árum, og gefur þó biskup tíu hundruð kvitt fyrir bón abbadísarinnar á Reynistað og hústrú Margrétar Vigfúsdóttur á Möðruvöllum.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lýsir jarðirnar Núpufell og Hnappstaði fallna undir heilaga kirkju og hennar formenn samkvæmt Eyrarlandsdómi frá 7. júní 1479 (DI VI, nr. 202), er Árni Höskuldsson hafði rofið.
Gjafabréf og stofnskrá jarðarinnar Ytra-Vallholts í Skagafirði sem kristfjárjarðar.
Dómur útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru séra Jóns Broddasonar, ráðsmanns Hólastaðar, til Þórarins Þorsteinssonar, að hann hefði ekki goldið leigur af sex kúgildum Hólastaðar og tvö ásauðar kúgildi.
1) Vitnisburður Illuga Björgólfssonar um osttoll til Hólastaðar af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum. 31. júlí 1448 2) Vitnisburður Steinþórs Jónssonar um osttoll til Hólastaðar af hverjum skattbónda milli Hrauns á Skaga og Hrauns í Fljótum. 3. ágúst 1448 3) Vitnisburður tólf mana um það að Hólastaður eigi osttoll af hverjum skattbónda milli Skaga og Hrauns í Fljótum. 7. júlí 1450 4) Fjórir menn transkríbera þrjú bréf um osttoll Hólakirkju. 17. júlí 1480
Tveggja tylfta dómur klerka útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi á prestastefnu um óhlýðni séra Guðmundar Skúlasonar við biskup.
Goðsvin Comhaer Skálholtsbiskup samþykkir kaup þeirra Barböru abbadísar á Reynistað við Guðmund Björgólfsson á jörðunni Skíðastöðum fyrir Skarð á Reykjaströnd (sjá bréf frá 24. júlí 1443).
Reikningur Miklagarðsumboðs eftir Ólaf Hjaltason Hólabiskup fráfallinn.
Fimm menn votta, að Magnús Jónsson seldi Ólafi Eyjólfssyni í fardagaviku fyrir þremur árum jörðina Kálfskinn í Árskógsþingum fyrir Bakka í Svarfaðardal og nokkurt lausafé.
Grímur Pálsson bóndi geldur og lýkur Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi 20 hundruð í jörðunni Hreiðarstöðum í Svarfaðardal fyrir 21 hundrað, er hann varð biskupi skyldugur í útlausnir.
Vitnisburður Gissurar Þorlákssonar um Dyrhólaey í Mýrdal.
Sveinn Sumarliðason lofar Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi fylgi sínu og styrk, meðan þeir lifi báðir, gegn hverjum manni, nema ef biskup ágreindi við Finnboga Jónsson lögmann, mág Sveins, eða Pál Brandsson, þá skyldi Sveinn hvorugum veita.
Húsaúttekt á Ingjaldshóli þá Þórður Steindórsson viðskildi en herra lögmaðurinn Magnús Jónsson viðtók.
Ólafur Hjaltason Hólabiskup fær Vigfúsi Þorsteinssyni til eignar 20 hundruð í heimalandi í Ási í Kelduhverfi, þau er kirkjan átti, en Vigfús skyldi aftur greiða kirkjunni 20 hundruð í fríðum peninum.
Boðunarbréf Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups til prestastefnu þann 29. apríl 1494 að Víðivöllum í Skagafirði.
Magnús Jónsson selur Þorleifi Björnssyni Böðvarshóla í Vesturhópi fyrir Steinstaði í Öxnadal (sbr. DI V, nr. 474).
Vitnisburður, að Eyjólfur Einarsson og hans fylgjarar hafi gert Runólfi Höskuldssyni bús upptöku á Bakka í Öxnadal, er mundi hafa reiknast til hér um bil 50 hundraða.
Vitnisburður séra Halldórs Brandssonar um að í tíð Jóns Arasonar Hólabiskups hafi hann haft umboð jarða Hólastóls í Þingeyjarsýslu (Norðursýslu) í mörg ár. Allan þann tíma var Tjörn í Aðaldal á meðal jarða Hólastóls og eftir andlát Jóns þegar hann stóð séra Sigurði Jónssyni reikningsskap þá átaldi séra Jón Ólafsson aldrei jörðina sér vitanlega.
Tveir menn votta, að Sæmundur Hallsson kvittaði Gottskálk Keneksson Hólabiskup fyrir andvirði hálfrar jarðarinnar Núps undir Eyjafjöllum, sem hann hafði selt biskupi.
Hrafn Guðmundsson lögmaður úrskurðar Finn Gamlason skyldugan að afhenda Magnúsi Böðvarssyni presti jörðina Barð í Fljótum til fullrar eignar.
Jón Ólafsson kvittar Ólaf Loftsson föður sinn og Guðrúnu Rafnsdóttur móður sína fyrir föður- og móðurarfi sínum.
Tylftardómur klerka útnefndur af Gottskálki Nikulássyni Hólabiskupi um kúgildahald Sæmundar Jónssonar í 23 ár fyrir Hóladómkirkju.
Dómur fimm klerka og eins leikmanns, útnefndur af Magnúsi Eyjólfssyni officialis eftir skipun Gissurar Einarssonar Skálholtsbiskups, um ákærur séra Jóns Eiríkssonar til Vigfúss Magnúss Brúmannssonar um tollahald fyrir Vatnsfjarðarkirkju í Bolungarvík, og til Markús Þórarinssonar og Jóns Arasonar blóta um óheimila ásetu á jörðunum Þverdal og Sæbóli.
Úrskurður Gottskálks Kenekssonar Hólabiskups með samþykki tólf klerka um kæru Halldórs Brandssonar til Jóns ábóta á Þingeyrum, að ábóti héldi fyrir honum undir klaustrið jörðunni Ytri-Ey á Skagaströnd, sem Brandur eignaði sér vegna Helgu konu sinnar samkvæmt kaupbréfi og kvittunarbréfi, en af því þessi skilríki þóttu eigi gild, úrskurðast jörðin óbrigðileg eign Þingeyraklausturs.
Vitnisburður séra Sigurðar Jónssonar um að faðir sinn, Jón Arason Hólabiskup, hafi borið undir hann áform sín um að selja séra Jóni Ólafssyni Tjörn í Aðaldal fyrir jarðir fyrir vestan sem hann hafði erft. Hann spurði föður sinn hvers vegna hann ætti að selja jörð fyrir norðan fyrir jarðir í öðrum fjórðungi. Biskup sagðist gera það í greiðaskyni við séra Jón því annars nái hann ekki arfi sínum því skyldmenn hans muni óttast að halda fyrir honum arfinum sé þeim kunnugt að biskup hafi keypt jarðirnar. Jafnframt sagðist hann geta keypt Tjörn af séra Jóni aftur hvenær sem hann vildi. Hann taldi líklegt að biskup hefði samið við séra Jón um jörðina áður en hann féll frá. Sigurður var hins vegar óviss um hvort séra Jón hafi fengið greitt að fullu fyrir það silfur sem hann fékk biskupi fyrir Tjörn og því ætti að komast að samkomulagi við erfingja hans um það.
Vottorð tólf klerka og tólf leikmanna um það, að þeir hafi aldrei heyrt né vitað annað en veiting Grenjaðarstaða í Reykjadal hafi legið undir Hólabiskup fyrri en Jón Pálsson prestur nú kom út með veitingarbréf erkibiskupsins fyrir staðnum.
Brynjólfur Magnússon selur Þorsteini Þorkelssyni jörðina Vatnsleysu í Draflastaðaþingum fyrir tólf hundruð í lausafé, en Brynjólfur skyldi sér skógarpart upp í jörðina og skýrir frá landamerkjum.
Margrét Ólafsdóttir gefur Ingibjörgu Þorvarðsdóttur frændkonu sinni fjórðung upp í Hvassafell í Eyjafirði í fjórðungsgjöf og tíundargjöf, en Bjarni Ólason bóndi hennar samþykkir gjöfina.
Dómur sex presta, kvaddra af Ólafi Hjaltasyni Hólabiskupi, dæmir af Magnúsi Jónssyni, "sem prestur hafði verið", þrjár Hólastólsjarðir, er honum höfðu verið fengnar "í sína lífstíð" til framfæris.
Próventubréf Árna Bergssonar við klaustrið á Munkaþverá.
Arngrímur Þórðarson selur séra Þorsteini Jónssyni jörðina Presthvamm í Grenjaðarstaðarþingum með kristfjárómaga, fyrir 20 hundruð í fríðum peningum.
Dómur klerka útnefndur af Jóni Þorvaldssyni presti og Guðmundi Jónssyni officialibus Hólabiskupsdæmis, að Einar Benediktsson ábóti á Munkaþverá og klaustrið skuli hafa og halda jörðina Illugastaði í Fnjóskadal þar til réttur Hólabiskup gerir þar lagaskipan upp á.
Dómur presta dæmir gild öll kaup og skipti, er Jón Arason Hólabiskup hafði haft, hvort heldur vegna Hólakirkju eða sín.
Vitnisburður Ólafs Ólafssonar um Dyrhólaey í Mýrdal og þann ós er þar fyrir austan fellur og kallaður er Dyrhólaós. Svarinn að bón bræðranna Magnúsar og Hákonar Þorsteinssona.
Jón Eiríksson skalli Hólabiskup samþykkir próventugjörning Jóns Bjarnarsonar prests og Oddbjargar abbadísar á Reynistað.
Kirkjureikningur Þingeyraklausturs. Gripir kirkjunnar taldir upp.
Dómur tólf presta útnefndur af Ólafi Rögnvaldssyni Hólabiskupi um ákæru biskups til séra Einars Benediktssonar, að hann hefði ekki haldið sína lofan og hlýðni eftir því sem hans bréf þar um gert útvísar, þá er biskupinn unnti honum Grenjaðarstað (sjá DI V, nr. 549).
Vitnisburður um landamerki Þórðarstaða í Fnjóskadal.
Ari Jónsson selur Teiti Magnússyni jörðina Rafnsstaði í Kræklingahlíð fyrir Róðugrund í Skagafirði.
Ólöf Loftsdóttir lýsir því, að hún hafi fengið Magnúsi Jónssyni bónda jörðina Galtarnes í Víðidal, og kvittar hann um andvirðið.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup samþykkir Vallholtsdóm frá 14. janúar 1465 (DI V, nr. 384).
Guðmundur Björgólfsson selur Illuga Björgólfssyni bróður sínum rekann fyrir Sævarlandi fyrir rekann á milli Sauðarár og Gaukstaðaár og nýjan sexæring.
Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup bannar leikmönnum að taka prófaleiðslur og ganga dóma um eignir heilagrar kirkju og draga þær svo undir sig.
Jón ábóti á Munkaþverá krefur af Stígi Einarssyni alla þá peninga, sem hann hefur burtu haft frá klaustrinu eftir sálugan Einar Ísleifsson ábóta, og lýsir Illugastaði í Fnjóskadal ævinlega eign klaustursins.
Heitbréf Skagfirðinga.
Dómur Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups og tólf presta um hald Skúla Loftssonar á jörðunni Syðra-Vallholti í Skagafirði, er biskup taldi eign Hólakirkju í Hjaltadal.
Page 12 of 15